ég sá þessa 19" Medion skjái til sölu í BT í gær á tæp 20þús, á einhver hérna svona skjá, er þetta eitthvað junk eða er hægt að nota þetta??
Ég hringdi til að fá frekari uppl um þetta en eina sem þeir gátu sagt mér um skjáinn var að hann væri kallaður silver
Svo er Task með einhverja Samtron á tæp 22 þús, veit einhver hvernig þeir eru?
Ég hef nú ekki mikið fyglst með verðþróunninni á skjám, en ég þetta er í ódýrari kantinum.
Pérsónulega þá myndi ég ekki kaupa svona skjá, uppá endinguna (óþolandi ef skjárinn bilar!) og svo er þetta öruglega ekki eins gott fyrir augun!
En ef hann styður ágæta upplausn í 75-85hz (ég er með HP 19" sem meikar 1600x1200 í 75hz fínt, en það er Diamontron (Mitshubishi)) þá dugar hann kannski alveg. Checkaðu á því!
CTX skjáir eru mun betri en þessi, sérstaklega proffessional línan. ER búinn að vera með pr705f frá CTX núna í 2 ár, og hann meikar margt, og er rosalega skýr, að vísu hefur snúran legið svo illa hjá mér (90° beygja á einum stað) að ég er búinn að eyðileggja hana á því og ef ég snerti hana verður allt fjólublátt.
CTX er líka góður fyrir ketti, var með einn í pössun um daginn og hann var voða hrifinn af því að liggja ofan á skjánum.
°°gummi°° skrifaði:ég sá þessa 19" Medion skjái til sölu í BT í gær á tæp 20þús, á einhver hérna svona skjá, er þetta eitthvað junk eða er hægt að nota þetta??
Ég hringdi til að fá frekari uppl um þetta en eina sem þeir gátu sagt mér um skjáinn var að hann væri kallaður silver
Svo er Task með einhverja Samtron á tæp 22 þús, veit einhver hvernig þeir eru?
Mér hefur aldrei litist neitt á Medion, hvað þá einhvað frá BT.
Haffi skrifaði:Ég get ekki farið undir 100hz þá verður mér illt í augunum.
Ég er alltaf í 1600x1200 og 100hz
Furðulegt.
Ég hef verið í tölvum í rúm 10 ár, og alltaf hef ég notað 60hz.
Ef ég fer upp í hærra, þá verð ég dizzy og finnst óþægilegt að lesa af skjánum.
Strákar þið ættuð fræðilega séð að verða "dizzy" ef þið eruð með lága hz tölu. Auk þess ef þið eruð að nota svona lágt hz þá hafið þið ekkert að gera með marga FPS eins og sumir eru að halda fram að skipti öllu máli ( CS menn ) því skjárinn ykkar er ekki fær um að sýna rosalega marga ramma.
Ef ég man þetta rétt (sem ég geri örugglega ekki) þá geturðu aldrei farið yfir refresh Hz í fps. Því það sem refresh Hz standa fyrir er í rauninni bara hversu oft skjárinn er teiknaður á sekúndu ( hz = s^-1 ) og en ef FPSið fer hærra þá gefur það auga leið að það mun lítið bæta það sem sést á skjánum.
Fox: (án þess að vilja á nokkurn hátt gera grín að þér ) þá kemur mér það ekki á óvart að þú viljir helst nota 60hz.
Engu að síður, því hærra refresh rate, því skarpari mynd og betur farið með augun. En til að fara vel með augun fá menn sér augljóslega LCD skjái.
Sumir eru bara svona viðkvæmir fyrir tiftíðni. Ég tek ekkert eftir því hvort skjárinn er í 60 eða 100Hz. Aðrir fá hausverk um leið og tiftíðnin fer niðurfyrir 100.
Annars er það misjafnt með þessa ódýru skjái. Sumir eru með aðstöðu þar sem ekki er mikil hætta á glampa og þá koma þeir vel til greina. Annars er ég hrifnastur af Diamondtron Túpu skjám en mér sýnist þeir ekki fara niður fyrir 40k.
IceCaveman skrifaði:Strákar þið ættuð fræðilega séð að verða "dizzy" ef þið eruð með lága hz tölu. Auk þess ef þið eruð að nota svona lágt hz þá hafið þið ekkert að gera með marga FPS eins og sumir eru að halda fram að skipti öllu máli ( CS menn ) því skjárinn ykkar er ekki fær um að sýna rosalega marga ramma.
Ég var áður fyrr mjög mikið í þrívíddarforritun, og reglan þar var sú að FPS var sama og Hz á skjánum.
Það var hægt að vinna sig frammhjá þessu og auka fps í forritunum sínum, en það tók extra cpu power, og ég sá ekki tilgang með því.
Haffi skrifaði:Ég get ekki farið undir 100hz þá verður mér illt í augunum.
Ég er alltaf í 1600x1200 og 100hz
Furðulegt.
Ég hef verið í tölvum í rúm 10 ár, og alltaf hef ég notað 60hz.
Ef ég fer upp í hærra, þá verð ég dizzy og finnst óþægilegt að lesa af skjánum.
Úff ef ég er með 60hz þá verður mér bara virkilega illt í augunum
Ég er t.d. með alla leiki í 100-120hz og maxfps cappaði í 125.
Ryzen 7 3700x@4.5ghz - ASRock X570 Steel Legend - 32gb G.Skill Trident Z @ 3600mhz/Cl15 - PowerColor Radeon RX 6900XT Red Devil 16GB /- Be quiet! Straight Power 11 Platinum 1000W - Phanteks Eclipse P400S
NTSC er 29.97 fps og PAL 25 fps. svo er film (einnig kallað NTSC film) 23.97 fps. jú það er betra að hafa sjónvarpið í 100hz, því annars deyrðu í augunum.