Síða 1 af 1
Áframhaldandi SATA vandamál
Sent: Lau 05. Nóv 2005 14:24
af phrenic
Ég setti nýjan harðan disk (SATA) í tölvuna mína um daginn. Fyrst vildi tölvan ekki finna hann en þá stillti ég IDE mode í BIOS á "P-ATA + S-ATA" og þá fannst diskurinn. Nú er vandamálið að um leið og harði diskurinn fannst, týndust geisladrifin tvö sem ég er með. Þau finnast semsagt ekki í BIOS og ekki heldur í disk management. Veit einhver hvað málið er ?
Sent: Lau 05. Nóv 2005 16:57
af corflame
Þú ert auðvitað búinn að tékka á að allir kaplar eru örugglega í sambandi?
Sent: Lau 05. Nóv 2005 18:45
af phrenic
þetta virkaði allt vel áður en ég setti nýja diskinn í og það eina sem gerðist þá var að það bættist ein snúra við, svo já, það er allt í sambandi.
Re: Áframhaldandi SATA vandamál
Sent: Lau 05. Nóv 2005 23:53
af Veit Ekki
phrenic skrifaði:Ég setti nýjan harðan disk (SATA) í tölvuna mína um daginn. Fyrst vildi tölvan ekki finna hann en þá stillti ég IDE mode í BIOS á "P-ATA + S-ATA" og þá fannst diskurinn. Nú er vandamálið að um leið og harði diskurinn fannst, týndust geisladrifin tvö sem ég er með. Þau finnast semsagt ekki í BIOS og ekki heldur í disk management. Veit einhver hvað málið er ?
Það gerðist eitthvað svipað með tölvuna mína en var með 2 ATA diska og 2 geisladrif, þá var eitthvað af þessu sem fannst ekki.
Getur prófað að víxla geisladrifunum eða hörðu diskunum og athugað hvort það finnist þá. Það var allavega þannig hjá mér að þegar DVD skrifarinn var fyrir neðan geisladrifið þá virkaði það ekki en þegar hann var fyrir ofan þá virkaði þetta allt.
