Ég er búinn að kaupa nýtt móðurborð, örgjörva (P4 2.4) og skjákort (Geforce FX5200).
Tölvan var með 800 mhz örgjörva og móðurborð sem fylgdi þessari vél (Getaway). Ég tók gömlu hlutina úr kassanum og setti nýju í
Ég setti allt saman eins og ég hélt að þetta ætti að vera og þegar ég reyndi svo að kveikja á tölvunni þá gerðist ekkert. Hún fór ekki í gang.
Hér er það sem ég held að sé að:
1.
Getur þetta tengst aflgjafanum í gamla kassanum? Getur verið að hann ráði ekki við nýju íhlutina? Þarf ég kannski að kaupa nýjann kassa?
2.
Síðan var ég líka í vandræðum með að finna staðinn á móðurborðinu þar sem ég átti að tengja snúruna sem fer úr power rofanum.
Ég veit hvar staðurinn er, bara ekki á hvaða pinna ég á að
tengja snúruna í.
Ég las um þetta í bæklingum sem fylgdi móðurborðinu og fór eftir því. Síðan reyndi ég að kveikja á henni, en hún fór ekki í gang.
Snúran og power rofinn er örugglega eitthvað Getaway dæmi og passar þessvegna ekki í.
---
Mér þykir líklegast að ég þurfi að kaupa nýjan kassa.
Í svona kössum sem maður kaupir, fylgir þá ekki snúra í rofa og aflgjafi o.f.l. nauðsynlegt?
ATH Ég er byrjandi í hardware málum og veit ekki mikið um þetta.
Spurning varðandi uppfærslu
-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 955
- Skráði sig: Mán 23. Sep 2002 21:17
- Staðsetning: Err Vaff Ká
- Staða: Ótengdur
Sko, power tengið úr aflgjafanum passar alveg 100% í móðurborðið(nema þetta sé eldgamall kassi, sem er ekki ATX), það er stærsta tengið úr aflgjafanum, ættir að finna það. Þú hefur Örugglega ekki tengt tengið fyrir power-takkann í kassanum á réttann stað, það á að vera útskýrt í móðurborðsleiðbeiningunum hvar það er sett í.
"open source fólkið gerir ekkert nema að stela hugmyndum annara" -- "open source fólk hugsar bara um sinn eigin rass" - IceCaveman, 2003
-
- Besserwisser
- Póstar: 3929
- Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
- Staðsetning: Kópavogur
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
halanegri: hann er að tala umm On/Off takkann
1. Í minni Gateway 933 MHz tölvu kom 300W PSU, svo það getur verið að það gangi
2.það ætti alveg að virka að nota þennan kassa, í flestum kössum eru snúrurnar úr On/Off takkanum(ljósunum o.s.frv.) lausar, en ekki eitt stórt tengi eins og hjá þér.
Þú þarft að tengja þetta þannig að power tengið á kassanum þínum fari á power tengið á móðurborðinu.
Ég get hjálpað þér betur ef þú getur sagt hvernig kassi þetta er nákvæmlega (full tower, middle tower, middle tower Ease Access o.s.frv.?

gumol, ég er með mid-tower held ég.
Hér eru myndir af kassanum sem ég er með:
Towerinn að framann:
http://support.gateway.com/support/manl ... 024c22.jpg
Towerinn að aftan:
http://support.gateway.com/support/manl ... 024c10.jpg
Ætti ég að geta tekið litlu snúrunar úr stykkinu í power tenginu og fest þannig í móðurborðið?