ok, ég hef verið að spá hvað sé besta vörnin fyrir Wireless Networkið mitt.. svo að aðrir í blokkinni geti ekki bara tengst routerinum
..er best að stilla bara inn alltaf MAC addressurnar inná routerinn og/eða hafa WEP á, eða hvað finnst ykkur?
hefur einhver hérna góða reynslu af Linksys routerum? er með ADSL Módem+Router+Switch auk þess að hægt er að stinga Wireless korti í hann þannig að hann virki þráðlaust líka (model: BEFDSR41W)
Alveg eins og hjá mér
Ég er með Wirleless Access point + router með 4 ethernet portum (=5 porta switch)
Þú notar auðvita bæði 128 MB dulkóðun(WEB) og stillir inn MAC addressurnar.
Já, ég veit ekki betur en WEP encryptar signalið, annars myndi ég hlusta á gumol, ef það er nógu gott fyrir hann, þá er það örugglega nógu gott fyrir þig, enda finnst mér gumol nokkuð paranoid með svona
hehe, sko, ég er sá eini sem kann á tölvur hérna heima, ef ég stilli inn WEP, þarf ég ekki bara að stilla það inn á hvert netkort og búið mál?
ef þetta er eitthvað meira vesen sleppi ég því bara, hef ekki nennt að prófa þetta endþá.. er svo latur
Það eru til forrit sem að prufa að fake'a MAC addressur í röð og ef að þú ert bara með MAC filterin þá er það eina sem að viðkomandi þarf að gera til þess að komast inná netið þitt. Ég myndi hiklaust nota WEP128 og MAC address filterin og auðvitað líka password á þrálausatengipunktinn.
Kíkið á http://www.arstechninca.com og lesið greinina um það hvernig komast á inní wireless kerfi, það er voða lítið mál þótt að það sé MAC filter, WEP128 og falinn SSID og eitthvað solleis dæmi. Þannig að öruggt þráðlaust netkerfi er varla, en ef að þið notið allar varnir þá tekur þrjótana lengri tíma að komast inná kerfið og það gæti verið að þeir gefist upp og leiti áfram áður en að þeir komast inná netið þitt.
ps. reyndar er kannski hægt að gera 99,99% með því að girða af svæðið með þykku lagi af neti sem að stöðvar þráðlausu bylgjurnar. Hænsnanet einsog eru notuð í steypt hús eiga að duga nokkuð vel til þess. Þessvegna er verra þráðlaust samband í steinhúsum heldur en tréhúsum.
Ég var með security í botni...en það var allt svo slowww að ég tók allt út nema mac addressuna.
Svo þarf viðkomandi líka að vita nafnið á local netinu þínu til þess að gera skoðað gögnin þín
Ekki vera með default (WORKGROUP).
Þetta eru frábærar græur sem þú átt, ég myndi nota allavega 64 bita dulkóðun (annars er hægt að sjá hvað þú ert að gera í næstu íbúð með réttum forritum)
það búa gömul hjón á móti okkur, pottþétt ekki tölvuhakkarar
veit ekki með fólkið fyrir ofan mig, hef aldrei séð það..
ég prófa hvernig þetta verður, ef þetta er alveg að drepa netið hjá mér sleppi ég þessu bara..
Ég gerði CS internet server um daginn á þráðlausa netinu(I know ég hefði átt að tebngja við mig höbbinn) og það komu 4 á hann, sá sem var að laga minnst var að laga 30 - 40. Svo þetta hægir ekki mikið á netinu
...
það er ekkert mál að feika mac-addressur...
...
galli við wep keys er að þeir hægja geðveikt á netinu (buinn að gera þónokkrar tilraunir með það.)
og það er ekki mikið mál að brjóta þá upp.
Hinsvegar mac-address + wepkey er alveg nóg fyrir flesta heimanotendur.
Ég veit ekki um mikið af fólki sem myndi leggja á sig að reyna að brjóta upp heimanet hjá einhverjum ef það gæti farið með tölvuna einu húsi lengra og fengið fínt samband þar.
Einsog einhver vitur maður sagði.
"If you want to spend time sitting in a car outside a house faking MAC addressens and cracking the WEP key just to see what young teenangers are surfing on the web.... be my guest."
Am, fólk fer ekki að eyða svona tíma í heimanet...
en þarf ekki alltaf password til þess að staðfesta greiðslur og millifærslur í heimabanka??
Any way..þegar ég hef verið í uppsetningum á svona þráðlausum netum í heimahúsum, þá nota ég bara 64bit hex læsingu, ekkert meira.
Ef að þessu er læst með MAC Addressum þá er vesen fyrir hinn almenna notanda að bæta við tölvum inn á þráðlausa netið sitt
RadoN skrifaði:ok, ég hef verið að spá hvað sé besta vörnin fyrir Wireless Networkið mitt.. svo að aðrir í blokkinni geti ekki bara tengst routerinum
..er best að stilla bara inn alltaf MAC addressurnar inná routerinn og/eða hafa WEP á, eða hvað finnst ykkur?
hefur einhver hérna góða reynslu af Linksys routerum? er með ADSL Módem+Router+Switch auk þess að hægt er að stinga Wireless korti í hann þannig að hann virki þráðlaust líka (model: BEFDSR41W)
Hvað er þetta...
Endilega leyfðu þeim að stelast gegnum þig. Settu upp vél og sniffaðu allt sem þeir gera, be evil, know your enemy! :>
Það er ekkert mál að keyra skan forrit sem leita uppi þráðlaus net og hvar þú kemst inn. Forrit eins og netstumbler gefa þér allar upplýsingar sem þú þarft til að tengjast netinu, nema wep key, þannig að wep key er alveg nauðsynlegur ef þú vilt ekki að neinn geti tengst netinu þínu, í raun er wep key mikilvægari en mac addressur. SSID er ekkert mál að sjá með Netstumbler, þannig að ekki er það að stoppa þig í að tengjast þráðlausu neti nágrannans. Prófið að fara í bíltúr með lappann og Netstumbler opið, það detta inn óteljandi þráðlaus net og flest gal opin!
Ég var að setja upp þráðlaust hérna hjá mér, ég er með 128bita wep kóðun á merkinu, og ég er að pinga gatewayið svona 5-6 ms, meðan víranetið er svona 0.x ms