Síða 1 af 2
75" Budget TV's
Sent: Mán 28. Maí 2018 20:23
af Alfa
Sælir
Ég veit að sennilega verður verulega hraunað yfir þessi umrætt sjónvörp hjá mér en hefur einhver í alvöru reynslu af þessum tveimur sjónvörpum.
United 75"
https://ht.is/product/united-75-led-sjonvarp
Enox 75"
https://www.hopkaup.is/enox75
Nú er ég að debate-a það í hausnum á mér hvort ég eigi að fá mér svona upp á stærðina (það er reyndar meira konan) eða eitthvað meira "merki" í 65" á sambærilegu verði? Það er ekki nokkur leið að finna review um hvorugt, en ég er aðarlega að spá í mynd þar sem ég myndi alltaf nota dedicated Android box og svo Sagemcom myndlykil hjá símanum. Og svo soundbar fyrir hljóð því ég býst ekki við neinu sjónvörpum.
Er alls ekki Tv snobbari, ég reyndar nota það nánast ekkert, mest allt efni fer í gegnum tölvuna mína og konan fær afnot af hinu þar sem hún hefur hörmulegan smekk á TV efni !
Re: 75" Budget TV's
Sent: Mán 28. Maí 2018 22:16
af netscream
Ég vinn hjá fyrirtæki sem framleiðir vídjó matrixur til mynddeilingar og cec stjórnunar á tækjum.
Enox er svipað tæki að upplagi hér sem ég nota. Þá er einn led lampi neðst í tækinu og difuser til að dreifa birtunni. Led pwrurnar og stýring endist í 1.5 ár.
Eg myndi persónulega skoða frekar high end tæki. Sjálfur er ég með uhd 55 samsung tæki sem er geggjað og orðið um 3 ára gamalt.
Síðan er alltaf spurningin hvernig þú ætlar að nota tækið, skiptir máli að flest öpp séu studd eða cec möguleikar, eða avr möguleikar?
Ég nota cec mikið t.d til að geta stjórnað öllum tækjum sem eru tengd við sjónvarpið þar á meðal 4k receiver. Virkar það þannig að ég nota bara sjónvarpsfjarstýringuna
Re: 75" Budget TV's
Sent: Mán 20. Ágú 2018 14:05
af netkaffi
netscream skrifaði:Enox er svipað tæki að upplagi hér sem ég nota. Þá er einn led lampi neðst í tækinu og difuser til að dreifa birtunni. Led pwrurnar og stýring endist í 1.5 ár.
Eg myndi persónulega skoða frekar high end tæki. Sjálfur er ég með uhd 55 samsung tæki sem er geggjað og orðið um 3 ára gamalt.
Ertu að spá í myndgæðum þegar þú ert að mæla frekar með high end tæki?
Ég er sjálfur enginn myndgæðaperri, er meira fyrir stærðina. Vinur minn átti eitthvað 2008 noname tæki 42" sem var stórt fyrir mér þá af því ég hafði aldrei átt stærra en 32" og mér fannst
ekkert að myndinni í því. Það var alveg hellað gott fyrir mér að vera með 42" árið 2012, en núna er ég kominn með 50" og veit klárlega að ég vil að minnsta kosti 65" or örugglega 70"+ en það myndi ekkert endilega trufla mig að vera með sömu myndgæði og í gamla 42" noname tækinu, þó að auðvitað er ég ekki á móti betri og betri og sem bestum myndgæðum.
Er það (tækin) sem þráðarhöfundur er að spyrja um ekki fínt fyrir okkur sem erum þannig?
Re: 75" Budget TV's
Sent: Mán 20. Ágú 2018 14:34
af birgirs
Er með 65" enox tæki í fundarherberginu og það er hrikalegt android stýrkerfið, slow og sluggish, youtube appið virkar t.d. ekki og fjarstýringin léleg.
Veit ekki hvernig nýju Enox tækin eru en mitt er sennilega 2017 modelið.
Re: 75" Budget TV's
Sent: Mán 20. Ágú 2018 14:44
af netkaffi
birgirs skrifaði:Er með 65" enox tæki í fundarherberginu og það er hrikalegt android stýrkerfið
Er ekkert að spá í SmartTV feats, er alltaf bara með PC tengt við þetta.
Netflix appið í Windows 10 virkar mjög fínt fyrir mig. (Finnur það í Microsoft Store).
