Svavar - kjarrval handtekinn í morgun!

Allt utan efnis

hallihg
Gúrú
Póstar: 521
Skráði sig: Mið 17. Sep 2003 22:06
Staða: Ótengdur

Póstur af hallihg »

einzi skrifaði:neibb .. sagði þetta einmitt .. um leið og þetta fór ehf þá gáfu þeir á sér góðan höggstað


Svavar er samt eflaust í góðu sambandi við sína lögfræðinga og að stofna einkahlutafélag getur einnig verið kostur og gert þeim auðveldara að verja sig fyrir rétti.

Þetta var orðið of stórt til að vera "underground" starfsemi. Þannig að .ehf var leiðin, ekki að ég sé hlynntur því að torrent síður eigi að verða fyrirtæki, reknar með hagnaði og með starfsmenn á launaskrá.
count von count
Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 4081
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Staða: Ótengdur

Póstur af appel »

Það er mun gáfulegra að reka þetta sem ehf, þar sem hugsanleg málsókn myndi vera á hendur fyrirtækinu en ekki Svavari persónulega. Það með nær hann að firra sig af ábyrgð, og ef allt fer á versta veg er fyrirtækið gert upptækt, en hann ekki sendur í fangelsi eða eigur hans gerðar upptækar.

Hinsvegar var torrent.is aðeins rekið sem ehf í stuttan tíma, og hugsanlega gæti hann persónulega verið ábyrgur samt sem áður. Við sjáum til.

Hlakka til föstudagsins :)
*-*
Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 15436
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af GuðjónR »

Eigendur hlutafélaga geta ekki alltaf skýlt sér á bak við ehf'ið sitt...
Ehf'ið er sem slíkt lögaðili en það tekur engar ákvarðanir upp á sitt einsdæmi.

Þrátt fyrir það var skrítið að sjá hvernig fór í olíusamráðsmálinu...þar sem þeir sem ákváðu samráðið voru saklausir en hlutafélögin þurftu að taka sakirnar.

Eitthvað hefur verið í umræðinnu að breyta þessu.

p.s. hvað gerist á föstudaginn? afmæli??
Skjámynd

einzi
spjallið.is
Póstar: 439
Skráði sig: Þri 27. Maí 2003 11:25
Staðsetning: Ísafjörður
Staða: Ótengdur

Póstur af einzi »

frestur til staðfestingarákæru rennur út?

Andri Fannar
Tölvutryllir
Póstar: 687
Skráði sig: Fim 08. Jan 2004 20:53
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af Andri Fannar »

Leið ekki á löngu þar til ný síða kæmi.

http://www.dci.is
« andrifannar»

Birkir
Kerfisstjóri
Póstar: 1284
Skráði sig: Fim 13. Nóv 2003 15:57
Staðsetning: Utan þjónustusvæðis
Staða: Ótengdur

Póstur af Birkir »

Andri Fannar skrifaði:Leið ekki á löngu þar til ný síða kæmi.

http://www.dci.is


DCi var komið upp áður.
Skjámynd

ManiO
Besserwisser
Póstar: 3963
Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
Staðsetning: Seltjarnarnes
Staða: Ótengdur

Póstur af ManiO »

Andri Fannar skrifaði:Leið ekki á löngu þar til ný síða kæmi.

http://www.dci.is



Hryllilega slow síða og ég giska að sá sem setti hana upp hafi fallið í stafsetningu í grunnskóla :lol:
"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."

Andri Fannar
Tölvutryllir
Póstar: 687
Skráði sig: Fim 08. Jan 2004 20:53
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af Andri Fannar »

Birkir já ég veit en þeir voru að opna aftur. Héldu margir að það væri hætt. Og já, þetta er agalega hægt hjá þeim plús það að mér finnst þetta ömurlegt útlit, mun verra en gamla.
« andrifannar»

gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af gumol »

Hvaða reglugerð eru þeir alltaf að tala um...
Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 4081
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Staða: Ótengdur

Póstur af appel »

Mér heyrðist á Svavari að hann væri nú ekki beint ríkur maður eftir að hafa "unnið" við vefinn 100% núna síðustu mánuði.

Maður veltur fyrir sér hvort hann hafi fjárhagslega byrði til að berjast við þessi samtök, og í raun láti undan áður en langt um líður.

