daanielin skrifaði:Megið endilega halda áfram að dúndra inn heimildarmyndum, finnst þetta furðulega merkilegt.
vesley skrifaði:
Sjálfur gerði ég ritgerð um Chernobyl fyrir 2 árum og það er bara ótrúlegt hvað var gert. Eins og fyrir ykkur sem vissu það ekki þá í rauninni var þetta ekki slys. Heldur heimska í starfsmönnum.
En nóg off topic.
Varð Chernobyl slysið ekki útaf tilraun sem klikkaði og því sprakk einn "reactor" (man ekki íslenska orðið)? Annars held ég að það sé allavega ekki langt á milli slysa og heimsku.
Þeir voru að gera tilraun, ég man ekki alveg hvernig tilraunin var en það skiptir ekki meginmáli. Ofninn nær ákveðnu hitastigi og viðvörunarkerfið fór að gefa upp merki um mikla hitnum og hunsa þeir hana mörgum sinnum. Til að kæla allt kerfið eru koparstangir settar niður í ofnin og létu þeir stangirnar of seint niður sem leiddi til sprengingarinnar.
Sagt var slökkviliðinu að eldurinn frá ofninum væri vegna rafmagnsbilunar, og ef ég man rétt þá dóu allir sem tóku þátt í að slökkva eldinn örfáum dögum-vikum eftir slysið.
Edit: Var búinn að gleyma svo miklu af þessu að ég skelli bara litlum Wikipedia bút
In this view, the catastrophic accident was caused by gross violations of operating rules and regulations. "During preparation and testing of the turbine generator under run-down conditions using the auxiliary load, personnel disconnected a series of technical protection systems and breached the most important operational safety provisions for conducting a technical exercise"
Þeir voru held ég að prufa neyðartilfelli enn voru með reactorinn á of miklum þrýsting og þá sló öllu út og díselvélarnar sem eiga að keyra kælikerfið tóku svo langan tíma að keyra sig upp og endaði að allt ofhitnaði og sprakk. Er ekki málið að skella okkur í hópferð til Chernobyl?
AMD Phenom II X6 1090T - Corsair H50 - Gigabyte 890FXA-UD5- Nvidia Geforce GTX260 - 2x2 GB Mushkin 1600MHz DDR3 - 750W SilverStone PSU - 2x 500GB Western Digital + 320 GB Western Digital + 1,5 Tb Western Digital Green - BenQ 24" LED 1920x1080 - Acer V223W 22" 1680x1050
Síðan það versta við Chernobyl að þegar kjarnakljúfurinn var búinn að gefa sig var svo mikilvægt fyrir stjórnvöld að láta alla halda að ekkert væri að, að þeir létu samt halda einhvern þjóðhátíðardag sem kom upp og drógu fólkið út á götur í skrúðgöngu, þegar raunin er að mun mun fleiri hefðu lifað af hefðu þeir bara haldið sig innandyra.
addifreysi skrifaði:Þeir voru held ég að prufa neyðartilfelli enn voru með reactorinn á of miklum þrýsting og þá sló öllu út og díselvélarnar sem eiga að keyra kælikerfið tóku svo langan tíma að keyra sig upp og endaði að allt ofhitnaði og sprakk. Er ekki málið að skella okkur í hópferð til Chernobyl?
Díselvélarnar voru "backup" kerfið en vandinn við þá var að það tók þá 60sek að ná fullum kraft. Þeir voru að gera tilraunir með að láta gufu túrbínu keyra sig upp til að framleiða nógu mikil volt til að vatnspumpurnar myndu halda sér gangandi meðan díselvélarnar voru að ná styrk.
Þeir höfðu nokkrum sinnum áður gert þessar tilraunir en ekki meðan kjarnaofn var að slökkva á sér. Slysið átti sér stað þegar þeir gerðu tilraunina aftur þegar ofninn var að slökkva á sér.
Kjarnorkuverið gekk í 2 ár án þess að hafa neitt raunverulegt "backup" kerfi.