26" lcd sjónvarp..

Svara

Höfundur
Jellyman
Nörd
Póstar: 107
Skráði sig: Mán 02. Jan 2006 16:33
Staða: Ótengdur

26" lcd sjónvarp..

Póstur af Jellyman »

Ég er ætla að fá mér 26" sjónavap en er rosalega ruglaður hvaða :?
Var að pæla í sjónvörpunum í elko en er samt ekki viss..
Ég ætla helst að nota það til að tengja tölvuna við og horfa á HD myndir og video í því, held ég verði ekkert mikið að horfa á sjónvarpsrásir.
Þannig að ég spyr hver er munurinn hvort ég kaupi sjóvarp eins og þetta:
LINK
eða á Íslandi.. ég veit að það er svona NTSC og PAL en hvaða máli skiptir það mig :?
ef það er ekki möguleiki að fá það frá útlöndum hvaða sjónvarp á maður þá að fá sér :?:
Last edited by Jellyman on Fös 21. Apr 2006 14:04, edited 1 time in total.
Skjámynd

Sallarólegur
Internetsérfræðingur
Póstar: 6350
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Staðsetning: https://viktor.ms
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af Sallarólegur »

Page not responding.
Thinkpad P1 • i7-10875H • NVIDIA Quadro T1000 • Samsung 32GB 3200Mhz • Toshiba 1TB SSD

G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless

Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz

EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller

Höfundur
Jellyman
Nörd
Póstar: 107
Skráði sig: Mán 02. Jan 2006 16:33
Staða: Ótengdur

Póstur af Jellyman »

Búinn að laga.. :wink:

Gestir
Staða: Ótengdur

Póstur af Gestir »

borgar sig ekkert

farðu bara í sjónvarpsmiðstöðina og fáðu þér tæki ;)


og þú þarft klárlega HD READY en ekki HDTV ready.. það er alveg tvennt ólíkt.

Holy Smoke
Nörd
Póstar: 109
Skráði sig: Þri 22. Jún 2004 19:34
Staða: Ótengdur

Póstur af Holy Smoke »

Ég er með 26" Viewpia sem ég er mjög ánægður með. Það lítur mjög vel út í Windows, en var dáldið erfitt að setja upp til að fá 1:1 pixel mapping. Ekki mjög, en tók mig tíma að finna það út, og ekkert mál eftir það. Ég þekki ekki sjónvörpin í Sjónvarpsmiðstöðinni, þannig að ég veit ekki hvort það sé eitthvað auðveldara á þeim, en annars er 1:1 pixel mapping ekkert aðalatriði þegar kemur að bíómyndum. Texti í Windows lítur örlítið betur út þannig en það nær lítið lengra en það.

Eitt mjög mikilvægt sem þú þarft að passa upp á (burtséð frá myndgæðum) er að sjónvarpið styðji HDCP, sem er copy-vörn og verður stöðluð í HD-DVD og BluRay á næstu árum. Ef sjónvarpið styður það ekki gæti farið illa þegar þar að kemur, þar sem þú myndir ekki fá myndina í hi-definition heldur venjulegum DVD gæðum. Það er ennþá dáldið í það, en það mun koma að því.

Passaðu bara upp á að kaupa ekki eitthvað 640x480 eða 800x600 tæki. Þú vilt alveg lágmark 1280x720 upplausn, því annars er það ekki alvöru HD eins og Ómar minntist á hér að ofan. Passaðu líka upp á að það hafi almennileg tengi. Þú vilt amk hafa VGA og HDCP-vætt DVI eða HDMI, og helst component tengi líka.

Höfundur
Jellyman
Nörd
Póstar: 107
Skráði sig: Mán 02. Jan 2006 16:33
Staða: Ótengdur

Póstur af Jellyman »

Já,ok..
En hérna seigjiði mér eitt.. ætli þetta sé ekki fínasta sjónvarp fyrir mig?
eða mynduð þið frekar mæla með eitthverju öðru?

Takk fyrir svörin :D
Skjámynd

Silly
Ofur-Nörd
Póstar: 224
Skráði sig: Sun 22. Jún 2003 12:18
Staðsetning: Reykjanesbær
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af Silly »

Og eins og hinir eru að segja. Ekki klikka á að kaupa tæki án Hdmi tengis :P Og 720p eða hærra er möst sem native upplausn.

@Arinn@
Kerfisstjóri
Póstar: 1277
Skráði sig: Þri 03. Maí 2005 18:39
Staðsetning: Kópavogur
Staða: Ótengdur

Póstur af @Arinn@ »

"off topic"

Silly hvað ertu að skora í testum með þessa vél sem þú ert með ?
Skjámynd

Silly
Ofur-Nörd
Póstar: 224
Skráði sig: Sun 22. Jún 2003 12:18
Staðsetning: Reykjanesbær
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af Silly »

Ég mun pósta info og pics í næstu viku. Er enn að bíða eftir að fá vélina var smá töf að redda power supplyinu. Mér til dundur setti ég vélina bara inní undirskriftina þangað til :D

Holy Smoke
Nörd
Póstar: 109
Skráði sig: Þri 22. Jún 2004 19:34
Staða: Ótengdur

Póstur af Holy Smoke »

Jellyman skrifaði:Já,ok..
En hérna seigjiði mér eitt.. ætli þetta sé ekki fínasta sjónvarp fyrir mig?
eða mynduð þið frekar mæla með eitthverju öðru?

