Síða 1 af 1

Skipta um bílskurshurð.

Sent: Lau 07. Ágú 2021 11:55
af Semboy
Nú er komið að því fyrir mig að skipta um bílskúrðshurðina hérna hjá mér, mig langar að taka þessu projectí beinlínis á mig þar sem mér tókst fullkomlega að innrétta eldhúsið hjá mér með aðstoð youtube frá A til Ö, þá ætti þetta ekki að vera vandamál. Mæla stærð gatið, vegg þykktin og hvað mikið milli bíl á milli hurðagat og veggja, siðan koma þessu bara á er það ekki bara?. Hvað kosta svoleiðis hurðir hérna heima? þetta á náttrulega að þola íslenska veðrið.

Edit: Langar svo að koma mótor á þetta, eru þessir mótorar ekki undir 60þúsund?

Re: Skipta um bílskurshurð.

Sent: Lau 07. Ágú 2021 12:28
af TheAdder
Fáðu þér öxultengdan mótor, þau kerfi eru eitthvað dýrari, en svo miklu öflugri og vandaðri.

Re: Skipta um bílskurshurð.

Sent: Lau 07. Ágú 2021 12:59
af arons4
Glófaxi og Héðinn hafa verið þeir helstu sem eru að flytja inn hurðar, mæli með að hafa ekki gönguhurð nema þú þurfir þess og ef það þurfa að vera gluggar ættu það að vera gluggar sem koma tilbúnir sem heilir flekar en ekki útskornir.

Vill oft ryðga þar sem skorið er út fyrir gluggunum og eins gönguhurðunum.

Eins mæli ég með að bóna þær fyrir veturinn.

Re: Skipta um bílskurshurð.

Sent: Lau 07. Ágú 2021 13:10
af TheAdder
Viðbót við gluggana, þéttikantarnir dragast örlítið saman með aldrinum sem veldur leka og ryðvandamálum eins og arons4 talaði um.
Hjartanlega sammála honum um að vera með heila gluggafleka ef eiga að vera gluggar yfirleitt.

Re: Skipta um bílskurshurð.

Sent: Lau 07. Ágú 2021 13:50
af ZoRzEr
Talaðu við Jóa í Héðins hurðum.

Re: Skipta um bílskurshurð.

Sent: Lau 07. Ágú 2021 15:15
af mercury
Telst víst ekki hlutlaus en mæli klárlega með Héðins hurðum. Veit ekki hvernig staðan er í dag en amk fyrir nokkrum árum voru þeir með þykkri fleka en keppinautarnir. Sömuleiðis eiga þeir allt í þetta á lager ef einhvað kemur upp á þóg að heilar hurðir panti þeir frá framleiðanda. Nota sömuleiðis sverari víra en ég hef séð á öðrum hurðum. Verð að vera sammála með öxuldrifinn mótor og þá sérstaklega ef hurðin er í stærri kantinum. Endilega taktu myndir og mældu þetta allt saman upp og kíktu á Jóa.

Re: Skipta um bílskurshurð.

Sent: Lau 07. Ágú 2021 17:11
af Semboy
Þakka öllum sem hafa svarað mér, Ætla pottþétt heyra í þetta lið sem þið eruð að nefna.

Re: Skipta um bílskurshurð.

Sent: Þri 10. Ágú 2021 12:27
af JapaneseSlipper
Ég skipti um 2 hurðir fyrir 2 árum og spurðist mikið fyrir um, allir voru sammála að Héðins hurðir væru málið.

Ég hef verið að gera upp húsið mitt með hjálp youtube og reyni að gera sem mest sjálfur. Það er mikill munur að setja upp eldhúsinnréttingu og bílskúrshurðir og ég er feginn að hafa fengið mann frá Héðni að setja upp mínar. Það kostaði þá jafnmikið og hurðirnar sjálfar.

Re: Skipta um bílskurshurð.

Sent: Þri 10. Ágú 2021 15:46
af hagur
Úff, ég myndi ekki nenna að setja upp svona hurð sjálfur. Við endurnýjuðum hurðina hjá okkur síðasta sumar og fengum hurð frá Íshurðum. Þeir höfðu svo milligöngu um uppsetninguna, það komu tveir gaurar og rifu gömlu hurðina úr og settu þessa nýju í og settu upp rafmagnsopnarann o.þ.h. Þetta var þvílíkt föndur og tók þá alveg heilan vinnudag og rúmlega það. Ég reyni yfirleitt alltaf að gera allt sjálfur sem ég tel mig ráða við, en ég var feginn að hafa látið þá um þetta - ég hefði verið í viku að þessu :)

Re: Skipta um bílskurshurð.

Sent: Þri 10. Ágú 2021 15:57
af Dropi
Ég þarf að gera þetta þegar ég tek bílskúrinn í gegn - hvað kostar sæmileg hurð og opnari almennt?

Re: Skipta um bílskurshurð.

Sent: Þri 10. Ágú 2021 16:21
af hagur
Dropi skrifaði:Ég þarf að gera þetta þegar ég tek bílskúrinn í gegn - hvað kostar sæmileg hurð og opnari almennt?
Fer náttúrulega mikið eftir stærð hurðarinnar, en hjá mér var þetta svona:

Ólituð hurð: 168þús
Málun í RAL lit (dökkbrúnn): 25þús
Rafdrifinn opnari: 39þús

Samtals c.a 232þús

Þetta er frá Íshurðum, verð frá því í fyrrasumar.

Ég man ekki alveg hvað ég borgaði svo fyrir uppsetninguna, það var eitthvað í kringum 100k minnir mig.

Re: Skipta um bílskurshurð.

Sent: Mið 11. Ágú 2021 00:32
af Semboy
hagur skrifaði:Úff, ég myndi ekki nenna að setja upp svona hurð sjálfur. Við endurnýjuðum hurðina hjá okkur síðasta sumar og fengum hurð frá Íshurðum. Þeir höfðu svo milligöngu um uppsetninguna, það komu tveir gaurar og rifu gömlu hurðina úr og settu þessa nýju í og settu upp rafmagnsopnarann o.þ.h. Þetta var þvílíkt föndur og þá alveg heilan vinnudag og rúmlega það. Ég reyni yfirleitt alltaf að gera allt sjálfur sem ég tel mig ráða við, en ég var feginn að hafa látið þá um þetta - ég hefði verið í viku að þessu :)
Já, þetta verður áhugavert. Gæti verið ég þarf að fræsa og steypa

Re: Skipta um bílskurshurð.

Sent: Mið 11. Ágú 2021 09:14
af Dropi
hagur skrifaði:
Dropi skrifaði:Ég þarf að gera þetta þegar ég tek bílskúrinn í gegn - hvað kostar sæmileg hurð og opnari almennt?
Fer náttúrulega mikið eftir stærð hurðarinnar, en hjá mér var þetta svona:

Ólituð hurð: 168þús
Málun í RAL lit (dökkbrúnn): 25þús
Rafdrifinn opnari: 39þús

Samtals c.a 232þús

Þetta er frá Íshurðum, verð frá því í fyrrasumar.

Ég man ekki alveg hvað ég borgaði svo fyrir uppsetninguna, það var eitthvað í kringum 100k minnir mig.
Takk fyrir, gott að vita!

Re: Skipta um bílskurshurð.

Sent: Lau 21. Ágú 2021 21:59
af Semboy
Búinn að kynna mér þetta aðeins meira nánar og ég ætla láta fagmenn gera þetta yuck!