Meh, væri til í að sjá þessa mynd en mun ekki borga mig inn á hana. No Country for Old Men átti samt sín fern verðlaun skilið, topp mynd í alla staði. Juno var líka mjög góð mynd, hefði viljað sjá Ellen Page fá Óskarinn.
"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."
Hvaða myndir borgar þú þig þá eiginlega á inná? Því There Will Be Blood are betri en 95% af þessu rusli sem kemur í bíó, enda hefur hún fengið fjölda verðlauna.
Mér fannst hún persónulega örlítið betri en No Country For Old Men, en báðar eru þær frábærar.
EDIT: Og ef þú hefur ekki séð There Will Be Blood og Daniel Day-Lewis þar af leiðandi í hlutverki Daniel Plainview, þá hefuru ekki rétt til þess að segja hvort Ellen Paige hefði átt að fá óskarinn eða ekki.
Svo getur vel verið að þér finnist hún hafa verið betri í Juno en Daniel í TWBL eftir að þú hefur borið hana augum, en þú verður að hafa kynnt þér alla möguleikana áður en þú framkvæmir einhvern samanburð.
Þetta er svona gaur sem velur sér handrit og vinnur óskarinn..
Eins og sést á imdb prófílnum hans þá er hann nú ekki búinn að leika í neitt svakalega mörgum myndum.
Erm, seinast þegar ég vissi þá er Daniel Day Lewis karlmaður og þar sem Ellen Page er kvenmaður þá eru þau ekki í sama flokk Og það eru MJÖG fáar (lesist 1-2 á ári) myndir sem ég borga mig inná, sæki á netið eða fæ gefins DVD. Trailerinn fyrir There Will Be Blood fannst mér bara gefa í skyn að hún væri frekar löng og er ekki mikið fyrir að fara í bíó, sérstaklega hér í BNA með ekkert hlé, fór á Atonement (snilld btw) og hún er í lengri kantinum og fannst ekki gaman að halda í mér í um klst.
"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."
Það er rétt, mín mistök, en einhvern veginn efast ég um að þú sért búinn að sjá Marion Cotillard í La Vie en Rose, en það var einmitt hún sem skákaði Ellen Paige.
Ekki misskilja, Paige var frábær í Juno, en Cotillard sem Edith Piaf og Cate Blanchett í Elizabeth áttu þetta frekar skilið en Ellen Paige.
Flottur leikur hjá Paige en hvað gerði hún annað í Juno en að vera einn og eggert á hæð, ólétt og tala eitthvað witty slangur alla myndina? Hún gerði vel en eitthvað sniðugt slangur er ekkert að fara að færa þér óskarsverðlaunin.