Jæja þá er Oblivion að koma út og gamla góða Ti 4400 (frábært kort btw er ekki lengur að meika það!
Restin af vélinni er ennþá ok (er með 2.8 intel) þannig að ég vil ekki fara að spandera í nýtt móðurborð sem styður PCI express. Það virðist vera um frekar lítið val en að fá sér 6600 GT þannig að spurningin er hvað er besta kortið? Eitthvað kort sem er með 256mb eða eru þau öll bara með 128?
@hahallur
Jamm, veit að þetta er 6800gs kort enda sagði ég aldrei að ekkert annað en 6600gt kæmi til greina... mig vantar bara besta kortið til að spila oblivion án þess að setja mig á hausinn.
@gnarr
Þekkir þú þetta EVGA 6800gs kort sem ég linkaði á? Hef enga reynslu af EVGA en er það rétt skilið að þeir séu nokkuð traustir???
7800 kort er of dýrt en 6800 gsinn gæti verið innan budget ef maður er að fá samsvarandi meiri hraða og futureproofness (miðað við kostnað) umfram 6600gt... (mun ekki uppfæra tölvuna meira amk út þetta ár og hugsanlega lengur)
Vei.. annar Dreki.. nú getum við teamað upp og lamið OmarSmith sem finnst Drekar ekkert töff..
Anyroad. held þú sert að gera nokkuð góð kaup með 6800gs en það er ekki til neitt sem er 'futureproof' þegar tölvur eru annars vegar, þú ert kannski að kaupa þér eitt til tvö ár í viðbót
Sjálfur er ég í sömu stöðu og þú.. með AGP móðurborð og ekki beint á leiðinni að skipta svo ég fékk mér x850xt fyrir áramót, hefði sennilega farið í 7800gs.. en það var bara ekki komið út þegar ég keypti ati kortið.
seinast þegar að ég tók smá rúnt yfir 6600gt kortin sem að voru í boði hérna á íslandi þá var msi kortið dýrast og eina sem það hafði yfir önnur kort var lélegur leikjapakki og örlítið hljóðlátara enn yfirklukkast ekki alveg jafnvel
Ég er með 6800gs og get keyrt Oblivion demoið í 1280x768 @85hz.Lítur mjög vel út svoleiðis og það hitnar ekki einusinni mikið í þessari upplausn.
Asus P5N-E-SLI, E6300@3.5GHz m/Termalright Ultra, 4x1GB CL4 Black Dragon minni,Gigabyte 9600GT SLI@800MHz,160GB+500GB+2x1TB, pakkaði inn í Coolermaster Elite 332.
Ertu kannski að tala um video demoin sem beth hafa látið frá sér? Ekki alveg sama dæmi að spila leikinn sjálfan eða bara video af leiknum...
Anyways þá sýnist mér eftir að hafa browsað forumin á elder scrolls að 6600 kortin eru varla að meika leikinn og að helst þurfi maður að hafa nýjustu generation af kortum
Jæja, ætli maður fari þá ekki milliveginn og fái sér 6800, verst hvað það er lítið úrval af þessum kortum hérna á klakanum, finn bara þetta eina á computer.is (á þessu verðbili)
ég er með sparkle 6600gt sem ég keypti fyrir hálfu ári síðan, og það kostaði þá 1000 kalli meira en það gerir núna, mér finnst það hálf einkennilegt hversu hægt það er að lækka í verði