Heatsink vandamál (8800 GTS passar ekki)

Svara

Höfundur
geiri01
Nýliði
Póstar: 24
Skráði sig: Fös 19. Jan 2007 10:21
Staða: Ótengdur

Heatsink vandamál (8800 GTS passar ekki)

Póstur af geiri01 »

Ég er nýbúinn að splæsa í nýtt skjákort af gerðinni eVGA 8800 GTS 640MB SC og komst að því að kortið passar ekki í pci-e raufina á móðurborðinu (A8N SLI Deluxe) þar sem Heatsink-ið er fyrir því.

Hér að neðan eru linkar á tvær myndir af innviðum tölvunnar minnar og þar sést hvernig heatsink-ið trónir fyrir 8800 GTS kortinu mínu. Reyndar er bara eitt 6600GT kort til staðar en ég þurfti að setja það aftur í til að fá tölvuna aftur upp.

Mynd 1
Mynd 2

Ég hringdi í Task og þeir voru að tala um eitthvað unit sem væri hægt að setja á Chipsetið og tengja það við eitthvað HeatSink sem væri til hliðar.

Ég hef verið að googla þetta aðeins og séð á sumum spjallborðum að gaurar eru með þetta móðurborð sem ég er með og 8800GTS í SLI mode þ.e. 2 x 8800 GTS. Og ég er að kvarta yfir því að koma ekki einu fyrir.

Ég kem alveg af fjöllum þegar kemur að þessum hlutum og væri alveg til í smá hjálp frá ykkur.
Asus A8N SLI Deluxe ~ AMD Athlon(tm) 64 3500+ 2.21 GHz ~ eVGA 8800 GTS 640MB SC ~ 2 x 2GB OCZ EL Platinum PC3200 2 x 1GB DDR 400 ~ 2 x 19" Acer ~ Windows Vista Ultimate x64
Skjámynd

zedro
Stjórnandi
Póstar: 2755
Skráði sig: Fös 29. Okt 2004 21:29
Staðsetning: Flight level 100
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af zedro »

Ég er hræddur um að Zalmann heatsinkinn veður að fara!

Verður bara að skella originalnum aftur á :?
Fractal Design: Define S - Aerocool Strike-X 1100W - ASRock 990FX Extreme9 AM3+ ATX - FX-9590 Vishera w/BeQuiet Silent Loop 360mm - G.Skill 16GB (2x8GB) Sniper 1866MHz DDR3 - Sapphire Fury X - 480GB SSD OS + 2TB DATA
Kísildalur.is þar sem nördin versla

Höfundur
geiri01
Nýliði
Póstar: 24
Skráði sig: Fös 19. Jan 2007 10:21
Staða: Ótengdur

Póstur af geiri01 »

Ég er farinn að hallast að því. Ástæðan fyrir því að ég fékk heatsinkið var að original viftan var ekki að standa sig í að kæla nógu vel og var að valda því að tölvan krassaði af og til.

En miðað við myndina hér að neðan þá held ég að það sé alveg máli að næla sér í originalinn aftur eða þá sambærilega stóra viftu sem vinnur betri en originallinn..

Mynd

Kíki niður í Task á eftir. Vitiði um einhverja búllu sem gæti átt þetta á lager ??
Asus A8N SLI Deluxe ~ AMD Athlon(tm) 64 3500+ 2.21 GHz ~ eVGA 8800 GTS 640MB SC ~ 2 x 2GB OCZ EL Platinum PC3200 2 x 1GB DDR 400 ~ 2 x 19" Acer ~ Windows Vista Ultimate x64
Skjámynd

Mazi!
ÜberAdmin
Póstar: 1323
Skráði sig: Fim 13. Okt 2005 15:25
Staðsetning: Skúrinn
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af Mazi! »

geiri01 skrifaði:Ég er farinn að hallast að því. Ástæðan fyrir því að ég fékk heatsinkið var að original viftan var ekki að standa sig í að kæla nógu vel og var að valda því að tölvan krassaði af og til.

En miðað við myndina hér að neðan þá held ég að það sé alveg máli að næla sér í originalinn aftur eða þá sambærilega stóra viftu sem vinnur betri en originallinn..

