*edit* Eltingaleikur á Íslandi

Allt utan efnis
Svara
Skjámynd

Höfundur
Sallarólegur
Internetsérfræðingur
Póstar: 6350
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Staðsetning: https://viktor.ms
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

*edit* Eltingaleikur á Íslandi

Póstur af Sallarólegur »

Fyrir þá sem ekki sáu myndskeiðið í fréttunum um daginn þá er það hér:
http://www.youtube.com/watch?v=BZRnzNJcCQs

Hvað finnst ykkur um þetta? Þegar þið eruð búnir/búnar að skoða þetta, ýmindið ykkur að það hafi verið barn á endastað. Mér persónulega finnst þessi maður eigi að vera lokaður inni það sem eftir er.

Þegar ég sá þetta hélt ég að þetta væri amerískt myndband, en svo er hreint ekki.. er ekki vanur því að sjá íslensk myndbönd af svona akstri.

*titli breytt*
Last edited by Sallarólegur on Sun 04. Mar 2007 01:29, edited 1 time in total.
Thinkpad P1 • i7-10875H • NVIDIA Quadro T1000 • Samsung 32GB 3200Mhz • Toshiba 1TB SSD

G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless

Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz

EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
Skjámynd

SolidFeather
Vaktari
Póstar: 2599
Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
Staða: Ótengdur

Póstur af SolidFeather »

Auðvitað eru bara bílaeltingaleikir í bandaríkjunum.
Skjámynd

Höfundur
Sallarólegur
Internetsérfræðingur
Póstar: 6350
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Staðsetning: https://viktor.ms
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af Sallarólegur »

SolidFeather skrifaði:Auðvitað eru bara bílaeltingaleikir í bandaríkjunum.
Sagði það aldrei.. en án efa meira um það en hér.
Thinkpad P1 • i7-10875H • NVIDIA Quadro T1000 • Samsung 32GB 3200Mhz • Toshiba 1TB SSD

G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless

Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz

EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
Skjámynd

SolidFeather
Vaktari
Póstar: 2599
Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
Staða: Ótengdur

Póstur af SolidFeather »

Viktor skrifaði:
SolidFeather skrifaði:Auðvitað eru bara bílaeltingaleikir í bandaríkjunum.
Sagði það aldrei.. en án efa meira um það en hér.
Enda búa þar rúmlega 301.257.000 manns þar, á móti 300.000 hér.
Skjámynd

Höfundur
Sallarólegur
Internetsérfræðingur
Póstar: 6350
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Staðsetning: https://viktor.ms
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af Sallarólegur »

SolidFeather skrifaði:
Viktor skrifaði:
SolidFeather skrifaði:Auðvitað eru bara bílaeltingaleikir í bandaríkjunum.
Sagði það aldrei.. en án efa meira um það en hér.
Enda búa þar rúmlega 301.257.000 manns þar, á móti 300.000 hér.
Mynd
Sorry, en ég varð..
Thinkpad P1 • i7-10875H • NVIDIA Quadro T1000 • Samsung 32GB 3200Mhz • Toshiba 1TB SSD

G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless

Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz

EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
Skjámynd

SolidFeather
Vaktari
Póstar: 2599
Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
Staða: Ótengdur

Póstur af SolidFeather »

Aww, er litla barnið að fara að gráta? Á pabbi að sækja snuð?


Er annars einhver tilgangur með þessum þræði, annar en að ýminda sér barn í stað pick-ups?

gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af gumol »

Undarlegt að sjá svona alveg rétt hjá heimilinu manns.
Skjámynd

Höfundur
Sallarólegur
Internetsérfræðingur
Póstar: 6350
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Staðsetning: https://viktor.ms
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af Sallarólegur »

