Síða 1 af 1
Smá minnis pælingar
Sent: Mið 01. Jún 2005 02:05
af Silly
Sælir ég er að pæla að fá mér smá minni í viðbót í vélina mína. Er með 4x256 333 mhz DDR í vélinni eins og er. Er með 6 raufar á móbóinu, er Gigabyte 8knxp. Er með minnið dual channel. Langar að fá mér 2x256 í viðbót. Vélin er að hægja aðeins á sér þegar ég er að rúlla Wow og kannski mynd á skjá nr.2. Er ekki að finna 333mhz 256mb minniskubba á mörgum stöðum, eða að þeir eru talsvert dýrari enn 400mhz. Svo ég var að pæla, er ekki annars ok að ég smelli t.d.
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=1000 þessu í raufar 5 og 6 hjá mér? Ætti ekki 400 kubbarnir að rúllar sér niður í 333 í samræmi við hina?

Er frekar fátækur eins og er, og það er hagstæðara að versla 400 minni enn 333. Síðar langar mér að svissa 333 kubbunum öllum út fyrir 400. Geri það kannski þegar ég set prescott í staðinn fyrir þann sem er núna. Hvað finnst fólki um þetta, og getiði gefið mér einhver góð ráð í þessu. Hvað á að gera og hvað á ekki að gera.

Sent: Mið 01. Jún 2005 03:27
af Silly
Sent: Mið 01. Jún 2005 08:49
af Stutturdreki
Jú, 400mhz minnið myndi rúlla niður í 333mhz, þannig að ávinningurinn yrði lítill sem enginn, hraðalega séð. Þú missir td. Dual Channel. Tölvan myndi hinsvegar kannski afkasta meira með meira minni.
Prófaðu samt að fylgjast með Taskman þegar þú ert að spila WoW og með eitthvað activity í 'hinum skjánum', þá sérðu hvort minnið er að klárast eða ekki. 1Gb ætti að duga fyrir lang flesta leiki og almenna tölvunotkun.
Sent: Mið 01. Jún 2005 09:03
af Silly
Missi ég semsagt Dual channel þar sem síðasti minnis bankinn er með 400mhz minni og hinir 4 bara 333????? Langar ekki að missa Dual-ið mitt

Sent: Mið 01. Jún 2005 12:27
af Mr.Jinx
That's Your Problem

Sent: Mið 01. Jún 2005 12:34
af Stutturdreki
Stundum er betra að hafa meira minni.. og stundum er betra að hafa hraðara minni. Það er bara eitthvað sem þú þarft að gera upp við þig.
Sent: Mið 01. Jún 2005 21:14
af Silly
fékk mér í dag 333mhz minni svo ég slepp með Dual channelið mitt aðeins lengur

Verst að ég þurfti að versla við Tölvulistann

Sent: Fim 02. Jún 2005 13:24
af Silly
Og auðvitað þurfti það að hefna sín á mér, vegna þess að ég verlsaði við tölvulistann. Er í vandræðum að fá minnið til að virka rétt. Forrit og leikir hrynja hjá mér enn vélin frýs ekki. Forritin sem er góð segja öll við mig memory error. Ég prufaði að keyra memtest í dos. Og ég er að fá slatta af villum. Líka að minnið virðist vera að rúlla aftur á 266. Sem er skrítið þar sem gömluog nýju kubbarnir eru allir 333. Gæti þetta verið spurning að það sé mismunandi CAS á kubbunum og þar liggur böggið. Á eftir að keyra memtest bara með nýju kubbana. Var að reyna að halda þessu með að örrin væri að rúlla á 533mhz og minnin öll á 333 í dual mode. Uppá samræmi. Get alveg notað 400mhz minni. Móbóið styður það vel. Þetta er mér að kenna að vera latur að uppfæra. Þegar ég loksins ætla að gera það, er nær ómögulegt að redda sér 333 minni. Eruð þið með einhver góð ráð handa mér. Fyrir utan að hlæja af mér fyrir að hafa verslað við tölvulistann!

Sent: Fim 02. Jún 2005 14:26
af gnarr
afhvejru fékstu þér ekki bara DDR400 ? það hefði bara farið niður í 333, og þú hefðir þá getað keyrt það á hvaða cas sem er.
Sent: Fim 02. Jún 2005 16:45
af Silly
Ég geri ráð fyrir að fara í tölvulistann á morgun og skipta þessu uppí 400mhz 2x512mb. Og nota það bara sem minni. Þá vonandi ætti þetta að virka. Þó að ég tapi dual channel dæminu

