Ég er að vinna í því í rólegheitunum að setja saman nýju tölvuna, er með 700w Tagan BZ modular aflgjafa og það eru tvær snúrur sem eru til að tengja við skjákort, báðar eru með eitt 6 pinna tengi og eitt 6+2 tengi. Svo er ég með hið riiisavaxna ofurkort ATI Radeon HD5850 og á því eru 2 svona 6 pinna tengi fyrir power, á ég bara að nota 6 pinna tengin á sitthvorri power snúrunni eða virkar ekki alveg að nota bara aðra snúruna og tengja 6 pinna tengið í eitt og 6+2 pinna tengið í hitt en bara sleppa þar +2? Tel frekar líklegt að ég geti notað eina snúru þannig en alltaf gott að vera 100% viss, stendur amk. ekki í manual
Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]
er með svipað setup á pcix snúrunum hjá mér og gtx 285 sc kort sem þarf einnig 40 amp. ég tengdi bara bæði aðalplöggin á þessum 2 snúrum. better be safe than sorry.
i9 10900k - asus maximus formula - RTX 3090 asus rog strix oc - TridentZ 32gb ddr4 4000 cl17 - 2tb 970 evo plus - phanteks enthoo 719 - be quiet dp 1200w - Full custom loop 2x360 2x480 2xd5 - Samsung odyssey G7
Mig minnir að 6 pinna tengillinn gefi 75W og raufin gefur 75W og ef ég man rétt þá er kortið að taka eitthvað yfir 200W full load, þannig það er betra að vera safe og tengja báða.