SolidFeather skrifaði:Er annars einhver tilgangur með þessum þræði, annar en að ýminda sér barn í stað pick-ups?
Ef þér finnst ekki vera tilgangur með þessum þræði sé ég hreint ekki tilganginn með því að vera með þessi leiðindi.
Gumol skrifaði:Undarlegt að sjá svona alveg rétt hjá heimilinu manns.
Já, margir búnir að benda á það að þeir búi rétt hjá sem ég hef verið að tala við um þetta. Mér finnst þetta frekar skelfilegt. :bitterwitty
Last edited by Sallarólegur on Sun 04. Mar 2007 11:18, edited 1 time in total.
Thinkpad P1 • i7-10875H • NVIDIA Quadro T1000 • Samsung 32GB 3200Mhz • Toshiba 1TB SSD

G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless

Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz

EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller

@Arinn@
Kerfisstjóri
Póstar: 1277
Skráði sig: Þri 03. Maí 2005 18:39
Staðsetning: Kópavogur
Staða: Ótengdur

Póstur af @Arinn@ »

VÓ ! ég bý þarna rétt hjá svona 200metrum þar sem hann klesti á, það var sagt í fréttum að þessi gaur var útúr dópaður....
Skjámynd

zedro
Stjórnandi
Póstar: 2755
Skráði sig: Fös 29. Okt 2004 21:29
Staðsetning: Flight level 100
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af zedro »

Viðkomandi er akandi á 90+ þar sem hámarkshraði er 50 (og 30 á sumum svæðunum). Einnig í byrjun myndbandsins er hann keyrandi um á gangstétt.

Persónlega fynnst að hann eigi að fá mjöööög harðan dóm enda svona vitleysu áður en hún gengur út í gönur (held að máltakið hljóði svona).

Þetta gerðist um hálf eitt sem betur fer flestir krakkar í skólanum enda er þessi maður á 90+ í geng um íbúðahverfi.

Við getum þakkað fyrir að hann klessti bara á þennan pallbíl í lokin og ekki gangandi vegfaranda, og ég lít að það sem guðs lukku að það hafi enginn verið að bíða eftir strætisvagni!
Fractal Design: Define S - Aerocool Strike-X 1100W - ASRock 990FX Extreme9 AM3+ ATX - FX-9590 Vishera w/BeQuiet Silent Loop 360mm - G.Skill 16GB (2x8GB) Sniper 1866MHz DDR3 - Sapphire Fury X - 480GB SSD OS + 2TB DATA
Kísildalur.is þar sem nördin versla
Skjámynd

djjason
Ofur-Nörd
Póstar: 258
Skráði sig: Fim 06. Maí 2004 23:39
Staðsetning: Boston, MA
Staða: Ótengdur

Póstur af djjason »

Ég sá þetta myndband um daginn og fannst alveg svakalegt að horfa upp á þetta.

Skv. frænda mínum sem er lögregluþjónn í almennri deild í Reykjavík þá skillst mér að þetta sé mun algengara en við höldum...það eru bara hreint ekki allir atburðir sem rata í fréttirnar og minnihluti þeirra ef eitthvað er.
"Only wimps use tape backup: _real_ men just upload their important stuff on ftp, and let the rest of the world mirror it"
- Linus Thorvalds
Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 15436
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af GuðjónR »

Það er lítill munur á því að fullur/dópaður maður sé akandi á ofsahraða um íbúðarhverfi eða sá hinn sami væri að skjóta af riffli út í loftið.

Ef hann er með riffil þá fengi hann að dúsa inni tala nú ekki um ef hann drepur einhvern, en ef tilræðismaðurinn er á bíl þá fær hann í mestalagi sekt og bílinn er ekki einu sinni tekinn af honum.
Riffillinn væri án undantekninga tekinn af honum.

