Réttur til að fá vöru á því verði sem hún er auglýst á hér.
Réttur til að fá vöru á því verði sem hún er auglýst á hér.
Er það rétt skilið að verslanir sem auglýsa sig á þessum vef beri sjálfar alfarið ábyrgð á því að upplýsingarnar séu réttar. Ég tók t.d. eftir því að verð á 250 GB disk hjá Tölvulistanum er á kr. 7.990 en ef maður fer inná heimasíðuna þeirra er lægsta verð 8.999. Ég held að samkvæmt kaupalögum eigi viðskiptavinur rétt á því að fá vöruna á því verði sem hún er auglýst á. Því á maður rétt á að fá það verð sem auglýst er hér annars er verið að brjóta á manni lög í.þ.m. verið að narra mann sem er ekki umræddri verslun til framdráttar.
Oskar Björnsson
þannig að ef ég segi við þig "þú getur fengið nýjasta Acer Laptoppinn með Core Duo og nVidia 7800 GO 512MB skjákorti á 2000kr í tölvulistanum", þýðir það þá að þú getir labbað þangað inn og fengið hana fyrir þann pening, bara vegna þess að það stóð hér?
hljómar ekki líklegt í mínum eyrum...
hljómar ekki líklegt í mínum eyrum...
"Give what you can, take what you need."
Þá erum við aftur komnir að því hver ber ábyrgðina á þessum verðupplýsingum verslunin eða eigendur vefsins. Það er neytendum óviðkomandi hvort búið sé að uppfæra einhverjar síður, það er verðið sem þeir sjá þegar þeir fara inn á síðuna sem gildir. Nema auðvitað ef ábyrgðin á þessum vef er ekki verslunarinnar.
Oskar Björnsson
-
- Vaktin er ávanabindandi
- Póstar: 1629
- Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
- Staða: Ótengdur
Þetta er ekki auglýsing, heldur saman tekt á verðum til að auðvelda verðsamanburð. (sem er náttúrulega ekkert að marka því td. í hörðudiskunum er verið að bera saman ólík merki og fleirra..) Vaktin.is er ekki á vegum verslananna sjálfa, heldur eingöngu einkaframtak einstaklinga.
Síðan, kemur augljóslega fram að verðin á hörðudiskum hjá Tölvulistanum hafa ekki verið uppfærð síðan 07.02 sem gefur að þau séu amk. rúmlega tveggja mánaða gömul. Miðað við breytingar á gengi íslensku krónunar síðustu daga og þar sem þetta eru nú svoldið gamlar tölur má fastlega gera ráð fyrir að upplýsingar séu frekar óáreiðanlegar. Verðin hafa samt líklega verið rétt á sínum tíma.

- Stjórnandi
- Póstar: 2755
- Skráði sig: Fös 29. Okt 2004 21:29
- Staðsetning: Flight level 100
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Gaur það stendur undir öllum lógóum fyrirtækjanna sem eru auglíst á
vaktinni lítil tala Dæmi: 07.02 Þetta er það sem við köllum
dagsetningu, þessi dagsetning er tekin úr flokknum sem þú hefur
verið að tala um. Hún gefur til kynna hvenar þessi flokkur var seinast
uppfærður. í þínu tilviki þá eru yfir 2mánuðir síðan.
Þannig að það er gefið til kynna hvernar verðin voru í gildi.

