Shuttle - Kæling - Viftur


Höfundur
Gestir
Staða: Ótengdur

Shuttle - Kæling - Viftur

Póstur af Gestir »

Sælir.

Núna var ég að fá mér Xpress Shuttle. Mjög fín og flott og allt það en eg myndi vilja heyra minna í henni samt.

Gnarr vildi meina að hún væri silent en þetta kalla ég ekki silent. Er eitthvað forrit sem ég get notað til að hækka og lækka í henni og annað.

Hvernig mæli ég hitan í Shuttlunni .t.d á skjákorti og í vél.

sýnist að speedfan sé ekki að fatta þetta og auk þess restartar hún alltaf þegar ég runna speedfan ( búinn að reinstalla ) en breytti engu.

galileo
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 376
Skráði sig: Fös 21. Jan 2005 19:51
Staðsetning: Garðabær
Staða: Ótengdur

Póstur af galileo »

þú getur reynt að gera moddið þar sem þú lækkar rifur einhverja/r snúru/r úr mólex tenginu sem er í viftunni ef það er Molex. :twisted: Hef lesið að það sé ekki mikið mál.
Mac Book Pro 17"

Birkir
Kerfisstjóri
Póstar: 1284
Skráði sig: Fim 13. Nóv 2003 15:57
Staðsetning: Utan þjónustusvæðis
Staða: Ótengdur

Póstur af Birkir »

galileo skrifaði:þú getur reynt að gera moddið þar sem þú lækkar rifur einhverja/r snúru/r úr mólex tenginu sem er í viftunni ef það er Molex. :twisted: Hef lesið að það sé ekki mikið mál.
Breyta voltunum sem fara til viftunnar.

Höfundur
Gestir
Staða: Ótengdur

Póstur af Gestir »

Um hvað er hann að tala ???

Þetta er líklegasta ólæsilegasta svar sem ég hef séð .. ha ha ha ha


Modd hvað .. :!: :idea:

Birkir
Kerfisstjóri
Póstar: 1284
Skráði sig: Fim 13. Nóv 2003 15:57
Staðsetning: Utan þjónustusvæðis
Staða: Ótengdur

Póstur af Birkir »

ÓmarSmith skrifaði:Um hvað er hann að tala ???

Þetta er líklegasta ólæsilegasta svar sem ég hef séð .. ha ha ha ha


Modd hvað .. :!: :idea:
Hann er að tala um það að í molex tengi liggja fjórar snúrur, ef þú tekur eina þeirra (það er einhver ákveðin, ekki bara random) úr sambandi þá á tengið að gefa 5v eða 7v (ef ég man rétt) í staðinn fyrir 12v.

Höfundur
Gestir
Staða: Ótengdur

Póstur af Gestir »

Það er enginn að fara að rífa neitt úr sambandi og "FIKTA" til að græja þetta :)

Það er til einhver önnur leið. Ein þeirra er í gegnum BIOS í SmartFan en það er soldið pirrandi leið.

Birkir
Kerfisstjóri
Póstar: 1284
Skráði sig: Fim 13. Nóv 2003 15:57
Staðsetning: Utan þjónustusvæðis
Staða: Ótengdur

Póstur af Birkir »

ÓmarSmith skrifaði:Það er enginn að fara að rífa neitt úr sambandi og "FIKTA" til að græja þetta :)

Það er til einhver önnur leið. Ein þeirra er í gegnum BIOS í SmartFan en það er soldið pirrandi leið.
Hvaa.. Smá skítamix sakar aldrei. :P
Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6208
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af gnarr »

hvað þykir þér að smartfan? þá heyrist aldrei í henni nema rétt á meðan þú ert í leikjum eða að nota örgjörfann mjög mikið.
"Give what you can, take what you need."

Höfundur
Gestir
Staða: Ótengdur

Póstur af Gestir »

Uhh... er þetta eitthvað vitlaust eða . Vélin er ekkert að gera en samt er örrin í 57% vinnslu og hitinn er í 57°.

Ég vill hafa þetta alltaf undir 50°.

Getur verið að þetta sé bilað eða hvað ..
Viðhengi
speedfan.jpg
speedfan.jpg (48.92 KiB) Skoðað 1738 sinnum

Höfundur
Gestir
Staða: Ótengdur

Póstur af Gestir »

Remote 2 er örrinn í mínu tilfelli .

sá það þegar ég rönnaði Prime95.. þá var það eina dótið sem hækkað strax ..

vélin er í 50° Idle ... sem er samt alltof mikið :S
Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6208
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af gnarr »

þú ert með ranghugmyndir drengur.. afhverju er 50°c of heitt? ég gæti líka trúað því að mælirinn sé eitthvað skakkur.
"Give what you can, take what you need."

