Erfitt að hugsa sér hvar við værum án þeirra, Core2Duo?
Eru Intel ekki búnir að vera á undan þeim í nokkur ár, þangað til nýjasti AMD kjarninn kom út ?
Ef Intel hefði enga samkeppni þá væri ekki jafn sterkur hvati til að gera betri, stærri og öflugri örgjörva.
AMD kann að toga í réttu spottana, t.d.kjarna fjölda stríð með bulldozer og fjölgun þráða.
Re: AMD Ryzen örgjörvar að lækka í verði. Allt að 30%
Sent: Mán 08. Jan 2018 16:31
af Hauxon
Ryzen 1800X á $349. Þokkalegasta bang for the buck myndi ég segja.
Re: AMD Ryzen örgjöfar að lækka í verði. Allt að 30%
Sent: Mán 08. Jan 2018 16:33
af kiddi
Moldvarpan skrifaði:Ef Intel hefði enga samkeppni þá væri ekki jafn sterkur hvati til að gera betri, stærri og öflugri örgjörva.
Reyndar er hvatinn alltaf þó það sé engin samkeppni, því Intel verður að halda áfram að selja örgjörva Ekkert fútt í þessu ef allir væru sáttir og engum langaði í uppfærslu. Ég er að pikka þetta á 3 ára gamla 4790K og ég á ofboðslega erfitt með að réttlæta CPU uppfærslu, þó mig dauðlangi, bara til þess eins að uppfæra.
Annars eru AMD ekki komnir upp fyrir Intel í absolút krafti, reyndar langt frá því - almennt litið eru flaggskipin hjá Intel ennþá á toppnum í öllum flokkum, nema kannski performance per dollar flokknum. Intel 8700K er samt bara $40 dýrari en Ryzen 1800X og er betri í næstum öllum real-world scenarios.
Re: AMD Ryzen örgjöfar að lækka í verði. Allt að 30%
Sent: Mán 08. Jan 2018 17:25
af DJOli
kiddi skrifaði:
Moldvarpan skrifaði:Ef Intel hefði enga samkeppni þá væri ekki jafn sterkur hvati til að gera betri, stærri og öflugri örgjörva.
Reyndar er hvatinn alltaf þó það sé engin samkeppni, því Intel verður að halda áfram að selja örgjörva Ekkert fútt í þessu ef allir væru sáttir og engum langaði í uppfærslu. Ég er að pikka þetta á 3 ára gamla 4790K og ég á ofboðslega erfitt með að réttlæta CPU uppfærslu, þó mig dauðlangi, bara til þess eins að uppfæra.
Annars eru AMD ekki komnir upp fyrir Intel í absolút krafti, reyndar langt frá því - almennt litið eru flaggskipin hjá Intel ennþá á toppnum í öllum flokkum, nema kannski performance per dollar flokknum. Intel 8700K er samt bara $40 dýrari en Ryzen 1800X og er betri í næstum öllum real-world scenarios.
Ég vill meina að miðað við þá fræðslu sem ég hef fengið undanfarið þá séu Amd örgjörvarnir nefnilega almennt betri en Intel örgjörvarnir, nema þegar kemur að leikjaspilun, þar vantar þetta "trukk" í þá sem Intel hefur.