Mynd

Kíki niður í Task á eftir. Vitiði um einhverja búllu sem gæti átt þetta á lager ??


Ættir að geta notað þetta, http://start.is/product_info.php?cPath= ... ts_id=1088
Mazi -

ÓmarSmith
Vaktari
Póstar: 2498
Skráði sig: Fim 13. Júl 2006 19:30
Staðsetning: Kópavogur
Staða: Ótengdur

Póstur af ÓmarSmith »

Spurning um að saga líka bara af hinu.

Menn hérna hafa gert með með mjög góðu móti.


Gnarr og Mazi hafa held ég báðir mixað það.
i7 6700K - Asus Z170-K - 16Gb DDR4 - Nvidia RTX3080 - Acer X34 G-sync 100HZ - Corsair Carbite 400D - Sennheiser HD560s - Logitech Z621 THX
Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3737
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af Pandemic »

Þetta Heatzink er ekki að hitna það mikið að þú megir ekki cutta smá af því, ég hef aftengt viftuna á mínum og sagað þau og allan fjandann og það virðist ekki breyta neinu.

Höfundur
geiri01
Nýliði
Póstar: 24
Skráði sig: Fös 19. Jan 2007 10:21
Staða: Ótengdur

Póstur af geiri01 »

Já ég var nú búinn að pæla í sögununni en á sínum tíma fannst mér það frekar drastic.

Ég fór niður í Task og þeir áttu ekki original chipsett viftuna og mældu með tveim lausnum.

1. Thermalright HR-05-SLI Chipset cooler
2. Vantec Iceberq Chipset Cooler CCB-A1C

En þar sem að þetta er ekki til nein staðar hérna á landinu er ég farinn að hallast að sögununni. Og nú spyr ég ykkur Gnarr og Mazi hvernig fóruði að því ?? Hvernig sög ?? Hvað þurftuði að taka mikið af ??

Orðinn frekar óþolinmóður í að koma þessu korti á sinn stað.
Asus A8N SLI Deluxe ~ AMD Athlon(tm) 64 3500+ 2.21 GHz ~ eVGA 8800 GTS 640MB SC ~ 2 x 2GB OCZ EL Platinum PC3200 2 x 1GB DDR 400 ~ 2 x 19" Acer ~ Windows Vista Ultimate x64
Skjámynd

Mazi!
ÜberAdmin
Póstar: 1323
Skráði sig: Fim 13. Okt 2005 15:25
Staðsetning: Skúrinn
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af Mazi! »

geiri01 skrifaði:Já ég var nú búinn að pæla í sögununni en á sínum tíma fannst mér það frekar drastic.

Ég fór niður í Task og þeir áttu ekki original chipsett viftuna og mældu með tveim lausnum.

1. Thermalright HR-05-SLI Chipset cooler
2. Vantec Iceberq Chipset Cooler CCB-A1C

En þar sem að þetta er ekki til nein staðar hérna á landinu er ég farinn að hallast að sögununni. Og nú spyr ég ykkur Gnarr og Mazi hvernig fóruði að því ?? Hvernig sög ?? Hvað þurftuði að taka mikið af ??

Orðinn frekar óþolinmóður í að koma þessu korti á sinn stað.


Það er lítið mál að saga þetta, mældu bara hvað kortið þarf að fara langt inn að heatsinkinu og notaðu litla járnsög.
Mazi -

Höfundur
geiri01
Nýliði
Póstar: 24
Skráði sig: Fös 19. Jan 2007 10:21
Staða: Ótengdur

Póstur af geiri01 »

Búhú.. Ég er búinn að standa í svaka basli við að taka Heatsinkið af móðurborðinu, saga af því, setja það eftur á, tengja allt klabbið uppá nýtt, prufa að ræsa tölvunni með 6600GT kortinu og svo þegar ég prufa 8800 GTS kortið vælir móðurborðið á mig og ekkert gerist.. :(

Eina sem ég veit um er að móðurborðið vælir bara þegar því er of heitt.. gæti það verið málið núna ??

Please einhver koma með lausn á einhverjum aulamistökum hjá mér.. Please ekki vera að ég geti ekki notað kortið :(.