Re: 75" Budget TV's
Sent: Mán 20. Ágú 2018 14:45
af netkaffi
Takk samt fyrir að benda á þetta. Hvernig er myndin annars?
Re: 75" Budget TV's
Sent: Mán 20. Ágú 2018 14:57
af Klemmi
Pabbi á 65" Enox, keypt í ár.
Ef maður er bara að hugsa um ódýrt og þokkaleg myndgæði, þá get ég mælt með því.
Hins vegar er það eins og fyrri ræðumenn nefna, fjarstýringin slöpp, Android kerfið lamað og svo er ekkert optical hljóð-output á tækinu, svo þú getur gleymt almennilegum soundbar.
Ég myndi hins vegar ekki hika við þetta fyrir fundarherbergisskjá eða álíka.
Re: 75" Budget TV's
Sent: Mán 20. Ágú 2018 15:06
af Sallarólegur
Klemmi skrifaði:svo er ekkert optical hljóð-output á tækinu, svo þú getur gleymt almennilegum soundbar
Er ekki analog tengi á flestum soundbars? Notar bara headphone hljóð-út og yfir í hljómgræjur.
Hélt líka að það væri HDMI inn og út á soundbars
Re: 75" Budget TV's
Sent: Mán 20. Ágú 2018 15:46
af Klemmi
Sallarólegur skrifaði:
Er ekki analog tengi á flestum soundbars? Notar bara headphone hljóð-út og yfir í hljómgræjur.
Kannski er það bara því það er lélegt digital=>analog í tækinu, en pabbi er með þetta uppsett svona, minnir mig með RCA út yfir í hljómgræjurnar og soundið er frekar slappt.
Sallarólegur skrifaði:
Hélt líka að það væri HDMI inn og út á soundbars
Getur þá notað það sem millilið fyrir 1-2 tæki, en þá ertu farinn að þurfa að treysta á fjarstýringuna við soundbarið til að skipta á milli (vesen) og ert með takmarkaðan fjölda af tækjum sem þú getur fengið gott hljóð frá.
Eða er ég að misskilja lífið algjörlega?
Re: 75" Budget TV's
Sent: Mán 20. Ágú 2018 16:01
af Sallarólegur
Klemmi skrifaði:
Kannski er það bara því það er lélegt digital=>analog í tækinu, en pabbi er með þetta uppsett svona, minnir mig með RCA út yfir í hljómgræjurnar og soundið er frekar slappt.
Getur þá notað það sem millilið fyrir 1-2 tæki, en þá ertu farinn að þurfa að treysta á fjarstýringuna við soundbarið til að skipta á milli (vesen) og ert með takmarkaðan fjölda af tækjum sem þú getur fengið gott hljóð frá.
Eða er ég að misskilja lífið algjörlega?
Já það getur reyndar verið að tækin séu með léleg DAC og þá er headphone hljóðið lélegt.
En tæki í dag eiga að vera með HDMI ARC aka. HDMI OUT, svo það ætti að ganga. En jú það er vonlaust ef það styður ekki hljóð beint úr tækinu, að þurfa að vera að skipta á milli sources með sér hljóð-fjarstýringu.
https://www.crutchfield.ca/S-GxIZ7YjYiW ... guide.html
Re: 75" Budget TV's
Sent: Mán 20. Ágú 2018 16:18
af Klemmi
Þarf greinilega að kíkja til gamla og sjá hvort það styðji ARC, ég leit algjörlega fram hjá því
Þakka þér!
Re: 75" Budget TV's
Sent: Mán 20. Ágú 2018 17:59
af Baraoli
Þessi Enox tæki er með hörmuleg myndgæði miðað við öllu önnur tæki sem ég hef séð það mætti í raun halda þetta væri allt uppskalað 720p og litirnir frekar furðulegir. Tala nú ekki um Stýrikerfið í þessu..
Það eina sem þú færð fyrir peninginn eru tommurnar ekkert annað bókstaflega
Re: 75" Budget TV's
Sent: Mán 20. Ágú 2018 19:59
af audiophile
Þú færð það sem þú borgar fyrir.
