biturk skrifaði:
og þetta er glötuð hugmynd, ég nota einmitt nánast eingöngu virkar umræður á þessari síðu (skoða hana nokkrum sinnum á dag) og það myndi skemma gríðarlega að geta ekki séð söluþræðina þar, maður skoðar langt mest í því
Voðalega finnst mér þetta heimskulegt innlegg í umræðuna, leyfðu mér að útskýra:
Þú segist skoða lang mest í söluþráðum, hvað er þá svona flókið fyrir þig að fara í söluþræðina með því að smella á þá fyrir neðan? Á meðan getum við hinir actually tekið þátt í alvöru umræðum um allt sem er í hinum flokkunum.
af því að þá væri þetta nánast staðnað, það er mest af söluþráðum þarna því það er lang mest umferð þar, ýttu bara á "sjá allar" og þá færðu fleiri síður af hlutum sem hefur nýlega verið skrifað í, það er varla svo flókið.
Vandamálið er að þegar ég ýti á "sjá meira" eru yfirleitt 70-90% af þráðunum söluþræðir, eða þræðir tengdir þeim og mín skoðun er sú að þeir þræðir séu ekki góður grundvöllur fyrir skemmtilega umræðu. Þess vegna tel ég að það megi virka hin borðin meira með alvöru umræðu um hluti sem tengjast söluþráðunum ekki.
Skil alveg þá sem eru á móti þessu, þetta er bara mín skoðun, mér finnst söluþræðir ekki vera umræðuþræðir.
Prófum að taka söluþræðina út í 1-2 daga og sjáum hvernig það smakkast.
Þeir sem vilja sjá söluumræðurnar geta klikkað á: .. VIRKAR UMRÆÐUR | SJÁ ALLAR << sjá allar... og ættu þá að sjá virkar söluumræður.
GuðjónR skrifaði:Prófum að taka söluþræðina út í 1-2 daga og sjáum hvernig það smakkast.
Þeir sem vilja sjá söluumræðurnar geta klikkað á: .. VIRKAR UMRÆÐUR | SJÁ ALLAR << sjá allar... og ættu þá að sjá virkar söluumræður.
Um að gera að prufa þetta! Vona að þetta virkji eðlilegar umræður utan söluþráðanna
þetta er allavega klárlega þreytandi, fær alls ekki mitt atkvæði
ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!
Þá er líka auðveldara fyrir þá sem eru að selja að selja hlutina, oft sem maður er að skoða spjall, sér eitthvað sem mann allt í einu langar í en hafði ekki hugmynd um að það væri hægt að kaupa tiltekinn hlut notaðann á svona góðu verði og kaupir. En ef þetta er ekki þarna þá hefði maður hugsanlega ekki rekist á þetta og keypt og seljandi ekki átt eins auðvelt með að selja (vona að einhver skilji mig)
Ég er t.d. mjög oft að skoða sölusíður og rekst á hlut sem mig allt í einu langar í en langaði ekki í 2 mínútum áður en bara afþví ég sá hann, á pening og finnst hann flottur þá kaupi ég hann. (koma stundum svona tímabil þar sem maður bara hugsar ekki heldur framkvæmir)
Og ég er nokkuð viss um að það eru fleyri en ég sem gera þetta, dauðlangar í einhvern hlut akkurat þegar það sé hann auglýstann og kaupir hann.
Ef auglýsingar eru undir "Virkar umræður" þá eru fleyri sem sjá þær og væntanlega auðveldara að selja, líka auðveldara að óska eftir.

Það fer bara eftir því hvort stjórnendur síðunnar vilji hafa þetta virka umræðusíðu, eða láta söluþræði gleypa alla umræðu og eins og ég hef komið inn á áður tel ég að söluþræðir séu ekki góður vettvangur fyrir umræðu.