Off to google.com -> Search: A8N SLI Deluxe beep

EDIT: Fann þetta á einhverju ASUS forum

1 long + 2 short = Video adaptor error
1 long + 3 short = No video card or bad video RAM

high freq beeps while running = Overheated cpu

repeating high/low = cpu problem

repeating (endless loop) = memory error

ARG!!!!!!!!!!
Asus A8N SLI Deluxe ~ AMD Athlon(tm) 64 3500+ 2.21 GHz ~ eVGA 8800 GTS 640MB SC ~ 2 x 2GB OCZ EL Platinum PC3200 2 x 1GB DDR 400 ~ 2 x 19" Acer ~ Windows Vista Ultimate x64

Höfundur
geiri01
Nýliði
Póstar: 24
Skráði sig: Fös 19. Jan 2007 10:21
Staða: Ótengdur

Póstur af geiri01 »

Jæja pósturinn hér að ofan var smá örvænting. Ég komst að því að ég gleymdi að tengja auka rafmagnsnúruna í skjákortið og eftir að ég gerði það fór allt að virka.

Tölvan mín
Mynd

Nú er bara spurningin hvort að chipsettið ofhitni ekki með þessa uppsetningu?? Hér að neðan eru myndir af uppsetningunni og væri gaman að heyra hvað ykkur finnst?? Á ég að setja eitthvern auka blástur á chipsettið??

Fyrir moddun
Mynd
Mynd

Eftir moddun
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Asus A8N SLI Deluxe ~ AMD Athlon(tm) 64 3500+ 2.21 GHz ~ eVGA 8800 GTS 640MB SC ~ 2 x 2GB OCZ EL Platinum PC3200 2 x 1GB DDR 400 ~ 2 x 19" Acer ~ Windows Vista Ultimate x64
Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6208
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af gnarr »

ég myndi nú halda að sogið frá skjákortsviftunni ætti að vera miklu meira en nóg :)
"Give what you can, take what you need."
Skjámynd

Mazi!
ÜberAdmin
Póstar: 1323
Skráði sig: Fim 13. Okt 2005 15:25
Staðsetning: Skúrinn
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af Mazi! »

Lítur bara vel út hjá þér :)
Mazi -

Höfundur
geiri01
Nýliði
Póstar: 24
Skráði sig: Fös 19. Jan 2007 10:21
Staða: Ótengdur

Póstur af geiri01 »

Takk takk.. Þetta var nú meira ævintýrið. Hafði aldrei áður farið útí svona mikið fikt. Mesta sem ég hafði gert var að setja skjákort og harðan disk í tölvuna.

Að þurfa leysa móðurborðið, aftengja allar snúrur sem voru fyrir mér til að geta reist borðið aðeins, fjarlægja HDD staflann, leysa heatsinkið, saga það og setja það aftur á, tengja allt aftur var algjört *RUSH*. Maður var svo hræddur um að eitthvað myndi eyðileggjast en allt gekk eins og í sögu þegar maður komst að því hvernig átti að gera hlutina :).

Núna er ég reyndar að lenda í smá veseni með einn harða diskinn minn. SATA tengið í disknum sjálfum fór með snúrunni þannig að þegar ég ætlaði að tengja hann aftur þurfti ég að tengja beint við vírana í tenginu. Ég á samt alveg eftir að kanna þetta og finn áb. einhverja lausn. Annars hendi ég bara inn þráð um efnið.

Enn og aftur takk kærlega fyrir hjálpina.. :D
Asus A8N SLI Deluxe ~ AMD Athlon(tm) 64 3500+ 2.21 GHz ~ eVGA 8800 GTS 640MB SC ~ 2 x 2GB OCZ EL Platinum PC3200 2 x 1GB DDR 400 ~ 2 x 19" Acer ~ Windows Vista Ultimate x64

Harvest
Geek
Póstar: 817
Skráði sig: Lau 13. Maí 2006 01:25
Staðsetning: artæki
Staða: Ótengdur

Póstur af Harvest »

Hvernig er þetta nú allt saman?