Lítið mál að drepa einhvern sem manni er í nöp við, bara keyra yfir hann.
Fáránlegt...

kristjanm
1+1=10
Póstar: 1196
Skráði sig: Sun 20. Jún 2004 23:07
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af kristjanm »

Svona er réttarkerfið á Íslandi, maðurinn sleppur sennilega út klukkutima seinna með einhverja smavægilega sekt.
Skjámynd

Stutturdreki
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1629
Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
Staða: Ótengdur

Póstur af Stutturdreki »

kristjanm skrifaði:Svona er réttarkerfið á Íslandi, maðurinn sleppur sennilega út klukkutima seinna með einhverja smavægilega sekt.
Um leið og málið telst 'upplýst' þá verða þeir að sleppa þér.
Skjámynd

djjason
Ofur-Nörd
Póstar: 258
Skráði sig: Fim 06. Maí 2004 23:39
Staðsetning: Boston, MA
Staða: Ótengdur

Póstur af djjason »

kristjanm skrifaði:Svona er réttarkerfið á Íslandi, maðurinn sleppur sennilega út klukkutima seinna með einhverja smavægilega sekt.
Sumir mál eru leyst með sektum önnur með fangelsisvist. Þannig er það bara, hvort að dómar sem enda með fangelsisvist séu vægir er efni í aðra umræðu.

Það er nú einusinni þannig að menn eru ef til vill færðir á lögreglustöð eftir að hafa verið staðnir að lögbroti. Málið er síðan kanski upplýst og endar fyrir dómstólum. Mönnum er þá sleppt úr haldi lögreglu á milli þess er málið er upplýst og þangað til dómsuppkvaðning fer fram. Iðulega reynir lögreglan að fara fram á gæsluvarðhald ef viðkomandi er talinn hættulegur almenningi. En fólki blöskrar oft hversu fáir virðast taldir hættulegir en það snýr enn og aftur að lagaheimildum.

Við viljum varla að mönnum sé haldið án dóms og laga í vörslu lögreglunnar (þangað til dómur er kveðinn upp). Svoleiðis taktík hefur nú ekki átt upp á pallborðið hjá Íslendingum hingað til og hafa þeir óspart látið aðrar þjóðir heyra það er stunda þessa iðju. Ekki viljum við lenda í því sama og í USA og fleirri löndum þar sem fangelsin eru yfirfull af fólki en stór hluti þeirra verður seint talinn til einhvers sérstaks hóps ógæfufólks eða atvinnuglæpamanna. Margir hafa einfaldlega verið staðnir að því að stunda smáglæpi eða jafnvel bara það að reykja hass. Það er frekar að þjóðirnar hafa einhvern einbeittan vilja til að fangelsa menn vegna ótrúlegustu smáglæpa.

Það þarf bara að herða á refsingum, því verður ekki endilega náð fram endilega með því að læsa menn inni. Ég er til dæmis þeirra skoðunnar að ævilöng svipting ökuréttinda eigi að nota í mörgum tilfellum umferðalagabrota. Auk þess finnst mér að skoða eigi þann möguleika á að láta fólk vinna vinnu í þágu samfélagsins eins og tíðkast víða. En eitt er klárt í mínum huga að ekki vil ég fara "Amerísku" leiðina og halda öllum inni bakvið lás og slá...einhver hlýtur millivegurinn að vera.
"Only wimps use tape backup: _real_ men just upload their important stuff on ftp, and let the rest of the world mirror it"
- Linus Thorvalds

kristjanm
1+1=10
Póstar: 1196
Skráði sig: Sun 20. Jún 2004 23:07
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af kristjanm »

Já mér finnst að við ættum að fara milliveginn á milli íslenska og bandaríska réttarkerfisins, þetta er allt of vægt hér og fullhart í bandaríkjunum.

Hérna getur barnaníðingur broti af sér, farið í fangelsí í ár eða nokkur ár, brotið aftur af sér og farið aftur í fangesi í smátíma, og leikur svo sama leikinn aftur og aftur.

Það er líka alveg fáránlegt að maður geti lamið annan mann eða jafnvel lögregluþjón án þess að fara í fangelsi.

gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af gumol »

Það fer nú allt eftir skaðanum sem maður veldur hvort og þá hvað langan fangelsisdóm hann fær. Of harðar refsingar eru verri en engar.
Svara