Mixed Martial Arts(Mjölnir)

Allt utan efnis
Svara

Höfundur
Ripparinn
Geek
Póstar: 834
Skráði sig: Mið 08. Júl 2009 06:08
Staða: Ótengdur

Mixed Martial Arts(Mjölnir)

Póstur af Ripparinn »

Sælir :)

Mig langar rosalega að prufa þetta, er einhver hér að æfa þetta og veit hvenær Mjölnir 101 byrjar ? :)
GigaByte-P55M-UD2 | Intel Core i5 650 @ 3.20GHz | 4.0GB Dual-Channel DDR3 1066Mhz | PNY GeForce GTX 460 768Mb | Corsair H50 | HAF922
Skjámynd

Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 3981
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Staða: Ótengdur

Re: Mixed Martial Arts(Mjölnir)

Póstur af Klemmi »

Ég hef bara prófað kick-boxið hjá þeim, var í því í kannski 2 mánuði og fannst það mjög gott og gaman. Hef æft fótbolta frá því ég var lítill polli en sjaldan svitnað jafn mikið og tekið jafn vel á og á þessum æfingum, auk þess sem það er ekki slæmt að kunna undirstöðuna í einhverri sjálfsvörn.
Nokkrir vinir mínir hafa svo verið í Brazilian Jui-Jitzu eða hvernig sem það er skrifað hjá þeim og hafa bara góða sögu að segja :)

Eini ókosturinn er að þetta kostar ágætis pening, var í kringum 7000kr.- á mánuði þegar ég var, það er ekki mikið ef þú horfir á það að þú megir mæta þarna eins og þú vilt, en fæstir gera það nú svo yfirleitt endar þetta í ca. 1000kall fyrir tímann. En þetta skilur meira eftir sig heldur en bíó- eða keiluferð svo ég ætla ekki að kvarta of mikið yfir kostnaðnum ;)
www.laptop.is
www.ferdaleit.is
Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Mixed Martial Arts(Mjölnir)

Póstur af Gúrú »

Er að æfa þarna, 15 ára gaur gleraugu(ef einhver skyldi spotta mig), mæti á no-gi, striking og BJJ og hef reynt að gera það 6x í viku í ca 4 mánuði.

Bull góðir þjálfarar þarna(James er snilldin ein), sjúklega góður andi í þessu félagi og ég mæli hiklaust með því að þú prófir.

Næsta byrjendanámskeið er 1. Nóvember. ;)
Modus ponens
Svara