Síða 1 af 1

Síminn kemur inná ljósleiðara GR.

Sent: Fös 17. Júl 2020 13:46
af einarth
Jæja það er komið að því - Síminn mættur :)

https://www.vb.is/frettir/siminn-kemur- ... gr/163028/

Re: Síminn kemur inná ljósleiðara GR.

Sent: Fös 17. Júl 2020 14:25
af GuðjónR
einarth skrifaði:Jæja það er komið að því - Síminn mættur :)

https://www.vb.is/frettir/siminn-kemur- ... gr/163028/
Átta mig ekki alveg á hver tilgangurinn með þessu er?
Og hvaða þýðingu hefur þetta fyrir neytendur?
Og er þá Míla hætt ljósleiðaravæðingunni?
Til hvers að kaupa aðgang að GR í gegnum Símann þegar það er hægt að kaupa milliliðalaust beint af ykkur?
#-o

Re: Síminn kemur inná ljósleiðara GR.

Sent: Fös 17. Júl 2020 14:50
af Tbot
Net GR er miklu stærra en Mílu á höfuðborgarsvæðinu.

Re: Síminn kemur inná ljósleiðara GR.

Sent: Fös 17. Júl 2020 15:00
af pepsico
Síminn er ekki að fara að áframselja aðgang að kerfi GR heldur selja sínar eigin þjónustur (síma, net, sjónvarp) yfir kerfi GR, alveg eins og flestöll samskiptafyrirtækin voru að gera nú þegar.

Re: Síminn kemur inná ljósleiðara GR.

Sent: Fös 17. Júl 2020 15:17
af thepulk
Þýðir þetta þá að sturlunin sem lagning tveggja heimtauga er leggst af?

Re: Síminn kemur inná ljósleiðara GR.

Sent: Fös 17. Júl 2020 22:07
af daremo
Þetta þýðir væntanlega að maður getur keypt ljósleiðara hjá Símanum og þarf ekki að nota gpon, er það ekki?

Vinnustaðurinn minn borgar bara tengingar hjá Símanum, þannig að ég kem til með að græða 12þús kr. á mánuði þegar þetta kemur í gagnið.

Re: Síminn kemur inná ljósleiðara GR.

Sent: Fös 17. Júl 2020 22:57
af hagur
daremo skrifaði:Þetta þýðir væntanlega að maður getur keypt ljósleiðara hjá Símanum og þarf ekki að nota gpon, er það ekki?

Vinnustaðurinn minn borgar bara tengingar hjá Símanum, þannig að ég kem til með að græða 12þús kr. á mánuði þegar þetta kemur í gagnið.
Þannig skil ég þetta, já.

Re: Síminn kemur inná ljósleiðara GR.

Sent: Lau 18. Júl 2020 13:51
af kjartanbj
GuðjónR skrifaði:
einarth skrifaði:Jæja það er komið að því - Síminn mættur :)

https://www.vb.is/frettir/siminn-kemur- ... gr/163028/
Átta mig ekki alveg á hver tilgangurinn með þessu er?
Og hvaða þýðingu hefur þetta fyrir neytendur?
Og er þá Míla hætt ljósleiðaravæðingunni?
Til hvers að kaupa aðgang að GR í gegnum Símann þegar það er hægt að kaupa milliliðalaust beint af ykkur?
#-o
Ef ég myndi vera nettengdur hjá símanum yrði ég feginn að geta losnað við gpon, ég hinsvegar er hjá Hringdu en því miður á gpon því það er ekki búið að leggja inn hjá mér frá GR

Re: Síminn kemur inná ljósleiðara GR.

Sent: Lau 18. Júl 2020 22:31
af akarnid
Bam þetta eru ansi stórar fréttir. Ætli Míla muni þá bara hætta þessu heimtaugaveseni og láta bara GR um þetta á einstaklingsmarkaði? Ég sá aldrei í raun þörf fyrir tvo ljósþræði inn í hvert hús, einn frá fyrirtæki A og hinn frá fyrirtæki B?
Ætli Síminn haf ekki orðið bara langþreyttur eftir leiðurum í existing hverfi, Míla var í öllum nýbyggingum en var töluvert á eftir í eldri húsnæði.

Re: Síminn kemur inná ljósleiðara GR.

Sent: Sun 19. Júl 2020 05:05
af Bourne
Menn gætu mögulega kunnað að meta þessa 2 ljósvíra sem voru settir inn í hvert hús í framtíðinni.
Ég hef búið að stöðum þar sem er bara hægt að "velja" 1 ISP og það er ekki gaman að vera tekinn í rassgatið.

Að geta valið um tvær grunnþjónustur og fjöldamörg fjarskiptafyrirtæki ofaná er bara frábært.