Síða 1 af 2

Kem örranum ekki í :|

Sent: Þri 06. Des 2005 13:06
af Sallarólegur
Opnaði tölvuna mína og var eitthvað að skoða. Langaði að prufa að taka örgjörfan úr og setja hann aftur í. Tók viftuna(og járnið sem var fast við hana) og allt frá. Náði örgjörfanum semsagt af. Svo setti ég hann aftur á, kveikti á tölvunni, en það kom bara svartur skjár. Var alveg viss um að örgjörvinn var ekki rétt settur í. Svo ég opnaði tölvuna aftur og tók viftulæsinguna og þar á eftir örgjörfann, allt í lagi með pinnana undir honum. Því næst fór ég að rannsaka þetta, komst að því að ég gat ekki sett örgjörfann rétt í.
Til þess að setja hann rétt í þarf ég að setja einhverja stiku í 90 gráðu halla. Svo á ég að setja örgjörfann í og setja stikuna aftur niður. ÞEtta get ég ekki gert vegna þess að kælikubburinn(sem er fastur við viftuna) er límdur við örgjörfann. Hvernig á ég að fara að því að láta örrann í? :S

Sent: Þri 06. Des 2005 13:14
af gnarr
lol.. hvernig náðiru örgjörfanum úr in the first place? myndi halda að þetta væri nokkurnveginn reverse á það process.

Annars mæli ég með að þú losir kælinguna af örjgörfanum áður en þú tekur hann úr næst.

Sent: Þri 06. Des 2005 13:31
af hilmar_jonsson
Hehe, forvitni skapar vandamál.

Ef þú tekur kælinguna af þá held ég að þú þurfir líka að setja kælikrem aftur. Kostar um 200+ kr.

Sent: Þri 06. Des 2005 13:55
af Sallarólegur
Örrinn er límdur við einhverja filmu úr plasti og svo er eitthvað sem lýkist álpappír inní því. Það er svo límt við kælikubbinn...what should i do? :shock:

Sent: Þri 06. Des 2005 13:57
af gnarr
Það er heatspreader á örgjörfanum.. er það ekki. Settu þá hníf á milli örjgörfanns og kælingarinnar og reyndu að þvinga örjgörfann af. passaðu bara að örgjörfinn detti ekki og að beigla ekki pinnana.

Sent: Þri 06. Des 2005 13:59
af Stutturdreki
og ekki rispa!

Sent: Þri 06. Des 2005 15:09
af kristjanm
Farðu varlega þegar þú tekur hann af, ég var einu sinni að gera það sama og þú og missti örgjörvann í gólfið. Örgjörvinn slapp samt.

Sent: Þri 06. Des 2005 15:22
af Sallarólegur
Ok, takk allir! Þorði ekki að gera þetta vegna þess að ég hélt að þessi filma væri eitthvað mikilvæg. Ok, þegar ég er búinn að losa filmuna frá (hún verður væntanlega rispuð og læti) hvað á ég þá að gera? Þarf ég að líma draslið saman aftur eða get ég sett örrann í og hitt draslið ofan á og læst?

Sent: Þri 06. Des 2005 15:28
af Birkir
Ojj, ég lenti einu sinni í þessu sama.

Endaði á því að ná að föndra þessu einhvern veginn saman án þess að taka heatsinkið af. :P

Mæli samt frekar með því að þú reynir að taka það af heldur en að gera þetta eins og ég gerði það, það er vesen.

Sent: Þri 06. Des 2005 15:31
af gnarr
Viktor skrifaði:Ok, takk allir! Þorði ekki að gera þetta vegna þess að ég hélt að þessi filma væri eitthvað mikilvæg. Ok, þegar ég er búinn að losa filmuna frá (hún verður væntanlega rispuð og læti) hvað á ég þá að gera? Þarf ég að líma draslið saman aftur eða get ég sett örrann í og hitt draslið ofan á og læst?
Já. hentu límbandinu sem er þarna á milli, og settu svo kælikrem. Það dugir ekki að hafa bara kælinguna á.

Sent: Þri 06. Des 2005 15:32
af Sallarólegur
En til hvers er þessi filma?

Sent: Þri 06. Des 2005 15:36
af gnarr
þetta er bara ódýr lausn sem OEM nota í staðin fyrir kælikrem.

Sent: Þri 06. Des 2005 16:10
af @Arinn@
@tt sögðu mér að kælikremið væri líka notað til þess að fylla uppí. Heatsinkin á viftunni og örgjörvanum eru ekki alveg fullkomlega slétt þannig að þetta er líka notað til þess að fylla þar á milli.

