Síða 1 af 1
[Farið]Alex skrifborð
Sent: Þri 18. Maí 2021 11:09
af Hentze

- IMG_20210227_182233.jpg (2.77 MiB) Skoðað 528 sinnum
Er með til sölu vegna flutninga hvítt Alex skrifborð úr Ikea
Kostar nýtt 24.950kr
Er í fínu standi og eina sem sér á því eru skrufugöt undir neðri plötu eftir heyrnatóla festingar.
Verðhugmynd 10.000kr eða besta boð.
Get látið fylgja með flatjárn þannig að borðfestingar passi á það.
https://www.ikea.is/products/609254

Re: [TS]Alex skrifborð
Sent: Mið 19. Maí 2021 14:37
af calibr
Er með eins skrifborð og mæli með. En langaði að spyrja hvernig þú útfærðir flatjárnið. Er með skjá sem mig langar að setja á arm og hef verið að pæla í mismunandi útfærslum á hvernig ég gæti mixað það

Re: [TS]Alex skrifborð
Sent: Mið 19. Maí 2021 16:37
af Hentze
Já mjög skemmtileg borð.
Þá er að útskýra svo það skiljist
Ég keypti bara flatjárn, 200*50*2mm boraði svo got í sama sverleika og með sama bili og er á armfestingunni, á sitthvorn endann á járninu. Keypti líka auka bolta og rær til að festa með. Er í raun bara til að lengja C-ið á original festingunni. Virkaði mjög vel. Held að efniskostnaður hafi verið 1500kr með ágætis bor

Re: [TS]Alex skrifborð
Sent: Fös 21. Maí 2021 10:09
af calibr
Góð lausn hjá þér
Tókstu þá alveg C stykkið af og mixaðir nýtt með flatjárninu, eða skiptirðu bara út lóðrétta partinum af C stykkinu?
Re: [TS]Alex skrifborð
Sent: Fös 21. Maí 2021 11:11
af Hentze

- images.jpeg (6.45 KiB) Skoðað 358 sinnum
Ég nýtti original festinguna alla og lengdi bara ,,spönnina" á C-inu með flatjárninu,
Festi semsagt flatjárnið á lóðrétta partinn og festi svo skrúfstykkið á flatjárnið
Bara eins einfalt og hægt er.
