Núna er ég að fara að bæta aðeins við tölvuna, fá mér nýja kælingu og svoleiðis.
En ég var að skoða task.is og þar eru 3 Zalman örgjörvaviftur. Zalman CNPS6000-Cu Zalman CNPS7000A-ALCU Zalman CNPS7000A-Cu
Hverja af þessum 3 á ég að velja mér ?
Hef heyrt mjög góða hluti um 7000A-CU (nr3) en vill bara fá ábendingar hér líka.
Svo var ég líka að spá hvernig kassaviftu(r) maður ætti að fá sér með þessu?
Er Zalman þá málið líka ?
Arnar skrifaði:Ég er með nr 3.. hún er fín.
Ég ætla samt að fá mér vatnskælingu um mánaðarmótin til að geta oc smá
Veistu, ef þú myndir kaupa þér örgjörva á ebay, frekar en hérna á íslandi, þá gætir þú fengið þér mun dýrari örgjörfa, og þar af leiðandi þarftu ekki að eiða tíma og peningum í kælingu til þess að overclocka.
Ég er með nr. 3, hún er léttari og ódýrari en nr. 2 (báðar eru yfir hámarksþyng sem AMD/Intel mæla með) og hún kælir vel. Það heyrist varla í henni í Silent Mode. Ekki taka nr. 1, það er mikið eldri kæling.
halanegri skrifaði:Ég er með nr. 3, hún er léttari og ódýrari en nr. 2 (báðar eru yfir hámarksþyng sem AMD/Intel mæla með) og hún kælir vel. Það heyrist varla í henni í Silent Mode. Ekki taka nr. 1, það er mikið eldri kæling.
RANGT...nr3 er 773gr á móti nr2 sem er 445 grömm.
Ég er bæði með viftu nr3 og nr1 báðar virka rosalega vel.
Þú færð aðeins betri hitaleiðni með viftu nr3 en nr2 þar sem nr3 er engöngu úr kopar.
Þarf ekki að borga toll af því sem er keypt á e-bay, ég keypti mér leik á netinu og það varð að lokum dýrasti leikur sé ég hef keypt (2.100 sem tollurinn smurði á þetta).
Fox skrifaði:
Arnar skrifaði:Ég er með nr 3.. hún er fín.
Ég ætla samt að fá mér vatnskælingu um mánaðarmótin til að geta oc smá
Veistu, ef þú myndir kaupa þér örgjörva á ebay, frekar en hérna á íslandi, þá gætir þú fengið þér mun dýrari örgjörfa, og þar af leiðandi þarftu ekki að eiða tíma og peningum í kælingu til þess að overclocka.
Ef þú reyknar bara örgjörfann, þá sparar þú rúmar 15.000 Kr ef þú kaupir hann af ebay.
Ég var að fara eftur gegnum eBay til að sjá hvort það væri hægt að fá þennan pakka hagstæðari.
Ef þú kaupir örrann og móðurborð í sitthvoru lagi frá sitthvorn gaurnum, kostar það: 607,76 með VAT og sendingarkostnaði. Það eru rúmar 48.620 Kr.
--- Sparnaður: 25.765
Það tekur flesta undir 20 ára , heila viku að vinna sér inn fyrir þessum peningum. Viljiði virkilega henda þeim í tölvubúðir hérna heima, bara vegna þess að þið nennið ekki að bíða eftir draslinu ykkar?
Hættu þessu rugli með VAT og notaðu VSK í staðinn, það gætu einhverjir ruglað þessu við erlenda skatta t.d. í UK.
Svo er formúlan þegar þú verslar að utan svona:
verð vöru
+ Sendingarkostnaður
+tollur/vörugjöld(ef það á við)
+VSK(margfeldið 1.245)
+tollskýrslugerð(ef það á við)
=Endanlegt verð vöru komið til kaupanda.
Það er alltaf reiknaður VSK á vöruverð með sendingarkostnaði og tollum.
Ég hef oft pantað frá ebay, og það er eitt sem má ekki gleyma.. að það er engu að treysta, hvorki afhendingartíma eða verði. Þú heldur að þú sért að borga extra fyrir að þetta fari með venjulegum pósti eða fedex.. en þetta fer oftast með skipi sem er ódýrast fyrir seljandann en tekur margar vikur að koma til þín.
Þessar flower viftur hafa verið að brenna yfir örgjörva, allt í einu hætta bara vifturnar að virka, margir sem lennt hafa í þessu, ég er með zalman eitthvað sem sýgur loftið upp frá örranum og ég er bara nokkuð sáttur með hana silent og góð kæling!!