Síða 1 af 1

Er það þess virði að spá í nýjan skjá

Sent: Þri 19. Apr 2016 21:02
af Tóti
Er með þennan skjá http://www.cnet.com/products/benq-g2410 ... ies/specs/
Var að spá í þennan http://odyrid.is/vara/benq-xl2720z-27-l ... ar-svartur
Er þetta að muna miklu í leikjaspilun ?
Er það þess virði ?

Re: Er það þess virði að spá í nýjan skjá

Sent: Þri 19. Apr 2016 22:11
af Frost
Ég uppfærði í 144hz skjá og ég fer allavega ekki aftur að spila á 60hz skjá :) Leikir verða svo mikið meira smooth!

Re: Er það þess virði að spá í nýjan skjá

Sent: Þri 19. Apr 2016 22:38
af dabbihall
ég sé allavegana alls ekki eftir því að hafa skipt

Re: Er það þess virði að spá í nýjan skjá

Sent: Þri 19. Apr 2016 23:38
af Danni V8
Langar svo mikið í 144hz!! En það eru bara aðrir hlutir sem hafa forgang í dag...

Re: Er það þess virði að spá í nýjan skjá

Sent: Mið 20. Apr 2016 00:10
af worghal
Danni V8 skrifaði:Langar svo mikið í 144hz!! En það eru bara aðrir hlutir sem hafa forgang í dag...
er í sömu sporum hérna. mikið um að manni langar, en annað hefur forgang.

Re: Er það þess virði að spá í nýjan skjá

Sent: Mið 20. Apr 2016 03:14
af Black
Klárlega þess virði, eftir að ég uppfærði í 27"þá gæti ég aldrei farið aftur í 22-24", ég var mikið að velta því fyrir mér hvort ég ætti að fara í 144Hz eða ips skjá miðað við budget, ég spila svo lítið fps leiki að ég fórnaði 144hz fyrir flottan borderless ips skjá. Sé alls ekki eftir því, http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f ... 86#p616886
Gta v lítur svo vel út í honum

Re: Er það þess virði að spá í nýjan skjá

Sent: Mið 20. Apr 2016 11:29
af Alfa
Stutta svarið er 144hz já, þú getur aldrei spilað aftur sérstaklega FPS leiki á 60hz skjá.

Langa svarið er þessi 27" BenQ (1080P) 100 þús kr virði ég myndi segja nei, ef þig vantar 144hz þá er til AOC skjár í Elko 1080P á næstum helming þess verðs eða 60 þús og hann er Freesync (ef þú átt nýlegt ATI kort geturðu nýtt þér það). Einnig til Philips og Asus skjáir á um 70-80 þús sem eru litlu verri.

Ég er á fjórða 120hz+ skjánum mínum núna, núverandi er 144hz 27", 1440p og með Gsync og ef það er eitthvað sem ég held að sé ekki peninganna virði þá er það GSync, en 120hz+ engin spurnnig í skotleikjum.

Re: Er það þess virði að spá í nýjan skjá

Sent: Mið 20. Apr 2016 20:59
af demaNtur
Philips 242G er sennilega besti kosturinn m.v. verð í 144hz skjá.

Mæli HIKLAUST með honum, sjálfur hef ég ekki prufað 60Hz skjá síðan ég var með 15" túbu sem fór ekki hærra. Sennilega 10 ár síðan.

Re: Er það þess virði að spá í nýjan skjá

Sent: Mið 20. Apr 2016 21:20
af Tóti
Keypti þennan http://www.elko.is/elko/is/vorur/Tolvus ... 2770PF.ecp
En þetta kom upp með freesync er með AMD R9 290X "AMD Freesync not supported"
Mynd

Re: Er það þess virði að spá í nýjan skjá

Sent: Mið 20. Apr 2016 21:40
af BLADE
Tóti skrifaði:Keypti þennan http://www.elko.is/elko/is/vorur/Tolvus ... 2770PF.ecp
En þetta kom upp með freesync er með AMD R9 290X "AMD Freesync not supported"
Mynd
hvernig ertu með hann teingdan? held að hann þurfi að vera teingdur i displayport til þess að það virki

Re: Er það þess virði að spá í nýjan skjá

Sent: Mið 20. Apr 2016 22:03
af Tóti
Djö displayport me stupid ekki viss :)

Re: Er það þess virði að spá í nýjan skjá

Sent: Mið 20. Apr 2016 23:26
af Alfa
Tóti skrifaði:Keypti þennan http://www.elko.is/elko/is/vorur/Tolvus ... 2770PF.ecp
En þetta kom upp með freesync er með AMD R9 290X "AMD Freesync not supported"
Þú þarft líka beta driver sem þú finnur hér, ef ég man rétt virkar ekki sá sem fylgir http://aoc-europe.com/en/products/g2770 ... t-download

nb með þennan skjá þá er gott að menn viti að mjög algengt ATI kort 280X er ekki freesync supported !
demaNtur skrifaði:Philips 242G er sennilega besti kosturinn m.v. verð í 144hz skjá.

