Áframhaldandi SATA vandamál

Svara

Höfundur
phrenic
Græningi
Póstar: 37
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:25
Staða: Ótengdur

Áframhaldandi SATA vandamál

Póstur af phrenic »

Ég setti nýjan harðan disk (SATA) í tölvuna mína um daginn. Fyrst vildi tölvan ekki finna hann en þá stillti ég IDE mode í BIOS á "P-ATA + S-ATA" og þá fannst diskurinn. Nú er vandamálið að um leið og harði diskurinn fannst, týndust geisladrifin tvö sem ég er með. Þau finnast semsagt ekki í BIOS og ekki heldur í disk management. Veit einhver hvað málið er ?

corflame
Tölvutryllir
Póstar: 678
Skráði sig: Fim 15. Apr 2004 20:05
Staðsetning: Keyboard central
Staða: Ótengdur

Póstur af corflame »

Þú ert auðvitað búinn að tékka á að allir kaplar eru örugglega í sambandi?

Höfundur
phrenic
Græningi
Póstar: 37
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:25
Staða: Ótengdur

Póstur af phrenic »

þetta virkaði allt vel áður en ég setti nýja diskinn í og það eina sem gerðist þá var að það bættist ein snúra við, svo já, það er allt í sambandi.

Veit Ekki
Geek
Póstar: 808
Skráði sig: Þri 19. Apr 2005 22:05
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Áframhaldandi SATA vandamál

Póstur af Veit Ekki »

phrenic skrifaði:Ég setti nýjan harðan disk (SATA) í tölvuna mína um daginn. Fyrst vildi tölvan ekki finna hann en þá stillti ég IDE mode í BIOS á "P-ATA + S-ATA" og þá fannst diskurinn. Nú er vandamálið að um leið og harði diskurinn fannst, týndust geisladrifin tvö sem ég er með. Þau finnast semsagt ekki í BIOS og ekki heldur í disk management. Veit einhver hvað málið er ?
Það gerðist eitthvað svipað með tölvuna mína en var með 2 ATA diska og 2 geisladrif, þá var eitthvað af þessu sem fannst ekki.

Getur prófað að víxla geisladrifunum eða hörðu diskunum og athugað hvort það finnist þá. Það var allavega þannig hjá mér að þegar DVD skrifarinn var fyrir neðan geisladrifið þá virkaði það ekki en þegar hann var fyrir ofan þá virkaði þetta allt. :roll:
Svara