Tolla- og sendingagjöld
-
Höfundur - Vaktari
- Póstar: 2192
- Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
- Staðsetning: /dev/random
- Staða: Ótengdur
Tolla- og sendingagjöld
Daginn kollegar
Nú ætla ég að fara að kaupa mer fartölvu fyrir háskólann í haust og er að spá í að kaupa mér hana af Amazon. Það sem ég er að velta fyrir mér er hvort þið vitið nokkuð hvort reiknirinn á http://www.shopusa.is taki vsk inn í heildarverðið hjá sér.
Og enn betra væri ef að einhver veit hver öll þessi gjöld eru sem eru lögð ofan á tölvubúnaðinn.
Ég setti í reiknirinn vöru sem kostar 579,99$ og þá kemur Samtals gjöld kr: 43.082 og heildarverðið er þá kr: 118.237.
Vona að einhver geti svarað þessu fyrir mig

Re: Tolla- og sendingagjöld
Já, reiknivélin hjá Shopusa.is sýnir ÖLL gjöld. Þessi gjöld eru væntanlega 24,5% vaskur og svo tollmeðferðargjöld. Einverstaðar heyrði ég að tölvubúnaður væri tollfrjáls. Svo eru inní þessu vörugjöld hugsa ég, nema tölvubúnaður beri þau ekki ..... er ekki viss.
En þú getur samt verið nokkuð viss um að það mun ekki bætast neinn kostnaður ofan á það sem þú sérð í reiknivélinni þeirra.
En þú getur samt verið nokkuð viss um að það mun ekki bætast neinn kostnaður ofan á það sem þú sérð í reiknivélinni þeirra.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 1478
- Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
- Staðsetning: Reykjavík, Iceland
- Staða: Ótengdur
Re: Tolla- og sendingagjöld
hagur skrifaði:Já, reiknivélin hjá Shopusa.is sýnir ÖLL gjöld. Þessi gjöld eru væntanlega 24,5% vaskur og svo tollmeðferðargjöld. Einverstaðar heyrði ég að tölvubúnaður væri tollfrjáls. Svo eru inní þessu vörugjöld hugsa ég, nema tölvubúnaður beri þau ekki ..... er ekki viss.
En þú getur samt verið nokkuð viss um að það mun ekki bætast neinn kostnaður ofan á það sem þú sérð í reiknivélinni þeirra.
Tölvur og tölvubúnaður inniheldur engin vörugjöld né tolla. Þannig að það leggst bara á þetta vsk ( sem leggst á eftir að flutningur+þóknun ShopUSA hefur verið bætt við verðið ). Ef þú ert að spá í að jafnvel splæsa þér til U.S.A og kaupa vél þá geturðu bætt bara við VSKi það er það eina sem þú munt þurfa að greiða þegar þú kemur til Íslands ( ef þú vilt gera þetta algjörlega löglega )
Re: Tolla- og sendingagjöld
http://www.tollur.is/upload/files/calc_netverslun(20).htm
Fínt að nota þessa reiknivél ef þú hefur sendingarkostnaðinn
Fínt að nota þessa reiknivél ef þú hefur sendingarkostnaðinn
Gigabyte GA-P35-DS3L - E2180 @ 2.00 GHz - 2x 1GB GeIL DDR2-800MHz - ATI Radeon R4650 - Samsung Syncmaster 203b - WD 640GB-sata - 2x200gb-ide - Samsung Superwrite Master - Logitech Elite - Logitech G500 mús - Logitech Rumblepad 2
-
- Kóngur
- Póstar: 5917
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Tolla- og sendingagjöld
VSK reiknast af verði + flutningskostnaði...
-
Höfundur - Vaktari
- Póstar: 2192
- Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
- Staðsetning: /dev/random
- Staða: Ótengdur
Re: Tolla- og sendingagjöld
En nú er málið það að familían á fyrirtæki, þarf ég þá nokkuð að greiða vaskinn?
Re: Tolla- og sendingagjöld
coldcut skrifaði:En nú er málið það að familían á fyrirtæki, þarf ég þá nokkuð að greiða vaskinn?
Þarft að borga vsk já.
Re: Tolla- og sendingagjöld
coldcut skrifaði:En nú er málið það að familían á fyrirtæki, þarf ég þá nokkuð að greiða vaskinn?