Mæli HIKLAUST með honum, sjálfur hef ég ekki prufað 60Hz skjá síðan ég var með 15" túbu sem fór ekki hærra. Sennilega 10 ár síðan.
Ég hef átt Philips 242G og 2 útgáfur af BenQ XL24xx og sem overall skjár þá er ég sammála Philips er betri, sérstaklega með features og að lesa af. Orginal stillingarnar af BenQ XL2411 og XL2412 er hörmung og þarf að calibrate-a hann í spað til að fá rétta liti, en ... hann er betri raw gaming skjár.[/quote]

Re: Er það þess virði að spá í nýjan skjá

Sent: Fim 21. Apr 2016 12:09
af Emarki
Ég fór í 144hz og það er ekki hægt að fara til baka. Ég fékk mér "strobe utility" og strobaði blur reduction í honum og vá hvað það er smooth.

Maður þurfti reyndar hellings stillingar atriði til að ná honum réttum af því að hann verður dökkur þegar maður "strobar" skjáinn, enn þetta er svo miklu betra enn bara 144hz.

Þið sem eigið 144hz skjá enn vitið ekki hvað það er að "strobe"-a skjá tjekkið á http://www.blurbusters.com/

Re: Er það þess virði að spá í nýjan skjá

Sent: Fim 21. Apr 2016 14:32
af gissur1
Finnst ykkur 1080p ekki of lág upplausn fyrir svona stóra skjái?

Re: Er það þess virði að spá í nýjan skjá

Sent: Fim 21. Apr 2016 14:44
af Haukursv
gissur1 skrifaði:Finnst ykkur 1080p ekki of lág upplausn fyrir svona stóra skjái?
Ég fer ekki yfir 24 tommu í 1080p persónulega, keypti mér einu sinni 27 tommu sem ég fýlaði ekki. En menn eru misjafnir náttúrlega...

Re: Er það þess virði að spá í nýjan skjá

Sent: Fim 21. Apr 2016 14:49
af Frost
gissur1 skrifaði:Finnst ykkur 1080p ekki of lág upplausn fyrir svona stóra skjái?
1080p á 27" finnst mér alltof lítið.

Re: Er það þess virði að spá í nýjan skjá

Sent: Fim 21. Apr 2016 16:41
af Alfa
Frost skrifaði:
gissur1 skrifaði:Finnst ykkur 1080p ekki of lág upplausn fyrir svona stóra skjái?
Í langflestum tilvikum já, hafðu þó í huga að ef þú ætlar að spila í hærri upplausn eins og t.d. 2560x1440 sem er algeng 27" upplausn, þá er það 70% fleiri pixlar fyrir skjákortið að keyra svo maður nær ekki jafn mörgum römmum í demanding leikjum. Þú vilt akkúat allavega 100+ ramma með 144hz skjá.

Re: Er það þess virði að spá í nýjan skjá

Sent: Fim 21. Apr 2016 17:56
af Tóti
Jæja allt farið virka rétt takk fyrir hjálpina

Re: Er það þess virði að spá í nýjan skjá

Sent: Fim 21. Apr 2016 20:37
af Frost
Alfa skrifaði:
Frost skrifaði:
gissur1 skrifaði:Finnst ykkur 1080p ekki of lág upplausn fyrir svona stóra skjái?
Í langflestum tilvikum já, hafðu þó í huga að ef þú ætlar að spila í hærri upplausn eins og t.d. 2560x1440 sem er algeng 27" upplausn, þá er það 70% fleiri pixlar fyrir skjákortið að keyra svo maður nær ekki jafn mörgum römmum í demanding leikjum. Þú vilt akkúat allavega 100+ ramma með 144hz skjá.
Algjörlega. Enda finn ég stundum fyrir því :sleezyjoe Vonandi breytist það með næstu GPU uppfærslu.

Re: Er það þess virði að spá í nýjan skjá

Sent: Fim 28. Apr 2016 20:59
af Tóti
Alfa skrifaði:Stutta svarið er 144hz já, þú getur aldrei spilað aftur sérstaklega FPS leiki á 60hz skjá.

Langa svarið er þessi 27" BenQ (1080P) 100 þús kr virði ég myndi segja nei, ef þig vantar 144hz þá er til AOC skjár í Elko 1080P á næstum helming þess verðs eða 60 þús og hann er Freesync (ef þú átt nýlegt ATI kort geturðu nýtt þér það). Einnig til Philips og Asus skjáir á um 70-80 þús sem eru litlu verri.

Ég er á fjórða 120hz+ skjánum mínum núna, núverandi er 144hz 27", 1440p og með Gsync og ef það er eitthvað sem ég held að sé ekki peninganna virði þá er það GSync, en 120hz+ engin spurnnig í skotleikjum.
Takk fyrir ábendinguna Alfa