Síða 1 af 1

Ráðleggingar varðandi leikjavél/vinnuvél fyrir ~350k

Sent: Fös 11. Des 2020 11:11
af ghetto
Daginn vaktarar,

Nú er komið að því :megasmile
Ég ætla loksins að fjárfesta í alvöru turni, búinn að ætla að gera það síðan í byrjun árs en maður er alltaf að bíða eftir nýjum skjákortum, örgjörvum og ég veit ekki hvað :lol:

Þetta er semsagt turn sem að má kosta um 300k-350k, má alveg slæda rétt yfir ef það er mikið performance gain!

Ég mun nota hann bæði fyrir vinnu (forritun (bakenda), oft að keyra margar þjónstur í einu sem getur verið CPU/memory intensive) og tölvuleiki (CSGO, Warzone, Cyberpunk, örugglega eitthvað meira \:D/).

Mig vantar semsagt ALLT í turninn sjálfan, en er með allt hitt. Tvo 27" 1440p Asus skjái, þráðlaust logitech lyklaborð og mús

Ég kem auðmjúkur til ykkar og bið um tillögur að samsetningu frá ykkur, vitru vaktarar [-o<

Re: Ráðleggingar varðandi leikjavél/vinnuvél fyrir ~350k

Sent: Fös 11. Des 2020 11:49
af kobbi keppz
https://builder.vaktin.is/build/5862D
Ættir að vera mjög vel settur með þessa uppsetningu.
Veit ekki hvernig það er með forritun, gætir þurft 32gb ram en miða við það sem ég hef lesið ætti 16gb að vera nóg.
Hef ætíð verið með corsair cx línu aflgjafa og hafa þeir aldrei brugðist.
Ódýr en góð 6 pípu örgjörvakæling sem tryggja að örgjörvinn haldist kaldur.
3070 rtx skjákort, hratt og skilvirkt kort, mjög gott í leikina.
5600x örgjörvi sem er að skila hraðasta single core speed í dag. Sennilega besti bang for the buck örgjörvi sem þú færð í dag.

Re: Ráðleggingar varðandi leikjavél/vinnuvél fyrir ~350k

Sent: Fös 11. Des 2020 12:01
af Hausinn
kobbi keppz skrifaði:https://builder.vaktin.is/build/5862D
Ættir að vera mjög vel settur með þessa uppsetningu.
Veit ekki hvernig það er með forritun, gætir þurft 32gb ram en miða við það sem ég hef lesið ætti 16gb að vera nóg.
Hef ætíð verið með corsair cx línu aflgjafa og hafa þeir aldrei brugðist.
Ódýr en góð 6 pípu örgjörvakæling sem tryggja að örgjörvinn haldist kaldur.
3070 rtx skjákort, hratt og skilvirkt kort, mjög gott í leikina.
5600x örgjörvi sem er að skila hraðasta single core speed í dag. Sennilega besti bang for the buck örgjörvi sem þú færð í dag.
1+ með þessa ráðleggingu nema það að ég myndi persónulega fara meira í þessa áttina: https://builder.vaktin.is/build/249CD

Myndir þurfa að kaupa alla vega tvær viftur fyrir þennan turnkassa en annars er hann góður.

Re: Ráðleggingar varðandi leikjavél/vinnuvél fyrir ~350k

Sent: Fös 11. Des 2020 13:20
af TheAdder
Ég myndi mæla með að fara strax í 32Gb af RAM, mögulega skoða að teygja sig í 5800X örgjörva. Að öðru leyti eru fyrri innlegg mjög skynsamleg.

Re: Ráðleggingar varðandi leikjavél/vinnuvél fyrir ~350k

Sent: Fös 11. Des 2020 13:26
af Predator
TheAdder skrifaði:Ég myndi mæla með að fara strax í 32Gb af RAM, mögulega skoða að teygja sig í 5800X örgjörva. Að öðru leyti eru fyrri innlegg mjög skynsamleg.
Sammála þessu

Re: Ráðleggingar varðandi leikjavél/vinnuvél fyrir ~350k

Sent: Fös 11. Des 2020 13:45
af kobbi keppz
Predator skrifaði:
TheAdder skrifaði:Ég myndi mæla með að fara strax í 32Gb af RAM, mögulega skoða að teygja sig í 5800X örgjörva. Að öðru leyti eru fyrri innlegg mjög skynsamleg.
Sammála þessu

https://builder.vaktin.is/build/584C6
Hugmynd af uppsetningu með þessum íhlutum, fyrir ekkert mjög ósvipað verð.

Aflgjafinn í þessu er reyndar ekki modular þannig að það er haugur af snúrum sem er leiðinlegra að vinna með, en hann er 80 plus gold vottaður meðan corsair-inn er 80 plus bronze, semi modular.

Edit: breytti turninum.