ok, kannski ekki peningaþvottur en ég tók eftir þegar ég loggaði mig inná heimabankann í morgun um 6 leytið að það hafði verið lagt inná mig xxxþús kr. án nokkura skýringa í yfirlitinu og um hádeigisbil var þessi sama upphæð horfin án nokkura skýringa.
Þar sem allt er lokað hjá þeim í dag ásamt þjónustuverinu þá langar mig að athuga hvort einhver hér þekkir eitthvað til þessa þar sem forvitnin er að ganga frá mér svona vægt til orða tekið .P
Eru bankarnir að færa upphæðir reikninga á milli meðan landinn sefur eða er þetta eitthvert einsdæmi?
Hve stór var upphæðin? Þetta er sennilega bara villa í tölvukerfinu. Ef að Landsbankinn væri með peningaþvott myndu þeir sennilega ekki vera að leggja inn á reikninga bara einhvers úti í bæ.
"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."
hehe þetta með þvottin var nú bara til að ná athygli en upphæðin var 140þús
ætla tékka á þessu aftur þegar ég vakna í fyrramálið, Ef ég sé þetta aftur þá fer ég og athuga þetta út í banka
Það hefur líklega verið lagt á vitlausan reikning og það síðan leiðrétt.
Ég lenti einu sinni í því að fá óútskýrðar 60.000kr, ég fór upp í banka og spurðist fyrir um þetta, þá átti þetta að fara á reikning Akranesdeildar Rauða Krossins.
Þau leiðréttu þetta samstundis. Ég hefði heldur ekki haft það í mér að þiggja pening af Rauða Krossinum.
EDIT: Lagaði stafsetningarvillu.
Last edited by Birkir on Þri 01. Maí 2007 17:53, edited 1 time in total.
Fékk einusinni millifært á mig 640þúsund fyrir einhver mistök.. fæ alltaf SMS þegar það er lagt inná mig
..Ég hringdi í bankann og spurði hvort að ég hefði unnið í lottó eða eitthvað svoleiðis.. en þá var þetta bara einhver villa í millifærslu.. átti að fara á einhvern allt annan gaur