PS3 og HD

Svara

Höfundur
pulsar
has spoken...
Póstar: 170
Skráði sig: Fös 18. Jan 2008 15:21
Staða: Ótengdur

PS3 og HD

Póstur af pulsar »

Vinur minn var að fá ps3 um daginn og ég sá þetta hjá honum og gjörsamlega heillaðist af graffíkini..

En ég er búinn að vera pæla djúpt, hann er með 42" Toshiba tæki sem kostaði eitthvað um 190 kallinn, HD ready.. en ekkert active vision eins og dýru toshiba tækin hafa upp á að bjóða.

En spurningin er.. því sem þú ert með betra sjónvarp, færðu betri graffík? T.d. Philips (Pixel Plus HD) eða eitthvað álíka.. fattiði hvað ég á við?
GA-P35-DS3R | Intel C2D E6850 3.0Ghz | eVGA GF 8800GTS 512mb (G92) | Corsair 4gb ram |
Skjámynd

Gothiatek
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 311
Skráði sig: Fim 15. Maí 2003 18:14
Staðsetning: ptr->curr_loc
Staða: Ótengdur

Re: PS3 og HD

Póstur af Gothiatek »

Ætla reyna svara þér en er þó engin sérfræðingur í þessum málum.

Stutta svarið er nei.

Langa svarið er já. Ef þú værir með 2 sjónvörp hlið við hlið, annað low budget og hitt eitthvað svaka fansí stöff...þá gætiru séð mun og þá væntanlega í bjartari litum..það þarf ekkert endilega að vera betra. En þar sem þessar aðstæður koma ekki upp (þú ert ekki með 2 sjónvörp hlið við hlið í stofunni hjá þér) þá er svarið nei. Hehe.

Þú færð ekkert betri grafík, leikurinn er bara eins og hann er. En sjónvörp eru mismunandi skörp og sýna litbrigði geta verið mismunandi. Flestir leikir í PS3 í dag eru 720 þó það gæti breyst og t.d. er God of War að koma í mars sem ég held ábyggilega að sé 1080. Þannig að þú myndir allavegana vilja sjónvarp með 1080p. Annars er þetta bara hvað þér líst best á sjálfum. Þetta er allt smekksatriði.
pseudo-user on a pseudo-terminal
Skjámynd

ZoRzEr
/dev/null
Póstar: 1385
Skráði sig: Þri 28. Apr 2009 12:11
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: PS3 og HD

Póstur af ZoRzEr »

Eftir að hafa spilað PS3 og Xbox 360 á 50" plasma Samsung series 8 sjónvarp get ég varla litið við 32" sjónvarpinu heima hjá foreldrunum. Ekki það að þú fáir eitthvað betri grafík úr Playstation vélinni sjálfri en auðvitað eru myndgæðin í sjónvarpinu mismunandi eftir gerðum, stærð og framleiðanda.
7700K | Maximus IX Hero | 32GB | 1TB 960 Pro m.2 | GTX 1080 Ti | Corsair AX1200i | LG 34GN850-B
Synology DS1817+ | 20TB
USG | US-8-60W | nanoHD | Flex Mini
Svara