Fractal Design: Define S - Aerocool Strike-X 1100W - ASRock 990FX Extreme9 AM3+ ATX - FX-9590 Vishera w/BeQuiet Silent Loop 360mm - G.Skill 16GB (2x8GB) Sniper 1866MHz DDR3 - Sapphire Fury X - 480GB SSD OS + 2TB DATA
Kísildalur.is þar sem nördin versla
Kísildalur.is þar sem nördin versla
-
- Vaktin er ávanabindandi
- Póstar: 1629
- Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
- Staða: Ótengdur
Lestu skilmálanna á vaktin.isÓskarbj skrifaði:Ef að verðvaktin er á ábyrgð eiganda vefsins og hann ekki uppfærður daglega eins og gera má ráð fyrir að vefir verslananna sem auglýsa á vefnum séu, þá þarf að taka það fram á síðunni að svo sé og að verðin sem fram koma á vefnum séu leiðbeinandi og ekki rétt í öllum tilfellum.
Hvaða nöldur er þetta í þér annars?Flestar verslanirnar sjá sjálfar um uppfærslu á sínum verðum. Vaktin.is getur ekki ábyrgst verðin sem verslanir gefa upp né getum við ábyrgst að verslanir uppfæri verðin sín á Vaktinni á sama tíma og þær uppfæra hjá sér.
Vaktin.is á ekki að vera útistandandi, réttur verðlisti fyrir allar þessar verslanir. Vefurinn er vegvísir til að kynna bæði verð, vöruúrval. Við óskum þess að þú, kaupandi góður kynnir þér verðin sjálf(ur) á heimasíðum verslananna áður en haldið er út í verslunarleiðangur.
-
- Internetsérfræðingur
- Póstar: 6350
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Staðsetning: https://viktor.ms
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Segi það með þér.Voffinn skrifaði:Lestu skilmálanna á vaktin.isÓskarbj skrifaði:Ef að verðvaktin er á ábyrgð eiganda vefsins og hann ekki uppfærður daglega eins og gera má ráð fyrir að vefir verslananna sem auglýsa á vefnum séu, þá þarf að taka það fram á síðunni að svo sé og að verðin sem fram koma á vefnum séu leiðbeinandi og ekki rétt í öllum tilfellum.
Hvaða nöldur er þetta í þér annars?Flestar verslanirnar sjá sjálfar um uppfærslu á sínum verðum. Vaktin.is getur ekki ábyrgst verðin sem verslanir gefa upp né getum við ábyrgst að verslanir uppfæri verðin sín á Vaktinni á sama tíma og þær uppfæra hjá sér.
Vaktin.is á ekki að vera útistandandi, réttur verðlisti fyrir allar þessar verslanir. Vefurinn er vegvísir til að kynna bæði verð, vöruúrval. Við óskum þess að þú, kaupandi góður kynnir þér verðin sjálf(ur) á heimasíðum verslananna áður en haldið er út í verslunarleiðangur.
Thinkpad P1 • i7-10875H • NVIDIA Quadro T1000 • Samsung 32GB 3200Mhz • Toshiba 1TB SSD
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller

Ég verð að viðurkenna að ég hefði mátt lesa mér betur til en eigi að síður þá eru það fleiri en nördar sem fara inn á Verðvaktina og eins og nafnið gefur til kynna þá gerir almennur neytandi ráð fyrir því að síðan standi undir nafni og vakti verð.
Varðandi dagsetningar undir logoi fyrirtækjanna þá hafði ég ekki tekið eftir þeim eða lagt neina merkingu í þær enda stendur hvergi á síðunni sjálfri að um dagsetningar sé að ræða enda eru dagsetningar vanalega skrifaðar með ártali einnig.
Hvernig á almenningur að átta sig á því að það þurfi að fara í skilmála til að skilja síðuna og upplýsingarnar sem þar eru. Ég fer í skilmála ef ég þarf að auglýsa sjálfur á síðunni ekki til að fá þaðan upplýsingar.

