Afhverju ekki Tölvutek?

Hugmyndadeild, kvartanadeild og gleðideild
Svara

Höfundur
Dr. Cryptic
Staða: Ótengdur

Afhverju ekki Tölvutek?

Póstur af Dr. Cryptic »

Ég sé að þið séu með verðvakt yfir helstu tölvuverslanir landins, afhverju eru þið ekki með nýju ódýru tölvuverslunina "Tölvutek" inni á listanum?

Dr. Cryptic
Skjámynd

Mazi!
ÜberAdmin
Póstar: 1323
Skráði sig: Fim 13. Okt 2005 15:25
Staðsetning: Skúrinn
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af Mazi! »

Eflaust gleymst bara.
Mazi -

TechHead
Geek
Póstar: 822
Skráði sig: Þri 23. Nóv 2004 14:56
Staða: Ótengdur

Póstur af TechHead »

Held þeir hafi hreinlega ekki tíma til þess að eltast við nokkra þúsundkalla frá notendum vaktarinnar þar sem þeir eru að moka út vörum hjá sér alla daga.....
Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3525
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af urban »

TechHead skrifaði:Held þeir hafi hreinlega ekki tíma til þess að eltast við nokkra þúsundkalla frá notendum vaktarinnar þar sem þeir eru að moka út vörum hjá sér alla daga.....
síðast þegar ég vissi þá tengjast þessar tölvubúðir þessu bara ekki neitt

ákveðnir notendur hérna sem að uppfæra verðin
Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !
Skjámynd

beatmaster
Besserwisser
Póstar: 3065
Skráði sig: Fös 14. Jan 2005 15:46
Staðsetning: Við hliðina á nýju tölvunni minni
Staða: Ótengdur

Póstur af beatmaster »

Síðast þegar að ég vissi sjá búðirnar sjálfar um að uppfæra...
Menn rugla saman tveimur orðum, víst og fyrst. Hið fyrrnefnda er komið af orðinu vissa en hitt er úr talmáli og haft í merkingunni: úr því að, þar sem (um orsök). Dæmi: Fyrst að ég get þetta þá getur þú þetta, þ.e.a.s: Þar eð ég get þetta þá getur þú þetta. En víst er notað um vissu: Það er nokkuð víst að ég geti gert þetta.
Skjámynd

zedro
Stjórnandi
Póstar: 2755
Skráði sig: Fös 29. Okt 2004 21:29
Staðsetning: Flight level 100
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af zedro »

beatmaster skrifaði:Síðast þegar að ég vissi sjá búðirnar sjálfar um að uppfæra...
Já það munu vera Att og Kísildalur sem gera það sjálfar.

Annars eru það umsjónamenn sem hjálpast að við að uppfæra.
Fractal Design: Define S - Aerocool Strike-X 1100W - ASRock 990FX Extreme9 AM3+ ATX - FX-9590 Vishera w/BeQuiet Silent Loop 360mm - G.Skill 16GB (2x8GB) Sniper 1866MHz DDR3 - Sapphire Fury X - 480GB SSD OS + 2TB DATA
Kísildalur.is þar sem nördin versla

wICE_man
Kerfisstjóri
Póstar: 1284
Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
Staðsetning: Í kísildalnum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af wICE_man »

Zedro skrifaði:
beatmaster skrifaði:Síðast þegar að ég vissi sjá búðirnar sjálfar um að uppfæra...
Já það munu vera Att og Kísildalur sem gera það sjálfar.

Annars eru það umsjónamenn sem hjálpast að við að uppfæra.
Sem er sennilega ein af ástæðunum fyrir því að menn nenna ekki að bæta við nýjum. Ég skil ekki afhverju búðirnar gera þetta ekki allar sjálfar.
Tölvuverslunin Kísildalur, staðurinn þar sem nördin versla :)
...og btw þá er ég innvígður og innmúraður í Kísildal
Svara