Viltu koma gamla aflgjafanum inní skáp í notkun?

Gamli aflgjafinn er kannski sitjandi inni í skáp að safna ryki,en núna geturu tekið græjurnar inn úr bílnum (sem dæmi, Bassaboxið og magnarann) Hent því inn og tengt það við aflgjafann til að gefa því rafmagn.
Málið er það,að ekki allir vita að aflgjafar breyta orku úr 230/240v (voltum) yfir í 1-12v fyrir tölvurnar okkar og stóri kosturinn við þetta er sá að þú getur keyrt græjurnar úr bílnum á svona aflgjafa vegna þess að jú,þær notast við þessi 12 volt.
Aðalsnúrurnar í venjulegum aflgjafa eru eftirfarandi:
Svartar = Jörð (Jarðtenging)
Rauðar = 5 volt
Gular = 12 volt
svo er alltaf Ein græn svoleiðis snúra, ef hún er tengd við eina svarta (jörð) þá fer aflgjafinn í gang.
Tengingin fer svona fram:
Þú aðskilur allar snúrurnar snöggvast
eins og ég skrifaði að ofan,svartar,rauðar & gular,en þessar rauðu verða ekki notaðar vegna þess að þær senda ey frá sér nema ein 5 volt
Þú byrjar á því að taka þessa einstöku grænu snúru,snyrtir endann á henni (tekur vírklippur tekur utan af þræðinu (sirka 1cm) og gerir sama með eina svarta sem þýðir það að þegar þú stingur aflgjafanum í samband og kveikir (ýtir á O/I takkann) þá fer hann í gang og verður í gangi,svo ferðu að sortera hinar snúrurnar,en gott er að hafa 2 af hverju fyrir magnarann eða semsagt 2 gular og 2 svartar sem þýðir að magnarinn fær betra samband (best er reyndar að nota flestallar,en það er bara tímafrekt) en já,þú setur þessar gulu í "12v+" (batterístengi/"Plús Tengi),en þú skrúfar skrúfuna ekki fasta alveg strax,heldur reddaru þér litlum snúruspotta og snyrtir,en hann verður tengdur í "remote" tengið aftan á magnaranum,hann fer líka í "plústengið" sem þýðir að magnarinn fer í samband þegar þú kveikir á aflgjafanum. svo ferðu í að tengja groundið (en það er oft merkt sem "-",ground eða "grnd" enn og aftur minni ég á að það eru svörtu snúrurnar.
svo geriru restina bara eins og þú vilt....sumir festa magnarann á boxið,sumir hafa magnarann sér...ég reyndar festi hann bara við boxið....
en já,uppá að tengja magnarann í græjur (e. tölvu eða mp3 spilara) þá bara reddaru þér Aux í Jack 3.5mm breytir,en passaðu þig á því að lækka Volume-ið á tölvunni alveg alveg alveg niður áður en þú tengir þetta vegna þess að þú vilt ekki sprengja neitt með því að gleyma einni stillingu...er það nokkuð?.
En Annars,Leiðibeiningar skrifaðar af "mér"



*btw Remote-ið tengist við Plúsinn með "lúppu" eða litlum snúruspotta,ef ég tók það ekki framm fyrr*
*4.September kl. 22:02*
2 Myndir úr herberginu hjá mér:


**afritaði þráðinn af thevikingbay,þar sem ég bjó hann til tel ég mig hafa fullann rétt á því**