Vantar sjónvarp

Hér getur þú óskað eftir tölvum og tölvutengdum búnaði.
Svara
Skjámynd

Höfundur
Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 3981
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Staða: Ótengdur

Vantar sjónvarp

Póstur af Klemmi »

Sælir strákar :)

þannig er mál með vexti að ég gaf kærustunni Nintendo Wii í jólagjöf, nema hvað að hún á bara gamalt 20" United túbusjónvarp, ekkert upp á það að klaga nema hvað að það er ekki alveg sama skemmtunin að spila á slíku sjónvarpi :)

Svo ég ætlaði að athuga hvort einhver ætti gamalt ca. 28" túbusjónvarp eða álíka sem honum vantaði að losna við gefins eða fyrir einhverja smápeninga :D

Veit ekki hvort þetta er fullmikil bjartsýni eða ekki, kemur bara í ljós ;)

Vona að þið hafið allir haft það frábært yfir hátíðarnar og hlakka til að heyra í ykkur á þessu nýja flotta ári.

Beztu kveðjur,
Klemmi
www.laptop.is
www.ferdaleit.is

JohnnyX
/dev/null
Póstar: 1442
Skráði sig: Sun 04. Jan 2009 18:25
Staða: Ótengdur

Re: Vantar sjónvarp

Póstur af JohnnyX »

ég er búinn að sjá marga vera að auglýsa á barnalandi túbusjónvörp fyrir slikk ef að þú varst ekki búinn að kíkja þangað :)
Skjámynd

Höfundur
Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 3981
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Staða: Ótengdur

Re: Vantar sjónvarp

Póstur af Klemmi »

JohnnyX skrifaði:ég er búinn að sjá marga vera að auglýsa á barnalandi túbusjónvörp fyrir slikk ef að þú varst ekki búinn að kíkja þangað :)
Búinn að vera að skoða það en virðist flest allt vera farið :P En ég held áfram að fylgjast með og þakka fyrir ábendinguna :)
www.laptop.is
www.ferdaleit.is
Svara