Panta heimabíómagnara að utan ..

Allt utan efnis
Svara
Skjámynd

Höfundur
hagur
Vaktari
Póstar: 2917
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Panta heimabíómagnara að utan ..

Póstur af hagur »

Sælir,

Hefur einhver hérna pantað heimabíómagnara að utan?

Skv. reiknivél ShopUSA þá eru magnarar í sama viðbjóðs okurtollflokki og iPoddar ... ég bara neita að trúa því.

Á magnara sem kostar 1200$ eru að leggjast 120þús krónur í gjöld skv. reiknivélinni. Þetta er auðvitað argasta bilun.

dadik
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 345
Skráði sig: Lau 14. Sep 2002 11:21
Staðsetning: Reykjavik
Staða: Ótengdur

Re: Panta heimabíómagnara að utan ..

Póstur af dadik »

Held þetta sé nærri lagi. Það er 7.5% tolllur + 25% vörugjald sem er lagt á þetta. Fyrir utan 25.5% virðisauka náttúrulega.
ps5 ¦ zephyrus G14

Hauksi
Fiktari
Póstar: 91
Skráði sig: Fös 28. Mar 2008 15:12
Staða: Ótengdur

Re: Panta heimabíómagnara að utan ..

Póstur af Hauksi »

Það er rétt,þetta er argasta bilun.
Aðflutningsgjöldin er sem dadik segir..Magnari+frakt x 7.5 x 25 x 25.5
Semsagt um 70 % ofaná magnaraverð og frakt.
Svara