Sent: Þri 06. Des 2005 17:08
af CraZy
haha gerðist fyrir mig líka, heatsinkið var fast við örran, endaði með að setja hníf og ragvélablað þarna á milli og reyndi að ná honum af, ekki fór betur en svo að ég tok heatspreaderin af örranum( heatspreaderin var semsagt fastur á heatsinkinu) og beiglaði nokkra pinna :S..lol en hey! beyglaði þá bara til baka með vasahníf og setti etta saman, er að runna á honum núna og hef gert í um ár síðan þá, smá hitavandamál en ég er of latur til að skipta..lol :D

Sent: Þri 06. Des 2005 17:47
af kristjanm
@Arinn@ skrifaði:@tt sögðu mér að kælikremið væri líka notað til þess að fylla uppí. Heatsinkin á viftunni og örgjörvanum eru ekki alveg fullkomlega slétt þannig að þetta er líka notað til þess að fylla þar á milli.
Kælikremið er mjög hitaleiðandi efni sem fyllir upp í bilið á milli kælingunnar og örgjörvans.

Sent: Þri 06. Des 2005 18:18
af @Arinn@
Já ég veit, ég var að segja það,

Sent: Þri 06. Des 2005 18:31
af Pandemic
Hljómaði eins og þú héldir það :)

Sent: Þri 06. Des 2005 19:14
af MezzUp
@Arinn@ skrifaði:@tt sögðu mér að kælikremið væri líka notað til þess að fylla uppí. Heatsinkin á viftunni og örgjörvanum eru ekki alveg fullkomlega slétt þannig að þetta er líka notað til þess að fylla þar á milli.
Kælikremið er ekkert líka notað til þess að leiða hita, það er bara notað til þess að leiða hita, þ.e. þetta er ekkert lím eins og þú virðist halda. Efnin geta hinsvegar verið límkennd og þessvegna helst örgjörvinn við heatsink'ið þegar þú lyftir því upp.

Þó eru til sérstök kælikrem sem eiga líka að virka sem lím, og eru t.d. notuð til að líma passive northbridge kælingar á chipsett án þess að festa það við móðurborðið.

Sent: Þri 06. Des 2005 19:48
af @Arinn@
Ég sagði aldrei að þetta væri lím :? ég sagði að þetta væri notað til þess að fylla uppí mismuninn sem er mjög svo lítill allavega söðu @tt menn mér það.

Sent: Þri 06. Des 2005 19:57
af MezzUp
@Arinn@ skrifaði:Ég sagði aldrei að þetta væri lím :? ég sagði að þetta væri notað til þess að fylla uppí mismuninn sem er mjög svo lítill allavega söðu @tt menn mér það.
Ahh, afsakaðu. Ég ruglaði þér og Viktori saman. En afhverju skrifaðirðu þá þetta „líka“ sem ég feitletraði hjá þér?

Sent: Þri 06. Des 2005 20:20
af Xyron
Mynir mig á það þegar ég var að setja fyrstu tölvuna mína saman, var búinn að lesa allt í gegn.. var ekkert að fata afhverju það kviknaði ekki á tölvuni..

Endaði með að ég sendi hana í viðgerð til að sjá hvað væri að, fékk hana til baka, þá hafði ég snúið örgjörva viftuni vitlaust.. :oops:

Skammaðist mín frekar mikið að fatta það ekki.. :evil:

Sent: Mið 07. Des 2005 15:11
af @Arinn@
MezzUp skrifaði:
@Arinn@ skrifaði:Ég sagði aldrei að þetta væri lím :? ég sagði að þetta væri notað til þess að fylla uppí mismuninn sem er mjög svo lítill allavega söðu @tt menn mér það.
Ahh, afsakaðu. Ég ruglaði þér og Viktori saman. En afhverju skrifaðirðu þá þetta „líka“ sem ég feitletraði hjá þér?
Vegna þess að þeir sögðu að þetta væri líka til þess.
Xyron skrifaði:Mynir mig á það þegar ég var að setja fyrstu tölvuna mína saman, var búinn að lesa allt í gegn.. var ekkert að fata afhverju það kviknaði ekki á tölvuni..

Endaði með að ég sendi hana í viðgerð til að sjá hvað væri að, fékk hana til baka, þá hafði ég snúið örgjörva viftuni vitlaust.. :oops:

Skammaðist mín frekar mikið að fatta það ekki.. :evil:
hahahahaha flottur :lol:

Sent: Mið 07. Des 2005 17:06
af Sallarólegur
Tölvan er byrjuð að virka :D Annars stakk ég hnífnum BEINT inní puttan á mér þegar ég var að losa örran frá kælingunni, það kom ó'ó :cry:

En ég fékk strumpaplástur og núna er allt í lagi :o

Sent: Mið 07. Des 2005 19:33
af MezzUp
@Arinn@ skrifaði:
MezzUp skrifaði:
@Arinn@ skrifaði:Ég sagði aldrei að þetta væri lím :? ég sagði að þetta væri notað til þess að fylla uppí mismuninn sem er mjög svo lítill allavega söðu @tt menn mér það.
Ahh, afsakaðu. Ég ruglaði þér og Viktori saman. En afhverju skrifaðirðu þá þetta „líka“ sem ég feitletraði hjá þér?
Vegna þess að þeir sögðu að þetta væri líka til þess.
Bíddu nú við, hvar var þá hinn notkunarmöguleikinn?

Sent: Mið 07. Des 2005 19:38
af @Arinn@
að þetta væri hitaleiðandi.