Heyriði held að ég sé með einhverskonar vírus :S eða frekar adware eða spyware, alltaf á sona 5 min fresti þá kemur popup flood (50 gluggar) allir um eikkad klám, þá breytist Home Page (byrjunarsíðan) yfir í http://teen-biz.com/ ég keyrði adaware það gerði ekkert er eikkad fleira sem ég get gert ?
Þetta er komið, keyrði Spybot, svo tók ég eitt út beið i 5 mín þá kom allt aftur svo loksins eyddi ég út einhverju sem þykktist vera kazaa þá virkaði þetta þótt ég hafi ALDREI! innstallað kazaa í þessa tölvu og meira að segja er hún nýformöttuð
1. Keyri Spybot - fyrir forrita check
2. Keyri Ad-Aware - Fyrir ítarlegri skönnun
3. Keyri House Call eða svipaðan online-virusskanna(er ekki með virusvarnarforrit)
Voffinn, þú getur alveg tekið þessa "microsoft searce síðu" úr í settings!
kemur aldrei hjá mér í IE og flestar síður rederast betur í IE en öðrum browserum.. það eina sem ég veit að er betra í IE, iCave getur örugglega sagt eitthvað meira
Voffi internet explorer 6 er gamall og var gefin útá þeim tíma sem þessir snilldar browser frá öðrum aðilum voru flestir ekki með pop-up blockers. Microsoft hafa svo hætt að uppfæra nema critical uppfærslur fyrir IE því þeir vilja að fólk noti MSN explorer 8+ enda er MSN rekið með halla ( fyrir utan hagnað nú á þessum ársfjórðungi? )
En að installa plug-in tekur mun styttri tíma heldur en að setja inn nýjan browser so what's your point?
Ef þið viljið t.d. nota g leitarefni til að leita með google að leitarefni þá er það ekkert mál svo ef þið viljið gera l leitarefni fyrir leit.is er það líka hægt bara fikta með þetta.
Hvað segiði um smá keppni, ég fæ 50krónur fyrir hvert einstakt spyware sem ég finn fyrir IE, og þið 50krónur fyrir hvert einstakt spyware sem þið finnið í Firebird.
Og í sambandi við það að sumar síður renderast illa í öðru en IE, þá er það yfirleitt bara sloppy kóði, og eru MS menn þekktir fyrir það að fara eftir stöðlum í einu og öllu.
(ég nenni ekki að fara í fleim stríð við þig og icave, er bara svona að benda á þetta )
sko.. málið er að flestir eru að nota IE, og þessvegna eru lang flestir að gera spyware fyrir IE..
ef fólk fæir að nota Opera eða Mozilla, mikið meira en IE, þá færu sennilega flestir að gera spyware sem sleppur í gegnum það..
og sambandi við "sloppy kóða".. þá er IE ekki bara að reder'a "sloppy kóða síður" betri..
Það að það sé gert mikið spyware fyrir einhvern browser þýðir ekki að fólk sé að fái það allt, það er notendanum að kenna í flestum tilfellum.
Internet explorer er lélegur í samanburði við Mozzilla, Opera í hefðbundnri vefskoðun en á mörgum sviðum er IE betri, sérstaklega það að hann sé innbyggður í stýrikerfið og virkar sem file manager án þess að skipta um glugga.
Er það ekki bara afsætt hugtak? Ég meina, meðan við erum ekki að tala um að hún sé að rendera síðurnar það vitlaust að þær eru alveg útúr kortinu...þá er hvaða rendering alveg afsætt hugtak :>
Sloppy kóði = Eitthvað sem ekki lítur alveg eins út í öllum browserum, nema fontar.
gumol já, mas mun eðlilegara að hann hefði verið að spurja um ie6 plug-ins þar sem það var búið að tala um IE6 plug-ins oftar en einusinni á þessum þræði, ekki mikið talað um firebird plug-ins, einungis að þetta væri innbyggt í firebird...