Miðinn var keyptur á Hagkaup á Akureyri vinningshafinn hefur
ekki gefið sig fram. Ef þú fannst þetta hérna, fannst miða þinn
og þetta verður mér að þakka að þú fattaðir þetta áður en að
þú hentir honum fer ég fram á 1% - Djöf! Ég steingleymdi að kíkja til Akureyrar og kaupa mér víkingalottó man það næst!
Birkir skrifaði:Ég hef áreiðanlegar fregnir þess efnis að hann Snorri (CraZy) hafi unnið þetta og sé nú á leið til Reykjavíkur að sækja vinninginn.
Bíddu voru ekki einhver viðurlög hérna á vaktinni að ef þráðstjóri eða stjórnandi vinnur stóran vinning í einhverju lottói þá eiga hinir (þráðstjórar og stjórnendur) að fá 1% hver?
"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."
Úff, þetta er svakalegur vinningur .... alltaf gaman að velta því fyrir sér hvað maður myndi gera ef maður ynni svona vinning.
Ég hugsa að ég myndi nú ekki gera mikið strax, annað en að smella þessu beint inná sparnaðarreikning með 14% vöxtum.
Myndi kannski fá mér fínan bíl fyrir 3-4 millur.
Eftir svona ár væri upphæðin komin í c.a 120 millur. Þá myndi maður kannski smella íbúðinni á sölu og finna sér einbýlishús fyrir 50-70 millur og staðgreiða það bara og leyfa svo bara restinni að malla á fínum vöxtum.
Hann lofaði að hitta mig í Hyrnunni þegar hann er á leiðinni norður aftur og afhenda mér einhvern hlut af þessu.
En svona í alvöru, maður hefur bara enga hugmynd um hvað maður myndi gera við þetta.. Byrja á að kaupa sér almennilegan bíl kannski og leika sér eitthvað, leggja svo rest (eiga samt smá „spending money“ eftir) inn á banka og láta það liggja á vöxtum.
Og já, ekki fara í sumarvinnu næsta sumar.. Haha..
Birkir skrifaði:Ég hef áreiðanlegar fregnir þess efnis að hann Snorri (CraZy) hafi unnið þetta og sé nú á leið til Reykjavíkur að sækja vinninginn.
bíddu nú við síðan hvenær heiti ég snorri
Ég heiti Alli, ruglukollur
en jamm ég legg í hann á morgun til rvk og kem við í Hyrnunni, be there or be square.

Djööö... Er Pandemic þá Snorri?
Þarf greinilega að fara að taka mig til í andlitinu varðandi þetta.
P.S. Ertu ekki annars bara til í að skipta yfir í Snorri, svo ég forðist niðurlægingu?
Ágætis péningur en það getur ekki verið að þetta sé í einni útborgun. Mér skilst að í BNA þá sé algengt fyrirkomulag árleg greiðsla í svona 25 ár. Í þessu tilviki væri það þá 4.2 millur á ári, 350k á mánuði. Hver er svo skatturinn á þetta? Ef greiðslunni er dreift með þessum hætti þá dugar svona vinningur rétt svo til þess að sparka manni upp á næsta skattþrep. Amk. er ekki inni í myndinni að lifa á vöxtunum.
Mikill meirihluti stórvinningshafa í BNA selja fjármálafyrirtækjum vinninginn fyrir eingreiðslu sem nemur brot af heildarupphæðinni, enda ekkert vit í öðru. Sérstaklega ef menn eru td. 50+ að aldri. Hann ætti kanski að hafa samband: http://www.woodbridgeinvestments.com
AngryMachine skrifaði:Ágætis péningur en það getur ekki verið að þetta sé í einni útborgun. Mér skilst að í BNA þá sé algengt fyrirkomulag árleg greiðsla í svona 25 ár. Í þessu tilviki væri það þá 4.2 millur á ári, 350k á mánuði. Hver er svo skatturinn á þetta? Ef greiðslunni er dreift með þessum hætti þá dugar svona vinningur rétt svo til þess að sparka manni upp á næsta skattþrep. Amk. er ekki inni í myndinni að lifa á vöxtunum.
Mikill meirihluti stórvinningshafa í BNA selja fjármálafyrirtækjum vinninginn fyrir eingreiðslu sem nemur brot af heildarupphæðinni, enda ekkert vit í öðru. Sérstaklega ef menn eru td. 50+ að aldri. Hann ætti kanski að hafa samband: http://www.woodbridgeinvestments.com
Jú þetta er nefnilega borgað allt í einu. Svo er þetta skattfrjálst á Íslandi ólíkt flestum öðrum löndum (þ.e.a.s vinningurinn. Þú þarft væntalega að borga eignaskatt eða eitthvað slíkt þegar þar að kemur).