Síða 1 af 1

Aðstoð við ethernet í herberginu

Sent: Mið 14. Sep 2016 20:41
af Tonikallinn
Góðann daginn. Er að vandræðast með ethernet í herberginu. Það er snúra sem kemur í gengum vegginn og í PC tölvuna mína og mig langar að geta haft ps4 í Ethernet án þess að þurfa að aftengja og fara á bakvið skrifborðið og vesenast eitthvað. Er ekki til einhvernvegin millistykki sem er semsagt 1 karl í 2 kerlingar eða eitthvað svoleiðis, án þess að fórna hraða?

Re: Aðstoð við ethernet í herberginu

Sent: Mið 14. Sep 2016 20:45
af hagur
Þú getur verið með 2 100mbit tengingar í gegnum einn CAT streng, það ættu að vera til millistykki fyrir það eða að þú klemmir bara sjálfur tvo mola á hvorn endann á kaplinum.

Önnur leið væri einfaldlega að kaupa einfaldan 5 porta gigabit switch og tengja kapalinn í hann. Svo bara tvo kapla úr honum, einn í PC og hinn í PS4. Þá heldurðu möguleikanum á gigabit sambandi.

Re: Aðstoð við ethernet í herberginu

Sent: Mið 14. Sep 2016 20:58
af Tonikallinn
hagur skrifaði:Þú getur verið með 2 100mbit tengingar í gegnum einn CAT streng, það ættu að vera til millistykki fyrir það eða að þú klemmir bara sjálfur tvo mola á hvorn endann á kaplinum.

Önnur leið væri einfaldlega að kaupa einfaldan 5 porta gigabit switch og tengja kapalinn í hann. Svo bara tvo kapla úr honum, einn í PC og hinn í PS4. Þá heldurðu möguleikanum á gigabit sambandi.
Og hvað kosta svona switch hér á landi? Og ef það er hægt er það ódýrara að kaupa í útlöndum?

Re: Aðstoð við ethernet í herberginu

Sent: Mið 14. Sep 2016 21:01
af I-JohnMatrix-I
Tonikallinn skrifaði:

Þeir eru ekkert sérstaklega dýrir hér er einn t.d. http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=3018

Mjög einfalt og þægilegt. Tengir snúru beint úr router í eitt af tengjunum 5 og svo notaru hin tengin fyrir búnaðinn þinn(tölva, ps4).

Re: Aðstoð við ethernet í herberginu

Sent: Mið 14. Sep 2016 21:03
af Tonikallinn
I-JohnMatrix-I skrifaði:

Þetter er nokkuð einfalt þá. Vandamálið er aðallega pláss en það væti hægt að redda því. Og þetta hægir ekkert á tengingunni?

Re: Aðstoð við ethernet í herberginu

Sent: Mið 14. Sep 2016 21:09
af ulfr
Að tengja switch inn í línuna hægir ekki á tengingunni. Flestir gigabit switchar eru færir um Gbps per port throughput.
ég myndi ekkert vera að brasa við að splitta snúrunni þar sem þú þarft að gera það á hvorum enda fyrir sig, færð stykki til þess á tæpan þúsundkall hjá Íhlutum í skipholti, en switch er mun betri lausn.