Höfundur
Gestir
Staða: Ótengdur

Póstur af Gestir »

50°idle finnst mér soldið heitt þegar gamla vélin var idle í um 40°. SPurning hvað gerist þegar allt er í hvínandi botni .. örri, minn og skjákort.

þá hitnar þetta eflaust asskoti mikið. :8)

sprauta köfnunarefni á helvítið ....
Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6208
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af gnarr »

nei... þú verður að leifa henni að anda.. ekkert köfnunarefni ;)

Ég var nú með hana að prime-a í hvað.. 13 tíma? og ekkerrt vesen með hana. Annars grunar mig að skjákortið sé að dæla inn dágóðum slatta af hita. það kom rétt volgt loft útúr henni hjá mér.
"Give what you can, take what you need."

hilmar_jonsson
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 357
Skráði sig: Lau 22. Jan 2005 16:03
Staðsetning: 200 Kóp
Staða: Ótengdur

Póstur af hilmar_jonsson »

galileo skrifaði:þú getur reynt að gera moddið þar sem þú lækkar rifur einhverja/r snúru/r úr mólex tenginu sem er í viftunni ef það er Molex. :twisted: Hef lesið að það sé ekki mikið mál.


http://www.cpemma.co.uk/7volt.html

Edit. Sá ekki að það var búið að svara þessu.
i5-2500K - 16GB vinnsluminni og eitthvað skjákort

Höfundur
Gestir
Staða: Ótengdur

Póstur af Gestir »

Ok, ekki koma með slæmar skítamix hugmyndir því þær verða aldrei gerðar.

En annað.

Núna er vélin orðin IDLE í 58-60° og fer hækkandi. Ég tók smá HL2 í gærkveldi og hún var í 71° eftir það.

Ég sel þetta Shuttle drasl ef ég get ekki lækkað hitann á þessu þar sem að vélin var orðin slow og leiðinleg vegna hita. HEfur einhver ráð við þessu ?
Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6208
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af gnarr »

what! weiiird! hún var í 30-35°c idle hjá mér... :shock:

Ertu búinn að líta inní kassann hvort að örgjörfakælingin hafi losnað eða eitthvað? Það gæti náttúruelga valdið því að hún er hávær, vegna þess að þá blastar hún vifturnar til að reyna ða kæla eitthvað, en kælir ekkert vegna þess að heatsinkið er laust.
"Give what you can, take what you need."

Höfundur
Gestir
Staða: Ótengdur

Póstur af Gestir »

ég var að fikta í Speedfan. Núna blæs hún ekkert eða allt í botn. Ef ég botna vifturnar þá er þetta sirka 2 á Richter .. Og hún lækkar alveg niður í 45° En það tekur svona 10 mín og Hávaðin er Grínlaust eins og á hljómsveitaræfingu.

X800 kortið er kalt og sú hlið á vélinni er köld .. Alltaf þannig að þetta er bara tengt örgjörva og öðrum hlutum.


Ótrúlegur fjandi .... !!!!
Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6208
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af gnarr »

GPU á ekki að vera kallt. það þýðir það að allur hitinn frá gpu er að fara út í gegnum ice-inn, og þar af leiðandi að hita hann um einhvern slatta.
"Give what you can, take what you need."

Höfundur
Gestir
Staða: Ótengdur

Póstur af Gestir »

And how in the name of GOD lagar maður það !!!

Ég nenni þessu ekki ... verð að reddissu
Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6208
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af gnarr »

byrjaðu á að athuga hvort að ice-inn hafi nokkuð losnað eitthvað? hvort að ein smellan hafi kanski losnað. ég veit ekki hvernig þú getur reddað þessum skjákorts fjanda. En ef það er bara ice-inn sem er að bögga þig, þá geturu hætta ð hugsa um þetta skjákort í bili.
"Give what you can, take what you need."

Höfundur
Gestir
Staða: Ótengdur

Póstur af Gestir »

ég myndi halda að þetta sé þetta Ice dót. Það kemur sjóðandi heitt loft á lágu flæði út að aftan

Vinstri hliðin á vélinni er köld en hin og aftari hlutinn er mjög heit.
Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6208
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af gnarr »

Þá virðist ice-inn vera að standa sig..

Ef hann væri ekki að virka, þá ætti hitinn a ð vera eftir inní kassanum, en ekki að fara út. Eina sem mér dettur í hug er að skjákortið sé að gefa svona svakalega mikinn hita frá sér :shock:. Það kom rétt rúmlega volgt loft úr henni hjá mér, og örgjörfinn fór aldrei upp fyrir 55°c load.
"Give what you can, take what you need."

Höfundur
Gestir
Staða: Ótengdur

Póstur af Gestir »

En t.d Fallen, hann er með svipað settup í Shuttle og hann er að fara varla í 50°.

Er reyndar með x800 agp kort en breytir það nokkru hvort það sé pcie eða agp :S
Svara