Ég er búinn að eiga z1 í tæplega 20 mánuði og fyrir svona hálfu ári þá fór hún að tvíklikka við eitt klikk og þá hætti ég eiginlega alveg í photoshop og svoleiðis forritum, fattaði það ekki fyrr en núna.
G5 í 3 ár, það byrjaði einhvað vesen fyrir stuttu sem gengur þanneg fyrir sig að hún aftengist og tengist síðan aftur, og það heyrist svnoa pirrandi usb hljóð..
ASRock-P43D2. Intel core 2 duo e7400(3ghz, 3mb cache). Mushkin(4gb DDR2 800mhz). Force3D ATI HD5770(1GB ddr5, 4800mhz memory clock). HDD(500GB 7200rpm 16mb cache, 160GB 5400rpm, 80gb flakkari. Power supply: Tacens 520w. Case: Tacens Victoria II.
CokeTheCola skrifaði:G5 í 3 ár, það byrjaði einhvað vesen fyrir stuttu sem gengur þanneg fyrir sig að hún aftengist og tengist síðan aftur, og það heyrist svnoa pirrandi usb hljóð..
Var með slíka á seinustu tölvu, og man eftir þessu aftengingar vandamáli, var að gera mann gráhærðan.
"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."
MX518 sem að er keypt 22 apríl 2005
stórkostlega frábær mús, eini gallin er að hún er (einsog einvher annar sagði) orðin svo gömul að hún er farin að flagna.
en ég á líka 1 nýja svoleiðis sem að ég tek í notkun þegar að þessi fer að bila.
ég á MX518 búinn að eiga hana í 7 mánuði, er mjöööööög sáttur við hana, skoðaði margar mýs en þessi er svo þægileg. mér er sama þó að það séu til mýs með betri svörunartíma(venjuleg manneskja getur ekki greint muninn hvort sem er)
Ég er með mx518 sem fór að vera með leiðindi örugglega ári eftir að ég fékk hana. Keypti hana 2006 og hún fór að koma með leiðinlegt hljóð í klikkinu á vinstri músartakkanum og stundum virtist takkinn festast aðeins. Þetta kom og fór og ég hef ekki orðið var við þetta núna í allavega ár. Sumarið 2008 fór svo að koma sambandsleysi í snúruna, getur samt hafa verið eftir slæma meðferð. Sambandsleysið hefur versnað sífellt síðan og hún er nær ónothæf núna.
Er mikið að spá hvaða mús ég á að fá mér. Vil fá ergonomic 5 takka mús og ekkert annað. Var mjög ánægður með mx518 upp á takka og þægindi en vegna fyrri reynslu veit ég ekki hvort ég sé tilbúinn að fá mér aðra slíka. Ekki margt annað sem kemur þá til greina fyrir utan Logitech G500 eða Microsoft Intellimouse Explorer 4.0, er tortrygginn við a kaupa mýs frá no-name brands sem margir eru að selja hérna.. Sýnist á reviews að G500 muni pirra mig, þá er bara Intellimouse Explorer 4.0, hefur einhver reynslu af henni sem hann vill deila eða bera saman við aðrar mýs? Kosturinn er líka að Intellimouse Explorer 4.0 og mx518 eru báðar ódýrar, hef ekki áhuga á að eyða yfir 10.000 í mús.
Ég er með steelseries Ikari laser mús. Hún er búin að vera algjört vesen, fyrsta músin sem ég fékk varð sambandslaus og sú seinni ákvað að hún nennti ekki að virka lengur en 3 mánuði. Er á mús nr 3 núna. Mæli ekki með þeim.
Var í Tölvuvirkni áðan og prufaði að fara í tölvurnar þarna niðurfrá. Þar voru þeir m.a. með MX518 og einhverja Gigabyte mús sem var alveg heví þægileg.
Sýnist á öllu að MX518 verði fyrir valinu.
Eða eru til einhverjar gæða þráðlausar mýs hér á landi?