vantar upplýsingar um aflgjafa [LEYST!]

Svara

Höfundur
coldcut
Vaktari
Póstar: 2192
Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
Staðsetning: /dev/random
Staða: Ótengdur

vantar upplýsingar um aflgjafa [LEYST!]

Póstur af coldcut »

Sælir

Heyriði ég er búinn að vera að íhuga að fara að yfirklukka tölvuna mína en er í veseni vegna þess að ég veit ekki hvað aflgjafinn minn er öflugur. Þegar ég keypti setupið, í undirskrift, þá var ég ekki viss hvort aflgjafinn mundi duga en Tölvutækni menn sögðu að hann mundi gera það svo ég keypti ekkert nýjan aflgjafa. En asninn sem ég er þá gleymdi ég að spyrja þá hvað aflgjafinn væri öflugur.

En nú er liðið eitt ár og 2 mánuðir síðan og ég þori eiginlega ekki að vera að fara útí einhverja yfirklukkun, örgjörvann í 3ghz, nema vita nákvæmlega hvernig aflgjafa ég er með í höndunum.
Þannig að ég var að spá hvort það væri einhver leið að finna út hvernig aflgjafa maður er með, með einhverju forriti þ.e.a.s., því að það eina sem er sjáanlegt á honum (aftaná og inní) er Turbo Cool og svo eitthvað dæmi. Ætla að setja inn myndir af honum sem ég fann á netinu, þannig að ef einhver kannast við hann þá væri það frábært.

Mynd
Hérna sést undir hann og eins og sést þá er hann gegnsær
Mynd
Hérna sést aftan á hann. Grænn I/0 takki, blátt led ljós í viftu og hraðastýring á aflgjafaviftunni.
Last edited by coldcut on Lau 07. Mar 2009 20:52, edited 1 time in total.

Cikster
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 383
Skráði sig: Lau 11. Mar 2006 13:02
Staða: Ótengdur

Re: vantar upplýsingar um aflgjafa

Póstur af Cikster »

Fljótlegasta leiðin fyrir þig væri að hringja í þá í Tölvutækni og spurja þá hvað þessi aflgjafi væri öflugur.

Hin leiðin er að losa þessar 4 skrúfur sem halda honum og skoða "ofan" á hann þar sem límmiðinn með öllum tölunum er örugglega falinn.

Höfundur
coldcut
Vaktari
Póstar: 2192
Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
Staðsetning: /dev/random
Staða: Ótengdur

Re: vantar upplýsingar um aflgjafa

Póstur af coldcut »

já...en heldurðu að þeir muni það í Tölvutækni? ég meina þeir hafa örugglega sett saman svona 500 tölvur síðan þá =/

vill helst ekki taka hann úr sko, þar sem ég er með tíu þumalputta og mundi pottþétt skemma eitthvað :roll:
...það eina sem ég þori að fikta í inní tölvunum eru hörðu diskarnir :P
Skjámynd

Glazier
BMW
Póstar: 2511
Skráði sig: Fös 30. Jan 2009 22:20
Staðsetning: Mosó
Staða: Ótengdur

Re: vantar upplýsingar um aflgjafa

Póstur af Glazier »

Ef þú sérð engan miða utan á honum þá er hann líklegast ofaná honum eins og eitthver sagði en annars er alls ekkert mál að losa þessar 4 skrúfur sko passaðu bara að halda undir aflgjafann þegar skrúfurnar losna og skoðaðu svo miðann og þá ættiru að sjá hvað hann er öflugur en mundu bara að þú átt ekki að þurfa að aftengja allar snúrurnar bara ekki taka aflgjafann langt frá tölvunni (ekki lengra en snúrurnar ná) og lestu svo á miðann ;)
Tölvan mín er ekki lengur töff.

Höfundur
coldcut
Vaktari
Póstar: 2192
Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
Staðsetning: /dev/random
Staða: Ótengdur

Re: vantar upplýsingar um aflgjafa [LEYST!]

Póstur af coldcut »

ég skrúfaði hann úr og þetta er 500W Aspire Atx power supply.
Svara