Allt að virka eins og í sögu? Ekkert byrjað að ofhitna? :D
Uppljóstrari samfélagsins... Lög og regla almúgans... Rödd samtímans... VAKTIN.IS

Höfundur
geiri01
Nýliði
Póstar: 24
Skráði sig: Fös 19. Jan 2007 10:21
Staða: Ótengdur

Póstur af geiri01 »

Eins og er þá er þetta allt að virka eins og sögu.

Prufaði að henda í gang nokkrum leikjum í gær og setti þá alla í ultra high stillingar og það var yndislegt að sjá hvað það var mikill munur á medium og ultra high stillingunum í C&C - Tiberium wars.

Ég læt vita ef heatsinkið fer að sjóða skjákortið en ég held að þetta gangi alveg.
Asus A8N SLI Deluxe ~ AMD Athlon(tm) 64 3500+ 2.21 GHz ~ eVGA 8800 GTS 640MB SC ~ 2 x 2GB OCZ EL Platinum PC3200 2 x 1GB DDR 400 ~ 2 x 19" Acer ~ Windows Vista Ultimate x64

Tjobbi
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 366
Skráði sig: Fös 07. Apr 2006 19:25
Staðsetning: Gbr
Staða: Ótengdur

Póstur af Tjobbi »

geiri01 skrifaði:Eins og er þá er þetta allt að virka eins og sögu.

Prufaði að henda í gang nokkrum leikjum í gær og setti þá alla í ultra high stillingar og það var yndislegt að sjá hvað það var mikill munur á medium og ultra high stillingunum í C&C - Tiberium wars.

Ég læt vita ef heatsinkið fer að sjóða skjákortið en ég held að þetta gangi alveg.


En er þessi örgjörfi ekkert að draga kortið niður?

Myndi halda að hann yrði flöskuháls.
- asus a8n-sli - amd 3700@2.7ghz - watercooled - sparkle 7800gtx - g-skill 2x1gb ddr500 cl3 - 250gb - 22" acer -
Skjámynd

Mazi!
ÜberAdmin
Póstar: 1323
Skráði sig: Fim 13. Okt 2005 15:25
Staðsetning: Skúrinn
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af Mazi! »

Tjobbi skrifaði:
geiri01 skrifaði:Eins og er þá er þetta allt að virka eins og sögu.

Prufaði að henda í gang nokkrum leikjum í gær og setti þá alla í ultra high stillingar og það var yndislegt að sjá hvað það var mikill munur á medium og ultra high stillingunum í C&C - Tiberium wars.

Ég læt vita ef heatsinkið fer að sjóða skjákortið en ég held að þetta gangi alveg.


En er þessi örgjörfi ekkert að draga kortið niður?

Myndi halda að hann yrði flöskuháls.


Var einmitt að spá í því ?, spurning með að þú reddir þér einhverjum X2 örgjörva.
Mazi -

Höfundur
geiri01
Nýliði
Póstar: 24
Skráði sig: Fös 19. Jan 2007 10:21
Staða: Ótengdur

Póstur af geiri01 »

Hann er það sennilega jú.

X2 örrarnir fyrir 939 eru orðnir svo fáir hérna heima. X2 3800 hérna heima kostar 15-16 þús og ég er ekki að fara punga út fyrir því í augnablikinu. Þeir eru reyndar töluvert ódýrari á ebay á um 100$ en ég ætla ekki að vera spá mikið í því núna.

En hvað segiði með þetta HDD mál mitt ?? Ég fæ ekki diskinn inn :S. Vitiði hvort það sé hægt að laga svona lagað ??
Asus A8N SLI Deluxe ~ AMD Athlon(tm) 64 3500+ 2.21 GHz ~ eVGA 8800 GTS 640MB SC ~ 2 x 2GB OCZ EL Platinum PC3200 2 x 1GB DDR 400 ~ 2 x 19" Acer ~ Windows Vista Ultimate x64
Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6208
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af gnarr »

er ekki bara SATA snúran ónýt? eða er ég ekki að skilja rétt?
"Give what you can, take what you need."
Skjámynd

Mazi!
ÜberAdmin
Póstar: 1323
Skráði sig: Fim 13. Okt 2005 15:25
Staðsetning: Skúrinn
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af Mazi! »

geiri01 skrifaði:Hann er það sennilega jú.

