Síða 1 af 1
Sony Z5 vesen
Sent: Þri 26. Apr 2016 23:50
af Black
Keypti Sony Z5 í nóvember, og fyrir svona mánuði þá byrjaði hann að crasha reglulega, hef ekki haft tök á að láta hann í viðgerð, biluninn lýsir sér þannig að hann frýs og restartar sér, nema áðan þá fór skjárinn í fokk allt hristist á skjánum og síminn dó í smá stund kveikti svo á sér aftur. Ég náði screenshoti áður en hann slökkti á sér. Hvað ætli sé að hrjá hann
Ef ég fer með hann og segjum að þeir opni hann og skipti um einhvað ætli síminn sé þá ennþá jafn rakaheldur og rykvarinn eftir það?
https://m.imgur.com/QyzlMZl
Re: Sony Z5 vesen
Sent: Mið 27. Apr 2016 03:03
af Swooper
Eitt get ég amk sagt þér ef það skyldi ekki vera augljóst: Þetta er ekki skjárinn, heldur síminn sjálfur - gæti verið skjástýring, CPU, móðurborð eða eitthvað.
Annað: Þó að síminn sé opnaður til að gera við hann þá á það ekki að hafa nein áhrif á þéttinguna á honum.
Re: Sony Z5 vesen
Sent: Mið 27. Apr 2016 09:07
af brynjarbergs
Þeir hafa ekki verið að opna Sony síma hér á landi vegna einmitt þess að þeir eru ryk og rakaþéttir heldur skipta þeir gölluðum tækjum út ef þetta er staðfest bilun.
Vertu búinn að taka afrit af gögnunum þínum því flest umboðsverkstæðin eru lítið í gagnabjörgunum eða rukka hátt í 10.000kr fyrir það.
Re: Sony Z5 vesen
Sent: Fim 28. Apr 2016 19:33
af Black
Fór með hann,Sá sem tók við honum fannst strax líklegt að skjákjarninn væri að klikka í honum.Fékk fínan nokia takkasíma að láni frá Elko, til að nota næstu vikurnar.
Re: Sony Z5 vesen
Sent: Fim 28. Apr 2016 19:57
af kizi86
Black skrifaði:Fór með hann,Sá sem tók við honum fannst strax líklegt að skjákjarninn væri að klikka í honum.Fékk fínan nokia takkasíma að láni frá Elko, til að nota næstu vikurnar.
og þú sættir þig við það??? þetta er klárlega brot á lögum um neytendakaup..
30. gr. Framkvæmd úrbóta og nýrrar afhendingar.
Úrbætur og ný afhending skulu fara fram án kostnaðar og verulegs óhagræðis fyrir neytanda, innan hæfilegs tíma og þannig að neytandinn fái bætt útgjöld sín úr hendi seljanda.
Seljandi á ekki rétt á að bæta úr sama galla eða afhenda nýjan söluhlut vegna sama galla oftar en tvisvar sinnum nema sérstakar aðstæður séu fyrir hendi sem réttlæta frekari úrbætur eða afhendingu.
Ef úrbætur eða ný afhending seljanda hafa það í för með sér að neytandi getur ekki notað söluhlut í meira en eina viku getur neytandi krafist þess að fá sambærilegan hlut til umráða á kostnað seljanda. Þetta á þó aðeins við ef krafan telst sanngjörn með hliðsjón af þörfum neytandans og þeim kostnaði og óhagræði sem það hefur í för með sér fyrir seljanda.
að kaupa rándýran snjallsíma, hann bilar og meðan maður er að bíða eftir viðgerð, að fá NOKIA TAKKASÍMA í staðinn er bara fyrir neðan allar hellur! átt að fá SAMBÆRILEGT tæki á meðan.
t.d ef kaupir ferðatölvu sem er titluð leikjaferðatölva og er útúrspekkuð, hún bilar, ferð með hana í viðgerð og fyrirtækið lætur þig fá vél sem er rétt svo að slefa yfir að vera nothæf á facebook.. það er ekki sambærileg vél

hef lent í þannig aðstæðum, og ég sagði þeim að hirða þetta rusl og láta mig fá alvöru vél sem gæti keyrt þá leiki sem ég var að spila. því eins og stendur í lögunum að það þurfi að fara eftir ÞÖRFUM NEYTANDANS en ekki fyrirtækisins, þú varst að kaupa þér "high end" vélbúnað, ef hann bilar þá áttu að fá "high end" tæki á meðan!