Re: AMD Ryzen örgjörvar að lækka í verði. Allt að 30%
Sent: Mán 08. Jan 2018 21:08
af kiddi
Einu skiptin sem Ryzen 1800X nær að vinna 8700K er í alvöru fjölþráða forritum, sem eru ansi fágæt og tiltölulega fáir sem nota slík forrit. Ég vinn sjálfur við kvikmyndagerð, þá aðallega tölvugrafík og vinn oft með Cinema4D sem er kerfið sem Cinebench benchmarking forritin vinnur út frá, en það er einmitt eitt af þeim sárafáu testum þar sem Ryzen hefur einhversskonar mælanlegan yfirburð, og þar er munurinn ekki svo mikill. Hinsvegar öll hin forritin, þeas. Adobe hugbúnaðarsvítan er að mestu single core, og þar hefur 8700K yfirburði að nánast öllu leiti og sérstaklega í vinnuhraða þar sem hraðinn skiptir mestu máli. Þess vegna notaði ég orðin "real world scenarios" því í flestri daglegri vinnslu hefur Ryzen enga yfirburði nema hjá þeim sem þurfa virkilega á fjölkjarna örgjörvum að halda. Af þeim fáu Ryzen eigendum sem ég þekki þá er enginn þeirra "workstation" notandi sem notast við fjölþráða forrit
Það er auðvitað hægt að „cherry picka“ benchmarks, og ég skal viðurkenna að ég veit að 1800X hefur yfirburði í alvöru 3D og CAD forritum sem eru fjölþráða forrit sem geta öll kreist tölvur betur en flestir aðrir, en munurinn þar finnst mér fljótur að hverfa við mikilvægi þess að hafa hraðann daglegan vinnuhraða, sbr. Intel línuna.
Re: AMD Ryzen örgjörvar að lækka í verði. Allt að 30%
Sent: Mán 08. Jan 2018 23:38
af einarhr
Capture.JPG (45.51 KiB) Skoðað 2265 sinnum
Hlaut að vera
Re: AMD Ryzen örgjörvar að lækka í verði. Allt að 30%
Sent: Mán 08. Jan 2018 23:40
af kiddi
Spennandi tímar! Svo er alveg magnað að Intel séu að fara að koma með örgjörva með innbyggðum skjákjörnum frá AMD! :O
Re: AMD Ryzen örgjörvar að lækka í verði. Allt að 30%
Sent: Mán 08. Jan 2018 23:47
af agnarkb
Svo yfir mig ástfanginn af 1800x. Æðislegt að þeir ætla að supporta socketið til allavegana 2020, sé fram á að uppfæra upp í 2800x með sama mobo ef klukkuhraði nær upp í svona 4.3-4.4
Re: AMD Ryzen örgjörvar að lækka í verði. Allt að 30%
Sent: Þri 09. Jan 2018 08:21
af GuðjónR
kiddi skrifaði:Spennandi tímar! Svo er alveg magnað að Intel séu að fara að koma með örgjörva með innbyggðum skjákjörnum frá AMD! :O
9. janúar þegar ég vaknaði i morgun, ekki 1. apríl.
Re: AMD Ryzen örgjörvar að lækka í verði. Allt að 30%
Sent: Þri 09. Jan 2018 12:01
af beatmaster
GuðjónR skrifaði:
kiddi skrifaði:Spennandi tímar! Svo er alveg magnað að Intel séu að fara að koma með örgjörva með innbyggðum skjákjörnum frá AMD! :O
9. janúar þegar ég vaknaði i morgun, ekki 1. apríl.
Fyrsta sem ég hugsaði þegar ég sá myndina, þetta verður högg fyrir nVidia...byrja svo að lesa:
One of the more surprising products announced last year was an Intel CPU with embedded AMD graphics, an unusual collaboration between two competitors. With the full specs now available, it's clear that the companies are taking aim at a common enemy: Nvidia.
Af hverju er nVidia sameiginlegur "óvinur" AMD og Intel?