Takk fyrir svörin :D


Ég þori ekki að fullyrða um neitt af því ég þekki ekki þetta ákveðna tæki, en sum/flest 1280x768 tæki eru ekki með fullkomlega ferhyrnda pixla, sem er nokkuð sem þú vilt varast ef þú ætlar að tengja sjónvarpið við tölvu.

Málin standa þannig að 1280x720 og 1360x768 tæki eru með 'aspect ratio' upp á 16:9, eða með öðrum orðum þá eru þau 1.77 sinnum lengri á breidd en þau eru á hæð (1280/720=1.77; 1360/768=1.77). Á hinn bógin eru 1280x768 tæki til í tveimur útgáfum: Annars vegar eru þau til sem 16:10 tæki, en þá eru þau 1.66 sinnum lengri á breidd en hæð (1280/768=1.66), og hins vegar eru þau líka til sem 16:9 tæki. En af því að 1280x768 er ekki 16:9 hlutfall, þá er bætt upp fyrir þennan mun með því að pixlarnir eru ekki lengur fullkomnir ferningar, heldur eru þeir lengri á hæð en á breidd. Með öðrum orðum, þá er hver pixell mjórri á (sumum) 1280x768 skjám en 1280x720 eða 1360x768 skjám. Það sem þetta þýðir er að þó þú tækir aldrei eftir þessu ef þú værir að horfa á bíómynd eða spila tölvuleik í sjónvarpinu, þá gildir allt öðru t.d. ef þú værir að lesa texta í Windows.

Hvað sem því líður sýnist mér þetta vera fínasta sjónvarp (að því gefnu pixlarnir sé hlutfallslega réttir), en mér finnst verðið vera hálf vafasamt. Það er spurning hvort þú fáir ekki sambærilegt sjónvarp fyrir lægra verð. Og ef þú ætlar að nota það í Windows viltu hafa "alvöru" 16:9 sjónvarp.

Update:

Skv. því sem ég sé hérna http://www.prisjakt.nu/produkt.php?e=46951 þá eru upplýsingarnar hjá Elko BANDvitlausar. Flestar heimasíður segja að það sé 1280x720 á meðan aðrar segja 1360x768. Tékkaðu bara á því hjá Elko.

Höfundur
Jellyman
Nörd
Póstar: 107
Skráði sig: Mán 02. Jan 2006 16:33
Staða: Ótengdur

Póstur af Jellyman »

Já, sko ég er að fara á morgunn að kaupa sjónvarp og hvað það kostar skiptir kanski ekki öllu máli(má samt ekki vera ALLTOF dýrt)
bara það að það sé í kringum 26".. hvaða sjónvarp er nú best, sniðugast að kaua :D :?:

EDIT: núna er mér farið að lýtast ansi vel á þetta
sjónvarp er það kanski ekki bara málið?

goldfinger
spjallið.is
Póstar: 466
Skráði sig: Mán 03. Nóv 2003 10:06
Staða: Ótengdur

Póstur af goldfinger »

Phillips tækin eru sum fín.

Höfundur
Jellyman
Nörd
Póstar: 107
Skráði sig: Mán 02. Jan 2006 16:33
Staða: Ótengdur

Póstur af Jellyman »

já.. LG eru víst það sama og philips skilst mér..(dótturfyrirtæki)
Skjámynd

B31N1R
Nýliði
Póstar: 15
Skráði sig: Mið 13. Ágú 2003 19:09
Staðsetning: 00:0E:2D:AA:43:01
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af B31N1R »

Ég er sjálfur búinn að fá mér Viewpia eftir að hafa valsað um Elko, Bt, Sjónvarpsmiðstöðina, Svar, EJS og Tölvulistann.
Fékk mér 32" tækið þar sem að mér fannst það skýrast og það er líka HD Ready og styður 720p og 1080i.
Svo er það með venjulegu VGA tengi, DVI, 2x scart, loftnetstengi og RGB tengi.
Ég reyndar keypti það ekki af svar sjálfum, enda 149 þúsund þar, heldur í Borgarnesi í Vefversluninni þar og það var þess virði, enda borgaði ég ekki nema 137.900 þar og er samt með ábyrgð hjá Svar.
Þetta keyrir líka í 1366x768 í upplausn og myndin gegnum breiðbandið er súper og DVD og svo 720p upplausnar þættir sem ég hef "reddað" mér eru ótrúlegir í gæðum.