Ef að familíufyrirtækið getur pantað tölvuna á sína kennitölu þá borgar familíufyrirtækið það sama og fyrirtæki í vsk
Modus ponens
-
- Bara að hanga
- Póstar: 1519
- Skráði sig: Þri 11. Nóv 2008 14:58
- Staðsetning: Á sporbaug sólar
- Staða: Ótengdur
Re: Tolla- og sendingagjöld
hagur skrifaði:Já, reiknivélin hjá Shopusa.is sýnir ÖLL gjöld. Þessi gjöld eru væntanlega 24,5% vaskur og svo tollmeðferðargjöld. Einverstaðar heyrði ég að tölvubúnaður væri tollfrjáls. Svo eru inní þessu vörugjöld hugsa ég, nema tölvubúnaður beri þau ekki ..... er ekki viss.
En þú getur samt verið nokkuð viss um að það mun ekki bætast neinn kostnaður ofan á það sem þú sérð í reiknivélinni þeirra.
tölvubúnaður er ekki tollfrjáls
CPU: Intel i9 9900K | MB: Asus ROG Maximus XI Hero (Z390) | GPU: Asus TUF RTX 3080 OC 10gb | Case: Corsair Carbide 400c | PSU: Corsair RM850x 850W | RAM: Corsair Vengeance RGB Pro DDR4 3200mhz 32gb |Storage: 1x Samsung 1tb 970 Evo Plus SSD, 3x Samsung 500gb 970 Evo Plus SSD RAID-0 | OS: Windows 10 Enterprise E5 64bit
Re: Tolla- og sendingagjöld
Gúrú skrifaði:coldcut skrifaði:En nú er málið það að familían á fyrirtæki, þarf ég þá nokkuð að greiða vaskinn?
Ef að familíufyrirtækið getur pantað tölvuna á sína kennitölu þá borgar familíufyrirtækið það sama og fyrirtæki í vsk
Fyrirtæki greiða sama virðisauka og allir aðrir, ég hef allavega ekki heyrt um nein sér vsk. þrep fyrir fyrirtæki. Á móti kemur að fyrirtæki fá endurgreiddan vsk. af vörum sem keyptar eru og notaðar til reksturs. Coldcut gæti hugsanlega skráð tölvuna á fyrirtækið, en þá held ég að hann væri í raun að fremja skattsvik.
uuuu, víst?benzmann skrifaði:tölvubúnaður er ekki tollfrjáls
Maður borgar allavega hvorki tollgjöld né vörugjöld af tölvubúnaði, heldur bara vsk. Endilega komdu með tengil á aðrar upplýsingar ef að þú ætlar áfram að halda þessu fram.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 1478
- Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
- Staðsetning: Reykjavík, Iceland
- Staða: Ótengdur
Re: Tolla- og sendingagjöld
MezzUp skrifaði:Fyrirtæki greiða sama virðisauka og allir aðrir, ég hef allavega ekki heyrt um nein sér vsk. þrep fyrir fyrirtæki. Á móti kemur að fyrirtæki fá endurgreiddan vsk. af vörum sem keyptar eru og notaðar til reksturs. Coldcut gæti hugsanlega skráð tölvuna á fyrirtækið, en þá held ég að hann væri í raun að fremja skattsvik.
Fyrirtækið þarf að kaupa tölvuna ( og greiða hana ) og hlutirnn ( í þessu tilviki tölvan ) á að vera notuð í reksturinn. Og fyrirtækið þarf jafnframt að vera í virðisaukaskyldum rekstri ( og þar með VSK númer ) og þá getur fyrirtækið talið VSKinn fram sem Innskatt og fengið VSKinn endurgreiddan í næsta uppgjöri ( þarf samt að leggja út fyrir honum í byrjun ).
Vona að þetta skýri þetta út aðeins fyrir þér, þetta er ekki ætlað til þess að fyrirtæki geti verið VSK frjáls Heldur að þau séu eingöngu að greiða virðisaukann á vörunum/þjónustunni sem þau selja og eins og MezzUp segir að þá yrði það skattsvik ef það sé ekki notað í reksturinn ( sem gæti orðið erfitt að sanna að sé ekki samt )
MezzUp skrifaði:uuuu, víst?benzmann skrifaði:tölvubúnaður er ekki tollfrjáls
Maður borgar allavega hvorki tollgjöld né vörugjöld af tölvubúnaði, heldur bara vsk. Endilega komdu með tengil á aðrar upplýsingar ef að þú ætlar áfram að halda þessu fram.
Bara taka undir með MezzUp. Tölvubúnaður er með 0% tolli og 0% vörugjöldum eingöngu VSKi ( Það eru samt alveg undantekningar, og það fer eftir skilgreingu þinni á tölvubúnaði hvort að "allur2 tölvubúnaður sé tollfrjáls. En hins vegar tölvur o.s.frv eru tollfrjálsar.