Re: 75" Budget TV's
Sent: Mán 20. Ágú 2018 20:37
af netkaffi
Klemmi skrifaði:Hins vegar er það eins og fyrri ræðumenn nefna, fjarstýringin slöpp, Android kerfið lamað og svo er ekkert optical hljóð-output á tækinu, svo þú getur gleymt almennilegum soundbar.
Þarf ekki hljóð út á tækinu því hljóðið kemur úr PC. Fjarstýringu ekki í neitt annað nema kannski brightness, contrast og að skipta um HDMI rásir.
Re: 75" Budget TV's
Sent: Þri 21. Ágú 2018 09:29
af netkaffi
netkaffi skrifaði:Klemmi skrifaði:ekkert optical hljóð-output á tækinu, svo þú getur gleymt almennilegum soundbar.
Þarf ekki hljóð út á tækinu því hljóðið kemur úr PC.
Og getur maður ekki tengt PS4 og þannig beint við hljómflutningstæki (soundbar, eða 5.1)?
Re: 75" Budget TV's
Sent: Þri 21. Ágú 2018 11:26
af Sallarólegur
netkaffi skrifaði:Klemmi skrifaði:Hins vegar er það eins og fyrri ræðumenn nefna, fjarstýringin slöpp, Android kerfið lamað og svo er ekkert optical hljóð-output á tækinu, svo þú getur gleymt almennilegum soundbar.
Þarf ekki hljóð út á tækinu því hljóðið kemur úr PC. Fjarstýringu ekki í neitt annað nema kannski brightness, contrast og að skipta um HDMI rásir.
Það er ekkert mega þægilegt að skipta um HDMI rás og heyra áfram í hljóðinu frá PC
Re: 75" Budget TV's
Sent: Þri 21. Ágú 2018 11:54
af netkaffi
Ég væri í mesta lagi með eina aðra græju tengda við sjónvarpið, ef það mikið. Kannski eina leikjatölvu, ég get alveg sætt mig við að skipta um hljóðráðs á hljómflutningsgræjunum fyrir PS4 einstöku sinnum. Þó ég sé annars alveg eins og þú og vilji hafa allt sem einfaldast. Kannski maður ætti bara að láta sig hafa það og borga 150.000 kall í viðbót fyrir dýrara tæki með mögulega betri myndgæðum og möguleika á að nota bara eina fjarstýringu. haha
Re: 75" Budget TV's
Sent: Mið 22. Ágú 2018 11:46
af netkaffi
M.v. þennan þráð, ætti ég frekar að taka United tækið?
https://www.rafland.is/product/75-ultra-hd-sjonvarp
Re: 75" Budget TV's
Sent: Mið 22. Ágú 2018 12:00
af brain
Fyrir þennan pening myndi ég alltaf taka þetta 65 " tæki
Skítt með 10" mun.
https://elko.is/65uk6100-lg-65-snjallsjonvarp-uhd
bara mitt álit.
Re: 75" Budget TV's
Sent: Mið 22. Ágú 2018 12:23
af Halli25
Myndi allan daginn fara í þetta tæki:
https://www.rafland.is/product/65-super ... g-65sk7900
Nano Cell tækni og Super UHD (QLED Samsung sbr.)
Re: 75" Budget TV's
Sent: Mið 22. Ágú 2018 13:56
af Alfa
Skondið en þetta er nákæmlega það sem ég gerði, er einmitt að fara setja það upp í kvöld
Re: 75" Budget TV's
Sent: Mið 22. Ágú 2018 19:53
af netkaffi
Tíu tommur eru 25 centimetrar, fjórðungur úr meter, það ekki munurinn? Ég spái ekki það oft í sjónvörpum eða skjám svo ég spyr.
Re: 75" Budget TV's
Sent: Mið 22. Ágú 2018 20:26
af Alfa
Það er ca 30cm munur á 65 og 75" sjónvörpum á breidd og eitthvað á hæð náttúrulega líka. 145 vs 170
Re: 75" Budget TV's
Sent: Fim 23. Ágú 2018 08:19
af svanur08
Alfa skrifaði:Það er ca 30cm munur á 65 og 75" sjónvörpum á breidd og eitthvað á hæð náttúrulega líka. 145 vs 170
http://www.displaywars.com/65-inch-16x9-vs-75-inch-16x9
Re: 75" Budget TV's
Sent: Lau 25. Ágú 2018 19:29
af netkaffi
Er eitthvað komandi 75" tækjum í dæmigerða fólksbíla?