Daginn
Ég er að spá í að fjárfesta í sveiflusjá en veit ekki alveg hvernig. Veit ekki alveg að hverju ég á að eltast við.
Helst er ég að velta fyrir mér sveiflusjám sem ég tengi við ferðavélina mína eða litlu handhægutæki sem hægt er að tengja við tölvu. Þessar sem aðeins er hægt að nota við tölvu eru yfirleitt nákvæmari en hinar handhægu, held ég, en aftur á móti eru þær ekki handhægar. Hversu oft þarf maður tveggjarása sveiflusjá sem og tæki sem getur mælt hærra en 10Mhz ?
Það væri náttúrulega flott að vera með sér tæki, gamla, en þær eru svo stórar og dýrar þrátt fyrir að hafa ábyggilega mun nákvæmari og betri tækni.
Ég hef í raun ekki mikil not fyrir svona tæki núna en maður veit aldrei hverju ég mun taka upp á í framtíðinni. Hefði nú reyndar verið ágætt að hafa svona tæki til að athuga hvort hraðamælapungurinn virkaði í bílnum mínum eða hvort það væri eitthvað annað sem var bilað Ég á nú þegar sveiflugjafa og hann er nú frekar tilgangslaus án sveiflusjáarinnar.
Er dálítið heitur fyrir þessari
Einhver með reynslu af sveiflusjám ?
-
Höfundur - Nörd
- Póstar: 147
- Skráði sig: Sun 15. Jún 2003 18:00
- Staðsetning: Hafnarfirði
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Einhver með reynslu af sveiflusjám ?
Ef það virkar... ekki laga það !
Re: Einhver með reynslu af sveiflusjám ?
Ég var einmitt að skoða þetta fyrir nokkru síðan. Rakst á þessa og leist nokkuð vel á en ákvað að stökkva ekki á hana.
Það væri rosalega gaman að heyra frá einhverjum hobbíista sem hefur náð að verða sér úti um sveiflusjá hvernig sá hinn sami gerði það. Án efa margir forvitnir.
Svo er spurning um að ef margir hafa áhuga á þessum litlu að taka sig saman um pöntunina til að spara flutningskostnað.
Það væri rosalega gaman að heyra frá einhverjum hobbíista sem hefur náð að verða sér úti um sveiflusjá hvernig sá hinn sami gerði það. Án efa margir forvitnir.
Svo er spurning um að ef margir hafa áhuga á þessum litlu að taka sig saman um pöntunina til að spara flutningskostnað.
-
Höfundur - Nörd
- Póstar: 147
- Skráði sig: Sun 15. Jún 2003 18:00
- Staðsetning: Hafnarfirði
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Einhver með reynslu af sveiflusjám ?
dori skrifaði:Svo er spurning um að ef margir hafa áhuga á þessum litlu að taka sig saman um pöntunina til að spara flutningskostnað.
Það mætti alveg skoða það
Ef það virkar... ekki laga það !
Re: Einhver með reynslu af sveiflusjám ?
Glazier skrifaði:hvað er þetta ?
Tæki sem að mælir held ég sveiflur á bylgjulengdum af einhverri sort, t.d. rafmagns eða hljóðs.
Nenni ekki einu sinni að googlea það en mig minnir þetta allavegana.
Modus ponens
-
- Besserwisser
- Póstar: 3963
- Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
- Staðsetning: Seltjarnarnes
- Staða: Ótengdur
Re: Einhver með reynslu af sveiflusjám ?
Gætið kíkt á þetta: http://www.picotech.com/picoscope-oscil ... tware.html
"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."
-
Höfundur - Nörd
- Póstar: 147
- Skráði sig: Sun 15. Jún 2003 18:00
- Staðsetning: Hafnarfirði
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Einhver með reynslu af sveiflusjám ?
Ég notaði þetta dálítið í verklegri eðslifræði í menntaskóla. Þá vorum við að skoða hvernig hvernig hin ýmsu kerfi hegða en fórum nú ekkert sérstaklega djúpt í það þar.
Ég hefði getað notað þetta um daginn til að sjá hvort hraðamælapungurinn í bílnum mínum væri að gefa merki eða ekki. Hann vinnur þannig að hann gefur púlsa og því styttra millibil, hærri tíðni, því hraðar sýnir mælirinn. Það er oft hægt að nota svona tæki til bilanaleitar, bílum t.d., því allt er orðið svo rafmagns- og tölvustýrt.
P.s. svo er bara svo töff að hafa sveiflusjá á AVO-græjunni sinni... ekki bara spennu, straum og viðnám. Er bara svo mikill græju karl
Ég hefði getað notað þetta um daginn til að sjá hvort hraðamælapungurinn í bílnum mínum væri að gefa merki eða ekki. Hann vinnur þannig að hann gefur púlsa og því styttra millibil, hærri tíðni, því hraðar sýnir mælirinn. Það er oft hægt að nota svona tæki til bilanaleitar, bílum t.d., því allt er orðið svo rafmagns- og tölvustýrt.
P.s. svo er bara svo töff að hafa sveiflusjá á AVO-græjunni sinni... ekki bara spennu, straum og viðnám. Er bara svo mikill græju karl
Ef það virkar... ekki laga það !
Re: Einhver með reynslu af sveiflusjám ?
hvað er AVO græja ?
-
- Stjórnandi
- Póstar: 2569
- Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
- Staðsetning: Á þessu spjalli
- Staða: Ótengdur
Re: Einhver með reynslu af sveiflusjám ?
bridde skrifaði:hvað er AVO græja ?
græja sem mælir amps, volts og ohms..