Re: AMD Ryzen örgjörvar að lækka í verði. Allt að 30%
Sent: Þri 09. Jan 2018 12:45
af Hauxon
kiddi skrifaði:Einu skiptin sem Ryzen 1800X nær að vinna 8700K er í alvöru fjölþráða forritum, sem eru ansi fágæt og tiltölulega fáir sem nota slík forrit. Ég vinn sjálfur við kvikmyndagerð, þá aðallega tölvugrafík og vinn oft með Cinema4D sem er kerfið sem Cinebench benchmarking forritin vinnur út frá, en það er einmitt eitt af þeim sárafáu testum þar sem Ryzen hefur einhversskonar mælanlegan yfirburð, og þar er munurinn ekki svo mikill. Hinsvegar öll hin forritin, þeas. Adobe hugbúnaðarsvítan er að mestu single core, og þar hefur 8700K yfirburði að nánast öllu leiti og sérstaklega í vinnuhraða þar sem hraðinn skiptir mestu máli. Þess vegna notaði ég orðin "real world scenarios" því í flestri daglegri vinnslu hefur Ryzen enga yfirburði nema hjá þeim sem þurfa virkilega á fjölkjarna örgjörvum að halda. Af þeim fáu Ryzen eigendum sem ég þekki þá er enginn þeirra "workstation" notandi sem notast við fjölþráða forrit
Það er auðvitað hægt að „cherry picka“ benchmarks, og ég skal viðurkenna að ég veit að 1800X hefur yfirburði í alvöru 3D og CAD forritum sem eru fjölþráða forrit sem geta öll kreist tölvur betur en flestir aðrir, en munurinn þar finnst mér fljótur að hverfa við mikilvægi þess að hafa hraðann daglegan vinnuhraða, sbr. Intel línuna.
Það sem er í raun ótrúlegt við þetta er að Adobe skuli enn ekki vera farið að skrifa hugbúnað sem nýtir fjölkjarna örgjörva til fullnustu. Því það eru ekki bara AMD örgjörvarnir sem eru fjölkjarna heldur líka high end CPU frá Intel. Svo ef maður skoðar þessi gröf sem þú linkar á þá er munurinn merkilega lítill á $300 CPU og $1000 CPU stundum ekki nema 2-3%. Auk þess er ekki hægt að horfa fram hjá því að örgjövar eins Intel 8700K væru líklega tvöfalt dýrari ef það væri ekki fyrir Ryzen.
Re: AMD Ryzen örgjörvar að lækka í verði. Allt að 30%
Sent: Þri 09. Jan 2018 13:39
af kiddi
GuðjónR skrifaði:Af hverju er nVidia sameiginlegur "óvinur" AMD og Intel?
Sennilega vegna þess að NVIDIA skjákjarnar eru farnir að taka við í reiknivinnu, NVIDIA skjáörgjörvi með 2560 CUDA-kjörnum getur leyst ýmis verk margfalt, jafnvel þúsundfalt hraðar en einn stór 4, 8, 10, 14 kjarna XEON örgjörvi, mig grunar að Intel séu skíthræddir við NVIDIA.
Hauxon skrifaði:
Það sem er í raun ótrúlegt við þetta er að Adobe skuli enn ekki vera farið að skrifa hugbúnað sem nýtir fjölkjarna örgjörva til fullnustu. Því það eru ekki bara AMD örgjörvarnir sem eru fjölkjarna heldur líka high end CPU frá Intel. Svo ef maður skoðar þessi gröf sem þú linkar á þá er munurinn merkilega lítill á $300 CPU og $1000 CPU stundum ekki nema 2-3%. Auk þess er ekki hægt að horfa fram hjá því að örgjövar eins Intel 8700K væru líklega tvöfalt dýrari ef það væri ekki fyrir Ryzen.
Algjörlega hárrétt að Adobe mættu gera betur, og hárrétt að munurinn á milli þessara flaggskipa er merkilega lítill og í engu samhengi við kostnað, og líka hárrétt að við megum þakka AMD fyrir að pota í Intel og minna þá á að þeir geta ekki gengið að markaðnum vísum En staðreyndin er samt sú að í dag, eru langflest forrit einkjarna og þ.a.l. mun 8700K vinna Ryzen 1800x og stundum með talsverðum mun, fyrir ekki meira en $40 hærra verð.
Re: AMD Ryzen örgjörvar að lækka í verði. Allt að 30%