Er með Sjónvarp tengt í gegnum S-VHS, með nVIEW clone. það er 1 analog tengi og eitt DVI tengi á skjákortinu. Er með analog millistikki í DVI tenginu svo ég er með 2 tengda analog skjái + sjónvarp.
Til þess að fá nVIEW til að virka með sjónvarpinu í clone mode þarf ég að slökkva á skjánum sem er tengdur í DVI tengið, þegar ég þarf að nota skjáinn sem er tengdur í DVI tengið verð ég að slökkva á sjónvarpinu.
Kann einhver leið til að komast hjá þessu einhvernvegin eða eru skjákortin ekki fær um þetta > eina lausnin að vera með 2 skjákort?
Ég held að það sé þannig að DVI tengið og sjónvarpstengið sé í raun sama tengið, þú switchar bara á milli.
Ég var í svaka vandræðum þegar ég var að tengja tölvuna við sjónvarpið og mig minnir að það hafi endað svona.