Ég spyr hvort við ættum að stofna til söfnunar fyrir hann? Ástæðan er fyrst og fremst svo hann hafi burði til að fara með málið fyrir dóm, en slíkt er dýrt, bæði vegna kostnaðar við slíkt svo hefur Svavar engar tekjur aðrar en af vefnum sínum...þannig að hvernig á maðurinn að éta? :)

Eina ástæðan semsagt fyrir því að styrkja hann væri að styðja hann í þessu fordæmisgefandi máli, en það skiptir gríðarlega miklu máli fyrir netverja. Ég hef engan áhuga á því hvort fólki líkar illa eða vel við hann, það er ótengt.


Það gerist oft t.d. í BNA að samtök styðja við einstaklinga í fordæmisgefandi málum, hví ekki á Íslandi?

Látið mig vita ef þið hafið áhuga.
*-*
Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 15436
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af GuðjónR »

Ég skal gefa 250.- isk.

cue
Nörd
Póstar: 122
Skráði sig: Mán 16. Ágú 2004 09:52
Staða: Ótengdur

Póstur af cue »

Hef áhuga
Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 4081
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Staða: Ótengdur

Póstur af appel »

Ef við erum heppnir þá náum við kannski að safna 1þús kalli :) væri gaman að senda honum ávísun fyrir svosem einni máltíð á American Style.
*-*
Skjámynd

elv
Of mikill frítími
Póstar: 1949
Skráði sig: Sun 23. Mar 2003 21:53
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af elv »

appel skrifaði:Ef við erum heppnir þá náum við kannski að safna 1þús kalli :) væri gaman að senda honum ávísun fyrir svosem einni máltíð á American Style.


Gjafabréf :roll:

END
has spoken...
Póstar: 159
Skráði sig: Lau 28. Jún 2003 01:52
Staða: Ótengdur

Póstur af END »

gumol skrifaði:Hvaða reglugerð eru þeir alltaf að tala um...

Um lögbann fjalla sett lög en ekki reglugerðir.

Lögbann er bráðabirgðaraðgerð sem gripið er til ef hætta þykir á að athöfnin sem lagt er bann við raski með ólögmætum hætti rétti gerðabeiðanda (Smáís og co.) meðan leitað er úrlausnar dómstóla. Gerðarbeiðandi verður að leggja fram tryggingu (1 milljón í þessu tilviki) fyrir því tjóni sem gerðarþoli kann að verða fyrir. Ef gerðarbeiðandi höfðar ekki dómsmál til staðfestingar innan viku frá framkvæmd þá fellur gerðin niður.

Þegar stefna Smáíss og co. hefur verið birt Svavari (torrent.is) telst dómsmál höfðað. Svavar hefur þá þriggja sólarhringa stefnufrest, að því gefnu að honum verði stefnt í hans dómþinghá (lögsagnarumdæmi). Þá fer fram þingfesting en það er upphaf meðferðar máls fyrir dómstólnum og þá hefjast venjulega samskipti dómara og aðila. Við þingfestinguna leggur stefnandi fram stefnu sína og stefnda er svo veittur hæfilegur frestur (tvær til þrjár vikur) til að taka afstöðu til krafna stefnanda.

Þetta er langur ferill og það er misskilningur að eitthvað sé að fara að gerast á föstudaginn, nema þingfestingin fari fram þá? Ég vil líka benda á að öllum er frjálst að mæta í héraðsdóm og fylgjast með þegar þetta mál verður tekið fyrir. Sama gildir auðvitað um flest önnur mál.

gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af gumol »

Ég var að tala um á dci.is, þeir eru alltaf að tala um einhverjar reglugerðir þar. :) Virðist reyndar vera búið að loka bæði henni og istorrent.freeforums.org

Ég var einmeitt að skrifa á gumol.blog.is um að mér fyndist það vera á mörkunum að það væri rétt ákvörðun að setja þetta lögbann á. Ég sé ekki að hagsmunum rétthafans sé ógnað svo gríðarlega þær nokkrar vikur / mánuði sem tekur að fá dómsúrskurð að það verður að grípa til þess neyðarúrræðis sem lögbann er, sérstaklega í ljósi þess að samtökin sem krefjast lögbannsins hafa vitað af starfsemi torrent.is í amk. 8 mánuði og að málið hafi verið til rannsóknar hjá lögreglu þann tíma en hún hafi ekki séð ástæðu til að flýta rannsókn sérstaklega eða aðhafst neitt í málini hingað til. Þetta er líka vafasamt þegar litið er á 3. mgr. 24. gr. laga nr. 31/1990 um kyrrsetningu, lögbann o.fl.
Lögbann verður ekki lagt við athöfn:
1. ef talið verður að réttarreglur um refsingu eða skaðabætur fyrir röskun hagsmuna gerðarbeiðanda tryggi þá nægilega;
...


