Þannig er að eg var svo duglegur og var að taka til i herberginu minu og áhvað að taka tölvuna i gegn og teingja hana aftur þar sem allar snurur voru orðar svo flæktar Þannig er að eg setti þetta allt saman (alveg rétta skom) enn einvhað er að eg get alveg kveikt a tölvuni og enn skjamyndinn kemur ekki i skjainn eða skjarinn er alveg okey bara kemur no signal..... Eg var að husa hvort móðuborðið lesi minnið og gáði af þvi og það var alveg fast i allavegana
Ef einhver veit hvað getur verið að þá bara tjá sig
Ég verð að játa að mér þykir bilanagreiningin fremur áhugaverð, þú kippir öllum snúrum úr sambandi og setur aftur í samband og færð þá "no signal" á skjáinn og athugar þá minnið. Ég myndi nú bara athuga hvort þú hafir brotið pinna í skjátenginu eða hvort skjárinn er yfirleitt tengdur við tölvuna.
Nýbúin að lenda í því sama. Ætlaði að taka viftuna af skjákortinu mínu og setja örgjörva viftu í staðin (eitthvað sem fylgdi örgjörvanum, en er með zalman á honum), en eftir að hafa losað allar skrúfur var viftan enn pikk föst. Þannig, ég lagaði til eftir mig, hennti skjákortinu aftur inn, og teipaði bara örgjörvaviftuna tvem slottum neðar svo hún dæli köldu lofti á skjákortið. Þegar það var búið prófaði ég að kveikja á tölvunni. Í fyrstu pípaði skjákortið alveg rosalega, en það var því ég gleimdi að tengja rafmagn við það. En svo loksins þegar ég var búin að tengja allt saman kom engin mynd á skjáinn. Ég slökkti þá á henni, kippti skjákortinu úr, blés á það í örvæntingu, og setti það aftur inn. Ekkert virkaði. Fiktaði eitthvað enn meira en ætlaði ekki að fá þetta til að virka. Þannig í lokin, tók ég skjákortið úr, fúll yfir því, og horfði bara á það er ég hélt á því. Hennti því svo bara aftur inn frekar svekktur. En uppá fönnið setti ég það aftur inn og kveikti á tölvunni, og voila. Allt lagað...
Þú hefur rekið þig í skjásnúruna, og hún hefur *ýtt* við AGP/PCIE kortinu þínu þannig að það sitji ekki lengur rétt í raufinni. Þú verður að opna kassann og taka kortið úr, og svo setja það aftur rétt inn, og þrýsta því sæmilega vel inn og hananú.
appel skrifaði:Þú hefur rekið þig í skjásnúruna, og hún hefur *ýtt* við AGP/PCIE kortinu þínu þannig að það sitji ekki lengur rétt í raufinni. Þú verður að opna kassann og taka kortið úr, og svo setja það aftur rétt inn, og þrýsta því sæmilega vel inn og hananú.
Hef nokkrum sinnum lent í þessu áður.
Notaru ekki skrúfur í kassanum þínum??? ég held að þetta sé nú vææægast sagt sjaldgæft vandamál.
OK... þetta hljómar nú eins og e-h voða einfalt.
Þú tókst allt úr sambandi, settir allt í samband aftur og þá er skjárinn bilaður....
Athugaðu tengingarnar aftur.. gættu þess að skjárinn er tengdur í skjákortið en ekki í on-board skjákortið á móðuborðinu.
Ætlaði að taka viftuna af skjákortinu mínu og setja örgjörva viftu í staðin (eitthvað sem fylgdi örgjörvanum, en er með zalman á honum), en eftir að hafa losað allar skrúfur var viftan enn pikk föst.
Ef viftan er pikkföst á skjákortinu, taktu þá hárblásara, kveiktu á honum og blástu heitu lofti á kortið í smástund. Það hitar upp límið sem að er undir skjákortskælingunni. Núna ættir þú að geta fjarlægt kælinguna. Settu svo hreinsispritt á eyrnarpinna og fjarlægðu límið af örgjörvanum á skjákortinu.
Ætlaði að taka viftuna af skjákortinu mínu og setja örgjörva viftu í staðin (eitthvað sem fylgdi örgjörvanum, en er með zalman á honum), en eftir að hafa losað allar skrúfur var viftan enn pikk föst.
Ef viftan er pikkföst á skjákortinu, taktu þá hárblásara, kveiktu á honum og blástu heitu lofti á kortið í smástund. Það hitar upp límið sem að er undir skjákortskælingunni. Núna ættir þú að geta fjarlægt kælinguna. Settu svo hreinsispritt á eyrnarpinna og fjarlægðu límið af örgjörvanum á skjákortinu.
Var þetta þá bara hitakrem sem hélt þessu föstu eða?