Síða 1 af 1

[SELT] Nýr USG Pro 4, uppfærður og yfirfarinn.

Sent: Fim 19. Okt 2017 19:16
af egille
Er með glænýjan USG Pro 4, uppfærðan og yfirfarinn af framleiðanda (4GB minni frekar en 2GB). Á annan fyrir, hef ekkert við tvo að gera.
Mynd
Er alveg ósnertur og ónotaður, enn í kassanum (kom til landsins í dag, beint frá framleiðanda). Með fylgja tvær blacksilent pro pm-2 viftur (nýjar, í kassanum), auðvelt að skipta viftunum út þannig að það heyrist varla meira í honum en stöðluðum heimilisketti.

Tekur 1gbps í nefið.

Annars má sjá allar upplýsingar hér:
https://www.ubnt.com/unifi-routing/unif ... way-pro-4/
https://www.netverslun.is/Midlaegur-bun ... 335.action

Mynd

Verðhugmynd: selt.

Re: [TS] Nýr USG Pro 4, uppfærður og yfirfarinn.

Sent: Fim 19. Okt 2017 19:19
af Fungus
Hvernig hljómar 25 þúsund?

Re: [TS] Nýr USG Pro 4, uppfærður og yfirfarinn.

Sent: Fim 19. Okt 2017 19:22
af egille
:) takk, en það er allt of lágt.

Re: [TS] Nýr USG Pro 4, uppfærður og yfirfarinn.

Sent: Fim 19. Okt 2017 20:56
af Tiger
Virkar þessi ekki bara með Gagnaveitu ljósi, ekki Mílu ljósi?

Re: [TS] Nýr USG Pro 4, uppfærður og yfirfarinn.

Sent: Fim 19. Okt 2017 21:09
af egille
Verð að viðurkenna að ég bara þekki það ekki. Er sjálfur með ljós frá GR.

Hef ekki hugmynd af hverju hann ætti ekki að virka, veit um nokkra sem eru t.d. að nota edgerouter pro, en þori engan veginn að fullyrða neitt :)

Re: [TS] Nýr USG Pro 4, uppfærður og yfirfarinn.

Sent: Fim 19. Okt 2017 21:23
af nidur
Flott græja

Re: [TS] Nýr USG Pro 4, uppfærður og yfirfarinn.

Sent: Fös 20. Okt 2017 03:54
af hagur
Skilst að hann virki alveg með Mílu, þsrf bara að stilla hann á PPOE eða hvað sem það kallast og setja inn credentials, sem mér skilst að Míla sé ekkert of hrifin af að gefa upp. Gætir þurft að fara með hann til ISP til að láta configura það.

^^ Sagt án 100% ábyrgðar.

Re: [TS] Nýr USG Pro 4, uppfærður og yfirfarinn.

Sent: Fös 20. Okt 2017 19:17
af Maniax
Virkar fínt, Wanið verður að vera PPPOE og vlan=4 taggað til að tengjast mílu boxinu

Re: [TS] Nýr USG Pro 4, uppfærður og yfirfarinn.

Sent: Mán 23. Okt 2017 12:25
af egille
Verðhugmynd: 45þ

Re: [TS] Nýr USG Pro 4, uppfærður og yfirfarinn.

Sent: Mán 23. Okt 2017 16:09
af egille
Fyi, þá hefur verið vesen með USG PRO 4 og random reboot. Það hefur í öllum tilfellum verið lagað með því að skipta minninu út (4GB kubbur í stað 2GB, með lægri klukkutíðni). Ég prófaði 3 mismunandi kubba, og á þeim þriðja hefur boxið mitt ekki hikstað einu sinni (komnir 20 dagar).

Fékk þetta box beint frá Ubiquiti, þar sem minninu var skipt út af þeim sjálfum og allt prófað (s.s. sárabætur frá Ubiquiti, en sé ekki ástæðu til þess að rífa gamla boxið út úr skápnum fyrst það virkar).

Það er auðvitað algjört rugl að taka svona box inn á heimili, en það stendur klárlega fyrir sínu.

Re: [TS] Nýr USG Pro 4, uppfærður og yfirfarinn.

Sent: Fim 26. Okt 2017 10:10
af egille
Upp :)