- Tölvutryllir
- Póstar: 651
- Skráði sig: Lau 31. Des 2005 16:42
- Staðsetning: Eyjar
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Leiðist þér eitthvað? Eða viltu bara knús?
kveðja, Rusty
»› http://www.snobbinn.com // rusty.half-life.is // snobbinn@snobbinn.com
»› http://www.snobbinn.com // rusty.half-life.is // snobbinn@snobbinn.com
-
- Vaktin er ávanabindandi
- Póstar: 1629
- Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
- Staða: Ótengdur
Almenningur les ekki heldur skilmálana með örbylgjuofnunum sínum.. eða bara skilmála yfirhöfuð hvar sem þeir eru. Það er samt engin afsökun þegar þú ert búinn að skella hamstrinnum nokkra hringi.Óskarbj skrifaði:.. Hvernig á almenningur að átta sig á því að það þurfi að fara í skilmála til að skilja síðuna og upplýsingarnar sem þar eru. ..
Hitt er síðan annað mál, að við (sem höfum tekið að okkur að uppfæra verðin hjá þeim búðum sem gera það ekki sjálfar) höfum verið frekar lélegir í því frá áramótum. Lýsi ég því hér með yfir að ég ætli að reyna að standa mig betur í því héðan af.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 2569
- Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
- Staðsetning: Á þessu spjalli
- Staða: Ótengdur
Óskarbj skrifaði:Ég verð að viðurkenna að ég hefði mátt lesa mér betur til en eigi að síður þá eru það fleiri en nördar sem fara inn á Verðvaktina og eins og nafnið gefur til kynna þá gerir almennur neytandi ráð fyrir því að síðan standi undir nafni og vakti verð.
Varðandi dagsetningar undir logoi fyrirtækjanna þá hafði ég ekki tekið eftir þeim eða lagt neina merkingu í þær enda stendur hvergi á síðunni sjálfri að um dagsetningar sé að ræða enda eru dagsetningar vanalega skrifaðar með ártali einnig.
Hvernig á almenningur að átta sig á því að það þurfi að fara í skilmála til að skilja síðuna og upplýsingarnar sem þar eru. Ég fer í skilmála ef ég þarf að auglýsa sjálfur á síðunni ekki til að fá þaðan upplýsingar.
Ertu að væla undan ókeypis þjónustu án gífurlegrar auglýsinga ?
jammjamm..ætla hengja upp post-it miða svo ég muni =/ (annars uppfærast verðin á síðunum frekar hægt líkaStutturdreki skrifaði:Almenningur les ekki heldur skilmálana með örbylgjuofnunum sínum.. eða bara skilmála yfirhöfuð hvar sem þeir eru. Það er samt engin afsökun þegar þú ert búinn að skella hamstrinnum nokkra hringi.Óskarbj skrifaði:.. Hvernig á almenningur að átta sig á því að það þurfi að fara í skilmála til að skilja síðuna og upplýsingarnar sem þar eru. ..
Hitt er síðan annað mál, að við (sem höfum tekið að okkur að uppfæra verðin hjá þeim búðum sem gera það ekki sjálfar) höfum verið frekar lélegir í því frá áramótum. Lýsi ég því hér með yfir að ég ætli að reyna að standa mig betur í því héðan af.

Tekið af grein frá Neytendasamtökunum
Kóði: Velja allt
5.5 Rangt verð í auglýsingu
Stundum kemur fyrir, að auglýsingar eru rangar t.d. að verð á þvottavél sé kr. 6.000.- í staðinn fyrir kr. 60.000.- Getur neytandinn þá krafið seljandann um vöruna á auglýsta verðinu? Svarið er oftast nei. Upphæðir, sem gefnar eru í auglýsingum teljast almennt ekki bindandi fyrir auglýsandann. Venjulega er litið á auglýsingu, sem hvatningu fyrir neytandann til að eiga viðskipti við seljandann. Skilmálar kaupanna og verðið er ákveðið þegar kaupandi og seljandi eiga viðskiptin sín á milli.
Í þessu sambandi er þó nauðsynlegt, að fram komi, að auglýst verð getur bundið seljandann. Þróun neytendaréttarins hefur verið í þá átt, að auglýsing er í auknum mæli skuldbindandi fyrir kaupandann.
Dæmi: Algengt er einkum hvað varðar ferðalög, að auglýst sé verð til ákveðins ákvörðunarstaðar t.d. frá kr. 15.000.- Þegar þú hringir síðan í ferðaskrifstofuna, er þér sagt, að því miður séu allar ódýru ferðirnar uppseldar, en eftir séu nokkrar ferðir sem kosti kr. 28.000.- Í þessu tilviki getur þú ekki krafist þess að kaupa ferðina á því verði, sem stóð í auglýsingunni. Seljandinn yrði þó að hafa ákveðnar ferðir til sölu á því verði, sem hann auglýsti lægst og sama gildir raunar um búðina, ef hún auglýsir vöru á ákveðnu verði. Hversu mikið fer eftir því hvaða vöru er um að ræða. Sé um mjög fáar ferðir að ræða á því verði, sem ferðaskrifstofan auglýsir lægst, þá ætti að taka það fram sérstaklega í auglýsingunni. Sé það ekki gert og vörurnar eru fáar t.d. ein ferð á lægsta verðinu, þá er um villandi auglýsingu að ræða, en það er brot á reglum um auglýsingar og slíkar auglýsingar er hægt að banna. Þó að svona auglýsing sé bönnuð, gefur það samt neytandanum venjulega ekki sérstakan rétt til að kaupa ódýru ferðina eða ódýru þvottavélina á því verði, sem auglýst var.
Modus ponens
-
- Vaktin er ávanabindandi
- Póstar: 1629
- Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
- Staða: Ótengdur