Ég var að spá í hvort þið gætuð nokkuð hjálpað mér að komast að því hvað er að angra tölvuna mína.
Þegar ég kveikji á tölvunni þá gengur allt eins og á að vera, reyndar er chipset viftan ekki alveg að gera sig ( fer á 50% hraða ). Þegar ég kem inn í tölvuna þá virkar allt á eðlilegum hraða en svo eftir svona 10 - 15 min þá ' slökknar ' á skjánum mínum ( Það kemur upp ' No Signal ' og svo slökknar á skjánum ) og eina leiðinn til þes að laga þetta er að slökkva á tölvunni og bíða í smá stund. Ef ég reyni að kveikja á henni strax þá kveiknar ekki aftur á skjánum. Ég hef prufað að skipta um skjákort drivera, hreinsa vifturnar ( viftan á skjákortinu virkar ) og enn lagast þetta ekki. Var að spá hvort þetta stafi af ófhitnun vegna lélegrar chipset viftu eða er bara skjákortið að gefa sig ? Öll hjálp er vel þegin.
Takk fyrir.
Skjárinn verður svartur
Hmmm
Vera viss um að skjárinn sé tengdur við DVI-1.
Hvernig skjákort ertu með og hvernig móðurborð ?
Hver er hitinn á skjákortinu og móðurborðinu ? Ef skjákortið verður of heitt til að halda utan um það þá getur það verið hitavandamál(nema þú sért með high end skjákort).
Móðurborðshitann geturðu séð í BIOS , 34° +/-10 er ekki ólíklegt á því.
Gæti verið orkugjafinn, eitthvað sem þú ert nýlega búinn að bæta í tölvuna ?
Er mismunandi tími eftir því hvort vélin er að vinna eða ekki ?
Athugaðu tímann sem hún helst uppi í IDLE og svo í fullri vinnslu.

-
Seras
Höfundur - Nýliði
- Póstar: 3
- Skráði sig: Mið 25. Jan 2006 21:51
- Staðsetning: Akureyri
- Staða: Ótengdur
Ég er með AMD Athlon (tm) XP 2500+ og NVIDIA GeForce Ti 4200. Ég hef ekki bætt neinu nýju við í tölvuna, en þetta byrjaði að gerast eftir að ég kom heim með tölvuna ( fór með hana í flug ). Hitastigið var 39, en aftur á móti þá var chipset eða hvað sem það heitir eina sem var of heitt til þess að halda um eftir að það slökknaði á henni, það hefur oftast slökknað á henni meðan ég er í tölvuleik. Þannig að ég er byrjaður að halda að ég þurfi bara nýja viftu, vildi bara vera viss.mind skrifaði:Hmmm