Slóðin á tækið hjá Svar er hér.http://www.svar.is/vorur/?path=/resources/Controls/24.ascx&Groups=67#viewpia32

Slóðin á búðina sem ég keypti tækið er í hér. http://vefverslun.com/index.php?cPath=58&osCsid=c727bfff6b87c8d8dbcc1a1a8945cf1b

P.S.
Til að prófa gæðin í tækjunum er að fara með eigin DVD mynd sem maður er viss á að prófi alla liti og grátóna vel í tækjunum, t.d. Toys með Robin Williams er snilld í svona prófanir, enda litrík og reynir líka á skerpu tækisins í leiðinni ásamt grátónum.
Lífið er of stutt til að leggja stund á eitthvað leiðinlegt.
Skjámynd

Silly
Ofur-Nörd
Póstar: 224
Skráði sig: Sun 22. Jún 2003 12:18
Staðsetning: Reykjanesbær
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af Silly »

Hmmm þú virðist hafa gert höfuð mistökin og verslað tæki sem er ekki með Hdmi né Component. Ouch þín vegna seinna meir :cry:

Höfundur
Jellyman
Nörd
Póstar: 107
Skráði sig: Mán 02. Jan 2006 16:33
Staða: Ótengdur

Póstur af Jellyman »

Ég er kominn með tækið og það er með HDMI tengi og component. Þessir í Elko eru bara svo miklir vitleysingjar!
Þetta tæki er algjör snilld!! Frábær mynd og upplausn og allt.. er núna að nota það sem tölvskjá í 1360x768!
Er oft að horfa á HD myndir og þær koma allveg ótrúlega vel út!

En hérna annars er Þetta Viewpia sjónvarp nokkuð með HDMI tengi? :?

Holy Smoke
Nörd
Póstar: 109
Skráði sig: Þri 22. Jún 2004 19:34
Staða: Ótengdur

Póstur af Holy Smoke »

Silly skrifaði:Hmmm þú virðist hafa gert höfuð mistökin og verslað tæki sem er ekki með Hdmi né Component. Ouch þín vegna seinna meir :cry:


Alls ekki.

Viewpia er ekki með HDMI tengi, en það styður samt HDMI, og þar með Blu-Ray og HD-DVD í fullum gæðum. HDMI er bara DVI-plús-hljóð, og Viewpia tækin styðja HDCP í gegnum DVI tengið. Það fylgir HDMI > DVI kapall með tækinu, og það eina sem breytist er að þá þarf sér snúru fyrir hljóð (sem þarf hvort eð er ef þú ætlar að tengja við magnara).

Edit: Þau eru, by the way, líka með component tengi.
Last edited by Holy Smoke on Fim 27. Apr 2006 20:53, edited 2 times in total.
Skjámynd

Silly
Ofur-Nörd
Póstar: 224
Skráði sig: Sun 22. Jún 2003 12:18
Staðsetning: Reykjanesbær
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af Silly »

Enn Hdmi er með HDCP og það er það þú munnt þurfa til að rúlla Blue-Ray eða HD-Dvd seinna meir. Svo then you will be fucked.

Holy Smoke
Nörd
Póstar: 109
Skráði sig: Þri 22. Jún 2004 19:34
Staða: Ótengdur

Póstur af Holy Smoke »

Aftur, nei. Svo lengi sem tækið styður HDCP skiptir engu máli hvort það sé með HDMI eða DVI tengi. HDMI og DVI nota nákvæmlega sama signal.
Skjámynd

Silly
Ofur-Nörd
Póstar: 224
Skráði sig: Sun 22. Jún 2003 12:18
Staðsetning: Reykjanesbær
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af Silly »

Spilararnir munu þrátt fyrir það nota Hdmi sem tengingu ekki Dvi. T.d er skyHd núna með dvi tengi á boxunum sýnum enn seinna segja þeir að til að fá Hd sendingarnar þeirra verður maður að vera með hdmi.

Holy Smoke
Nörd
Póstar: 109
Skráði sig: Þri 22. Jún 2004 19:34
Staða: Ótengdur

Póstur af Holy Smoke »

Aftur, þú þarft ekki sjónvarp með HDMI tengi þó boxið/spilarinn sé með það. Svo lengi sem sjónvarpið sé með DVI tengi og styðji HDCP, þá þarftu ekki nema eitt lítið breytistykki til að HDMI spilari og DVI sjónvarp virki saman.

Mynd

Jonki.exe
Nýliði
Póstar: 24
Skráði sig: Fim 16. Feb 2006 17:03
Staða: Ótengdur

Póstur af Jonki.exe »

Jonki | nvidia 6800GT | 200gb hdd | 19" Dell skjár | AMD 3200+ örgjafi.......

Jonki.exe
Nýliði
Póstar: 24
Skráði sig: Fim 16. Feb 2006 17:03
Staða: Ótengdur

Póstur af Jonki.exe »

hehe lol vitlaust spjall
Jonki | nvidia 6800GT | 200gb hdd | 19" Dell skjár | AMD 3200+ örgjafi.......
Svara