Jæja þá ætla ég að spyrja hvar er fólk að vinna og hvað eru þið að fá borgað ef þið viljið gefa það upp?
Sjálfur er ég að vinna hjá bænum s.s á Húsavik að slá gras og raka og er að fá 720kr á timann samkvæmt lágmarks launa taxta held ég hef ekki enðá fengið útborgað
Nákvæmlega.. en það má náttúrulega að túlka það þannig að þessi þráður sé fyrir þá sem eru aðeins í sumarvinnu og við hinir ættum ekkert að vera að svekkja þá með föstu laununum okkar.
Kirkjugörðunum aftur bara..
man ekki allveg hvað tíma kaupið er en það er allveg ágætt svosem minnir mig
Það er eitthvað við dána fólkið sem er svo róandi
mmm dead people..
Veit Ekki skrifaði:Er að vinna sem prófarkalesari hjá Morgunblaðinu.
Oh boy.. heyrru.. ég er hérna með langan lista frá konunni minni sem er MRingur með íslenskufetish á háustigi Orðinn þreyttur á að hlusta á hana skammast yfir stafsetningar og málfræðivillum í blöðunum.. má hún ekki bara hringja beint í þig?
CraZy skrifaði:Kirkjugörðunum aftur bara.. man ekki allveg hvað tíma kaupið er en það er allveg ágætt svosem minnir mig Það er eitthvað við dána fólkið sem er svo róandi mmm dead people..
upplífgandi starf er það ekki ?
Veit Ekki skrifaði:Er að vinna sem prófarkalesari hjá Morgunblaðinu.
er þetta fullt starf hjá þér?
ef svo er þá mættiru standa þig betur, ef ekki þá sækja um fullt starf, já og helst bæta við nokkrum og láta yfirfara mbl.is mun oftar og betur, maður gerir ekki annað en að rekast á villur þar sem að ég vill meina að ættu ekki að vera á svoleiðis miðli
CraZy skrifaði:Kirkjugörðunum aftur bara.. man ekki allveg hvað tíma kaupið er en það er allveg ágætt svosem minnir mig Það er eitthvað við dána fólkið sem er svo róandi mmm dead people..
upplífgandi starf er það ekki ?
mm það er fínt, nema þegar maður er kannski eitthvað að brasa í barna reitunum..helv. dótið og leikfangabílarnir eru alltaf fyrir vélunum
Last edited by CraZy on Fim 07. Jún 2007 18:17, edited 1 time in total.
Veit Ekki skrifaði:Er að vinna sem prófarkalesari hjá Morgunblaðinu.
er þetta fullt starf hjá þér? ef svo er þá mættiru standa þig betur, ef ekki þá sækja um fullt starf, já og helst bæta við nokkrum og láta yfirfara mbl.is mun oftar og betur, maður gerir ekki annað en að rekast á villur þar sem að ég vill meina að ættu ekki að vera á svoleiðis miðli
Þetta er fullt starf hjá mér en ég fer nú ekki yfir allt blaðið og ekkert á netinu. Ég get bara séð til þess að það sem ég geri sé rétt. En kannski að maður biðji um aðgang að mbl.is, til að geta leiðrétt þar.
Stutturdreki skrifaði:
Veit Ekki skrifaði:Er að vinna sem prófarkalesari hjá Morgunblaðinu.
Oh boy.. heyrru.. ég er hérna með langan lista frá konunni minni sem er MRingur með íslenskufetish á háustigi Orðinn þreyttur á að hlusta á hana skammast yfir stafsetningar og málfræðivillum í blöðunum.. má hún ekki bara hringja beint í þig?
Hehe, þessir MR-ingar.
Annars les ég nú bara lítinn hluta af blaðinu, aðallega auglýsingar. Held að ég afþakki þetta símtal, ég er ekki það valdamikill hjá Mogganum.