Sent: Fim 02. Jún 2005 16:49
af gnarr
afhverju ættiruað taka dualchannel þegar þú ert með 2xDDR400 ?
Sent: Fim 02. Jún 2005 18:51
af Silly
Dual virkar ekki þegar ég er komin með 400mhz minni, vegna þess að örrinn er á 533 fsb. Enn það er lítið gjald að tapa fyrir meira minni
Sent: Fim 02. Jún 2005 20:01
af gnarr
hvað meinaru? þú átt víst að geta það.. annars keyriru bara minnin á DDR333.
Sent: Fim 02. Jún 2005 21:29
af Stutturdreki
gnarr skrifaði:hvað meinaru? þú átt víst að geta það.. annars keyriru bara minnin á DDR333.
Hann meinar líklega það að hann er með 4x333mhz minni fyrir sem hann ætlar að nota áfram (
6 minnisbrautir samtals).. Getur maður kannski verið ólíkt minni á dual channel, bara að það sé eins á hvorri braut fyrir sig?
Sent: Fim 02. Jún 2005 22:15
af gnarr
jú, hann getur verið með 6 mismunandi kubba í dualchannel, en hann yrði þá líkegast að kerya þá alla undir speccum.
en þar sem að ahnn yrði bara með 2 kubba lengst yfir DDR333, þá ætti pottþétt að ganga að keyra þá á DDR333 dualchannel speccunum.
Sent: Fös 03. Jún 2005 01:01
af Silly
Eins og staðann er núna er ég að rúlla 2x356mb 333mhz Corsair minnið. Það virðist ekki vera að kunna sig vel með gamla minninu mínu. Svo ég hef 2 möguleika skila minninu sem ég verslaði, og sætta mig í bili við að vera með 1gb í minni. Kaupa fleiri Corsair kubba og ná töfratölunni minni 1.5gb með 4x256 eða 2x512 í viðbót. Hverju mæliði með? Keyrði memtest í Dos í 2 tíma samfellt og enginn villa á Corsair kubbunum aleinum. Ef ég bæti gömlu við, þá byrjar gamanið.

Græði ég eitthvað að fara úr 333 í 400, miðað við að ég tapa möguleikanum að nota Dual channel? Eða á ég bara að smella mér á meiri minni og selja gamla bara??
Sent: Fös 03. Jún 2005 01:40
af Silly
Eitt sem ég er að pæla í með Dual channel. Er möst að allir kubbarnir séu sömu stærðar. i.e= 6x256 eða má ég gera 2x256, 2x512 t.d??
Sent: Fös 03. Jún 2005 07:21
af gnarr
hættu að bulla. ÞÚ MÁTT VERA MEÐ DDR400 KUBBA Í DUAL CHANNEL!
eina sem þarf að vera eins með kubbunum til að það virki er að þeir séu allir jafn stórir.
Sent: Fös 03. Jún 2005 09:11
af Silly
Ég er EKKI að bulla. Það tekið fram til að Dual channel virki með 400mhz kubbum verður örgjöfinn að keyra á 800 mhz. Enn ég er með 533 örgjörva svo ef ég vill nýta þetta verður minnið að keyra á 333. Ég hef engan áhuga að kaupa 400 minni, bara til að undirklukka það allt samann.
Sent: Fös 03. Jún 2005 09:18
af gnarr
afhvejru ekki að kaupa ódýrara DDR400 minni og keyra það á DDR333 í dualchannel, og hafa svo val um það að nota það minni áfram í framtíðinni sem ddr400 þegar þú uppfærir.
það eru líka margfalt meiri líkur á að þú getir keyrt DDR400 minni á dualchannel í DDR333 setupinu þínu heldur en önnur DDR333 minni
Sent: Fös 03. Jún 2005 09:30
af Stutturdreki
gnarr skrifaði:.. eina sem þarf að vera eins með kubbunum til að það virki er að þeir séu allir jafn stórir.
Ekki alveg
það eina.. minnið þarf að vera jafn stórt (
í MB), jafn hratt í Mhz og þarf líka að hafa jafn marga kubba..
silly skrifaði:Ég er EKKI að bulla. Það tekið fram til að Dual channel virki með 400mhz kubbum verður örgjöfinn að keyra á 800 mhz. Enn ég er með 533 örgjörva svo ef ég vill nýta þetta verður minnið að keyra á 333.
Þú þarft að vera með 200Mhz bus til að keyra minnið á 400Mhz, og auðvitað geturðu ekki keyrt minnið á 400Mhz með 166Mhz bus og þar af leiðandi geturðu ekki verið með 400Mhz Dual Channel á 166Mhz Bus

En þú getur samt tekið 400Mhz minni, keyrt það á 333Mhz og í Dual Channel.
silly skrifaði:Er frekar fátækur eins og er, og það er hagstæðara að versla 400 minni enn 333.
silly skrifaði: Ég hef engan áhuga að kaupa 400 minni, bara til að undirklukka það allt samann.
Það er betra fyrir þig að kaupa 400Mhz minni núna ef móðurborðið styður það og ef þú ert að spekúlera í að uppfæra örgjörvann í nánustu framtíð.
Sent: Fös 03. Jún 2005 09:46
af gnarr
það er alltaf betra að kaupa DDR400 heldur en DDR333
Nei, minnið þarf ekki að vera jafn hratt, heldur jafn hratt eða hraðara.
jú, það er rétt hjá þér að minnið verðu líka að hafa jafn marga kubba. annars var ég búinn að segja að þau verða að vera jafn stór.
Sent: Lau 04. Jún 2005 08:35
af Silly
Staðan hjá mér núna er 2x256 og 2x512 keyrandi allt í dual channel. Og 2 slott laus fyrir meira minni seinna

Allt Corsair 333mhz 2.5 Cas. Allt perfect.