X2 örrarnir fyrir 939 eru orðnir svo fáir hérna heima. X2 3800 hérna heima kostar 15-16 þús og ég er ekki að fara punga út fyrir því í augnablikinu. Þeir eru reyndar töluvert ódýrari á ebay á um 100$ en ég ætla ekki að vera spá mikið í því núna.

En hvað segiði með þetta HDD mál mitt ?? Ég fæ ekki diskinn inn :S. Vitiði hvort það sé hægt að laga svona lagað ??


Ef þú hefur rifið plöggið af stýriplötuni á disknum er hann sennilega ónýtur, komdu með mynd af þessu.
Mazi -

Höfundur
geiri01
Nýliði
Póstar: 24
Skráði sig: Fös 19. Jan 2007 10:21
Staða: Ótengdur

Póstur af geiri01 »

Ónýtur spónýtur....

Ég tók diskinn út, klippti SATA snúruhausinn í sundur til að ná litla stykkinu út, límdi litla stykkið aftur á data connector raufarnar, tengdi allt aftur og voila. Úp and running again.. :).
Asus A8N SLI Deluxe ~ AMD Athlon(tm) 64 3500+ 2.21 GHz ~ eVGA 8800 GTS 640MB SC ~ 2 x 2GB OCZ EL Platinum PC3200 2 x 1GB DDR 400 ~ 2 x 19" Acer ~ Windows Vista Ultimate x64
Skjámynd

Mazi!
ÜberAdmin
Póstar: 1323
Skráði sig: Fim 13. Okt 2005 15:25
Staðsetning: Skúrinn
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af Mazi! »

geiri01 skrifaði:Ónýtur spónýtur....

Ég tók diskinn út, klippti SATA snúruhausinn í sundur til að ná litla stykkinu út, límdi litla stykkið aftur á data connector raufarnar, tengdi allt aftur og voila. Úp and running again.. :).


HA? :crazy Límdiru conector dótið aftur á diskinn? er ekki alveg að skilja?
Mazi -

Höfundur
geiri01
Nýliði
Póstar: 24
Skráði sig: Fös 19. Jan 2007 10:21
Staða: Ótengdur

Póstur af geiri01 »

Mynd

hehe.. Þú heldur að ég hafi tekið allt heila klabbið sem samanstendur af Data connectornum og límt hann á. Það gerði ég svo sannarlega ekki. Þá hefði ég þurft að fara lóða saman víra :D.

Það sem gerðist hjá mér var að svarta stykkið sem er yfir leiðurunum brotnaði og festist inní Sata snúrinni. Leiðararnir voru sem betur fer ennþá á disknum. Útaf þessu voru leiðararnir á disknum ekki að ná að snerta leiðarana á Sata snúrunni og þess vegna kom diskurinn ekki inn.

Ég byrjaði á því að taka diskinn út og atftengja Sata snúruna sem hafði verið tengd við diskinn, svo með fáránlegum hætti skar ég meðfram Sata snúrutenginu sem innihélt litla stykkið mitt og náði að losa það með míní skrúfjárni. Svo náði ég í "Loctite SuperAttack Glue" og smurði ognupons á litla stykkið og mjög varlega setti það fyrir ofan leiðarana ( þá snéri diskurinn öfugur þannig að stykkið myndi ekki snerta leiðarana strax og hugsanlega smyrja lími á þá ), svo tók ég mínískrúfjárnið og lyfti stykkinu upp að leiðurunum þannig að þeir pössuðu í raufarnar á stykkinu.

Svo beið ég í svona 5 mín til að vera alveg viss að límið hafði þornað og gat verið fullviss um að það væri orðið hart með því að hafa fengið smá dropa af líminu á puttana :D.

Svo tengdi ég nýja Sata snúru við tölvuna og mjög varlega við diskinn, Bootaði upp tölvuna og þarna var 500gb Hitachi diskurinn minn sem átti aðeins 40 gb laus. Fjúffff...
Asus A8N SLI Deluxe ~ AMD Athlon(tm) 64 3500+ 2.21 GHz ~ eVGA 8800 GTS 640MB SC ~ 2 x 2GB OCZ EL Platinum PC3200 2 x 1GB DDR 400 ~ 2 x 19" Acer ~ Windows Vista Ultimate x64
Svara