Dell inspiron 1525 kveikir ekki á sér !

Svara

Höfundur
vignir81
Nýliði
Póstar: 18
Skráði sig: Þri 04. Des 2007 13:30
Staða: Ótengdur

Dell inspiron 1525 kveikir ekki á sér !

Póstur af vignir81 »

Halló

Konan mín á Dell Inspiron 1525 fartölvu sem er c.a. 2 ára gömul. Hingað til hefur hún virkað up to par og aldrei neitt vesen sem hefur þurft sérstaklega athygli, þangað til í fyrradag þegar konan slökkti á henni og síðan þá hefur ekki verið hægt að kveikja á henni aftur. Ekkert ljós kemur framan á henni, nema í stutta stund í gærkvöldi þá blikkaði batteríljósið en bara í stutta stund. Það er grænt ljós á rafmagsnsnúrunni.

Prófaði að gúgla þetta og allstaðar var sagt að taka rafmagnsplöggið úr og taka batteríið úr og halda inni power takkanum í x margar sek og svo setja batteríið aftur í og bíða svo smá. Búinn að gera allar útfærslur af þessari lausn en það virkar ekki.

Ef einhver veit um lausn (ef einhver) eða gæti grunað hvað þetta er ....
Skjámynd

BjarniTS
Vaktari
Póstar: 2260
Skráði sig: Fim 06. Ágú 2009 01:51
Staða: Ótengdur

Re: Dell inspiron 1525 kveikir ekki á sér !

Póstur af BjarniTS »

prufa annað hleðslutæki ,
Prufa að hlaða batteryið í annari vél , ejs myndu gera það fyrir þig örugglega.

Ef ekki -
ætla að skjóta á að rafmagnstengið á móðurborðinu sé skemmt.

Ef að þú juðar því til þá gætir þú fengið flöktandi samband.
Ég hef gert við svona með hjálp lóð-meistara.
Nörd

Starman
has spoken...
Póstar: 153
Skráði sig: Þri 07. Okt 2008 01:40
Staða: Ótengdur

Re: Dell inspiron 1525 kveikir ekki á sér !

Póstur af Starman »

Það er 3ja ára ábyrgð á öllum Dell vélum seldum á Íslandi, þannig að ég myndi ekki vera að eiga við þetta sjálfur þar sem þetta er líklega í ábyrgð, þ.e.a.s. ef þetta er vélbúnaður sem er bilaður.
Svara