Síða 1 af 1

Ljósleiðaravæðing Mílu og GR í Reykjanesbæ

Sent: Lau 10. Okt 2020 00:39
af krissi24
Er einhver annar hér sem býr í Heiðarhverfinu í Reykjanesbæ (Keflavík) sem undrar sig á því hversvegna Míla hefur ekki sett það hverfi á áætlun í langan tíma? Sama gildir um GR :/ Veit einhver mögulega ástæðu?

Re: Ljósleiðaravæðing Mílu og GR í Reykjanesbæ

Sent: Lau 10. Okt 2020 12:57
af Frekja
Það á að vera búið að ljósleiðaravæða allan reykjanesbæ fyrir enda 2021. Í aungablikinu er verið að gera einhvern radius í kringum Stapann / Rokksafnið

Re: Ljósleiðaravæðing Mílu og GR í Reykjanesbæ

Sent: Lau 10. Okt 2020 18:35
af B0b4F3tt
Ég bíð einmitt spenntur eftir að vera tengdur. Það er búið að leggja ljósleiðarann inn til mín og á bara eftir að tengja :megasmile

Er á Mávabrautinni.

Re: Ljósleiðaravæðing Mílu og GR í Reykjanesbæ

Sent: Lau 10. Okt 2020 20:13
af krissi24
B0b4F3tt skrifaði:Ég bíð einmitt spenntur eftir að vera tengdur. Það er búið að leggja ljósleiðarann inn til mín og á bara eftir að tengja :megasmile

Er á Mávabrautinni.
Lúxus ! Ég er ekki alveg að skilja þennan bið tíma hérna upp frá..... Hélt að horft væri á þessi hverfi þar sem mikið er um fjölbýlishús eins og raunin er hér. Amk var slíkt gert þegar byrjað var á þessu á HB svæðinu, einnig fyrir Norðan.

Re: Ljósleiðaravæðing Mílu og GR í Reykjanesbæ

Sent: Þri 13. Okt 2020 23:40
af emmi
Ég bý í Ytri-Njarðvík er er kominn með ljósleiðarann. Ég tók bæði frá GR / Vodafone og svo Mílu / Símann.

Ég verð að mæla með GR yfir Mílu, ég er að fá 950-960Mb/s þar stöðugt en ekki nema 650-750Mb/s hjá Mílu. Mér er sagt að þetta sé vegna þess að Míla notar GPON meðan þú færð hreinan ljósleiðara frá GR.