Ef þú frétti hvenær málið verður þingfest máttu alveg láta mig vita, langar að fylgjast með ef ég kemst. Reyndar er mjög takmarkað pláss þarna í Héraðsdómi Reykjanes, spurning hvort það verði margir að fylgjast með.
Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 15436
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af GuðjónR »

END og gumol...djöfull eru þið fróðir um lögfræðihliðina....síðast þegar ég vissi þá var gumol að læra löfræði en hvað með þig END ert þú líka að læra eða búinn??
Skjámynd

ManiO
Besserwisser
Póstar: 3963
Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
Staðsetning: Seltjarnarnes
Staða: Ótengdur

Póstur af ManiO »

Af hverju selur Svavar ekki kumpánunum í Pirate Bay allt heila klabbið og reynir að fá gott verð fyrir?
"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."

Xyron
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 389
Skráði sig: Sun 09. Okt 2005 23:36
Staðsetning: 127.0.0.1
Staða: Ótengdur

Póstur af Xyron »

Rakst á þessa gein:
http://mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html?radnr=1174238

Kæmi mér alls ekki á óvart að þetta verði notað gegn honum í dómsmálinu..

ss. neðri hluti greinarinar "Stress og heimtufrekja"
Skjámynd

Dagur
Geek
Póstar: 801
Skráði sig: Fös 19. Sep 2003 14:00
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af Dagur »

Xyron skrifaði:Rakst á þessa gein:
http://mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html?radnr=1174238

Kæmi mér alls ekki á óvart að þetta verði notað gegn honum í dómsmálinu..

ss. neðri hluti greinarinar "Stress og heimtufrekja"


Hvað væri notað gegn honum? Að honum þótti líklegt að fá lögsókn?
Mér finnst bara eðlilegt að hann búist við kæru sama hvort honum finnst hann vera að brjóta lög eða ekki.

Xyron
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 389
Skráði sig: Sun 09. Okt 2005 23:36
Staðsetning: 127.0.0.1
Staða: Ótengdur

Póstur af Xyron »

Já, er reyndar ekki vel að mér í lögum.. en þetta er pottþétt eitthvað sem verður minnst á í réttarhöldunum..

Af skrifum stjórnandans má ráða að hann telur líklegt að reksturinn gangi á svig við lög og að vefsetrið og hann þar með verði lögsótt fyrir starfsemina fyrr eða síðar.

"Höfundalögin fjalla um "að stuðla að dreifingu" svo vefurinn sleppur ekki...Að hýsa vefinn erlendis firrir mig ekkert ábyrgð þar sem ég mun ennþá búa á Íslandi og ennþá kæranlegur undir sömu aðstæðum.
Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 4081
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Staða: Ótengdur

Póstur af appel »

Hvernig fór þetta í gær?
*-*

END
has spoken...
Póstar: 159
Skráði sig: Lau 28. Jún 2003 01:52
Staða: Ótengdur

Póstur af END »

GuðjónR skrifaði:END og gumol...djöfull eru þið fróðir um lögfræðihliðina....síðast þegar ég vissi þá var gumol að læra löfræði en hvað með þig END ert þú líka að læra eða búinn??

Neinei, ég er nú bara áhugamaður og reyndar í lögfræðiáfanga. Vildi bara setja þetta mál í samhengi með kennslubókarhætti.

appel skrifaði:Hvernig fór þetta í gær?

Hvernig fór hvað í gær? Ég veit ekki hvort þingfestingin fór fram í gær eða hvenær hún fer fram en það mun nú ekki gerast mikið merkilegt við það tækifæri. Hún er bara upphaf meðferðar málsins fyrir dómstólnum.

hallihg
Gúrú
Póstar: 521
Skráði sig: Mið 17. Sep 2003 22:06
Staða: Ótengdur

Póstur af hallihg »

istorrent málið var ekki þingfest í gær. Deilismálið var hins vegar þingfest um 15 leytið niðrí Héraðsdómi Reykjavíkur, og var Svavar þar viðstaddur.
count von count

gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af gumol »

domstolar.is skrifaði:11. des. 14:25-14:55 Salur 203 Símon Sigvaldason héraðsdómari
Mál nr. S-1743/2007 Fyrirtaka
Ákærandi: Ríkislögreglustjóri (Hrafnhildur M Gunnarsdóttir fulltrúi)


Er þetta það mál?
Svara