Kristján Gerhard skrifaði:Taktu lokahausinn (termóstatið) af innsprautunarlokanum með því að losa hlaupróna sem er undir lokahausnum. Lokinn sjálfur verður eftir í kistunni.
Ok, ég er búinn að reyna þetta oftar en einu sinni síðustu daga og sama hvað ég hef reynt að hreyfa hann inn og út þá bifast hann ekkiKristján Gerhard skrifaði:Ef að pinninn er fastur og lokinn í lokaðri stöðu þá kemur ekki nýtt heitt vatn inná kerfið til að bæta upp fyrir kólnun vatnsins í slaufunni. Taktu um pinnann með töng og hreyfðu hann varlega inn og út, væri óvitlaust að setja einn dropa af olíu með leggnum á lokanum ef hann er stirður (matarolía er fín).

Svo fékk ég reyndar hita á gólfið um daginn en hann var mjög dreyfður og kom aðallega bara í svotil beinni línu frá kerfinu og inní eldhúsið og svo eitthvað meðfram nokkrum veggjum. Eftir mikið fikt í kerfinu komst ég að því að ef ég skrúfa stillinguna sem er fyrir ofan litla hitamælinn alveg niður í núll þannig að mótorinn slekkur á sér að þá fer mælirinn uppí 60 gráður, framrásin verður vel heit (er oftast bara smá volg) og þá kemur þessi litli hiti í gólfið en sama hversu lengi ég læt það vera svoleiðis verður restin af gólfinu aldrei heit. Er vandamálið áfram fasti pinninn eða eitthvað meira en bara hann?