Síða 1 af 1
Hvað er besta chipsetið fyrir amd64 s939 ?
Sent: Mán 03. Jan 2005 12:40
af MuGGz
Ég hef verið að skoða móðurborð á fullu undanfarna daga þar sem ég er að fara fá mér amd64 3500+ s939.
þau móðurborð sem mér lýst best á eru
Abit AV8-3RD EYE
Asus A8V Deluxe 939
Giga-Byte K8NSXP
Bæði abit borðið og asus borðið eru með
VIA K8T800 Pro/VT8237 chipset meðann Gigabyte borðið er með
Nforce3 chipset
ég hef verið að tala við nokkra spekinga um þetta og eru þeir allir sammála um að Nforce3 chipsetið sé miklu betra heldur en VIA K8T800pro ...
nú spyr ég, hver er ykkar skoðun á þessu máli ?

Sent: Mán 03. Jan 2005 12:50
af sveik
Mín skoðun er sú að ég held að það hljóti að fara koma NF4 borð en það er búið að seinka þeim aftur og aftur. Sérstaklega NF4 Ultra en það er sagt að þau komi í USA um miðjan Jan. Síðan er ekki ólýklegt að það komi þónokkuð seinna til landsins.
Sent: Mán 03. Jan 2005 12:56
af ParaNoiD
ég var að skoða rewiew á AV8 þar sem það var borið saman við Nforce3 borð og einnig nforce 4
nforce 3 var venjulega ööörlítið hærra (um og undir 1%)
nforce 4 var ekkert að gera neitt mikið eins og maður hélt ... þarf að finna þetta rewiew aftur
Sent: Mán 03. Jan 2005 12:58
af ParaNoiD
Sent: Mán 03. Jan 2005 14:32
af Cascade
NF4 er besta chipsettið.
Margir ná 400HTT á ómodduðu borði.
DFI nf4 kemur í janúar, það verður besta borð ever, you just wait and see
Sent: Mán 03. Jan 2005 16:06
af MuGGz
Gigabyte K8NF-9
hérna er eitt Nforce4 móðuborð ...
Sent: Mán 03. Jan 2005 16:43
af hahallur
Það er komið Asus SLi Nforce 4 borð í tæknibæ, held ég.
Sent: Mán 03. Jan 2005 16:54
af MuGGz
já það er komið enn ég tými bara ekki 29k í móðuborð
á meðan abit av8 3rd eye er á 14k
Sent: Mán 03. Jan 2005 17:11
af CendenZ
nForce3 móðurborðin eru að fá fleiri stig og fps í benchmorkum ...
ótrúlegt, en samt

Sent: Mán 03. Jan 2005 17:50
af kristjanm
Er það ekki einhver smávægilegur munur?
Ég myndi halda að nýju eiginleikar nForce4 myndu vera meira virði en einhver smávægilegur performance munur.
Sent: Mán 03. Jan 2005 18:01
af MuGGz
svona til ykkar sem fílið Nforce4 og segið það besta chipsetið ..
hvernig lýst ykkur þá á þetta borð ?
Gigabyte K8NF-9
Sent: Mán 03. Jan 2005 18:14
af MuGGz
enn önnur spurning ....
Asus A8N-SLI Deluxe
er þetta peninganna virði ? ef maður skyldi gerast klikkaður ...

Sent: Mán 03. Jan 2005 18:33
af hahallur
já ef þú tímir að kaupa 2 x 6800 kort.
Annars ekki
Sent: Mán 03. Jan 2005 18:34
af kristjanm
Þetta væri alveg örugglega ekki peninganna virði, ef þú bíður í nokkra daga gætirðu örugglega sparað þó nokkuð marga þúsundkalla og keypt þér alveg jafn gott borð.
Sent: Mán 03. Jan 2005 18:42
af MuGGz
kristjanm skrifaði:Þetta væri alveg örugglega ekki peninganna virði, ef þú bíður í nokkra daga gætirðu örugglega sparað þó nokkuð marga þúsundkalla og keypt þér alveg jafn gott borð.
einhverrahluta vegna stórefast ég um það ...
enn þetta er tölvubúnaður, sem er alltaf að breytast og þróast, ef ég býð í mánuð segjum það, eftir að það eru komin fleiri Nforce4 borð á markaðinn þá er í vinnslu eitthvað annað chipset, sem á að vera betra og öflugra, og það kemur eftir mánuð og svo bíður maður mánuð eftir því þá kemur eitthvað annað ....
maður getur beðið endalaust í þessum tölvumálum enn alltaf kemur eitthvað nýtt sem slær því sem þú átt við ....
Sent: Mán 03. Jan 2005 18:57
af kristjanm
MuGGz skrifaði:kristjanm skrifaði:Þetta væri alveg örugglega ekki peninganna virði, ef þú bíður í nokkra daga gætirðu örugglega sparað þó nokkuð marga þúsundkalla og keypt þér alveg jafn gott borð.
einhverrahluta vegna stórefast ég um það ...
enn þetta er tölvubúnaður, sem er alltaf að breytast og þróast, ef ég býð í mánuð segjum það, eftir að það eru komin fleiri Nforce4 borð á markaðinn þá er í vinnslu eitthvað annað chipset, sem á að vera betra og öflugra, og það kemur eftir mánuð og svo bíður maður mánuð eftir því þá kemur eitthvað annað ....
maður getur beðið endalaust í þessum tölvumálum enn alltaf kemur eitthvað nýtt sem slær því sem þú átt við ....
Já það er alveg rétt, það kemur alltaf eitthvað nýtt og nýtt.
En það breytir því ekki að 30þús fyrir móðurborð er of hátt, sérstaklega þegar þú gætir fengið örugglega svipað móðurborð á næstum hálfvirði kannski viku eða tveimur seinna.
En ekki að það komi mér eitthvað við, endilega eyddu 30þús kallinum þínum í móðurborð. Þú átt örugglega eftir að sjá eftir því þegar það kemur annað nForce 4 móðurborð eftir viku.
Sent: Mán 03. Jan 2005 21:16
af zaiLex
Nforce4 Ultra borðin með SATA2 eru ekki ennþá komin til Íslands er það? Er ekki gott að vera með SATA2 support uppá framtíðina? Getur maður ekki notað venjulegan SATA disk í SATA2 borð? ÞARF maður að hafa tvö skjákort þegar maður er með SLI borð?
ég þarfnast svara
hér er eitt nforce4 SATA2 móðurborð t.d.
Sent: Mán 03. Jan 2005 22:41
af Pandemic
sata 2 ertu ekki að meina sata með nqc
Sent: Mán 03. Jan 2005 22:57
af zaiLex
Pandemic skrifaði:sata 2 ertu ekki að meina sata með nqc
neibb
Sent: Mán 03. Jan 2005 23:20
af kristjanm
Ég held að SATA 2 muni ekki breyta neinu nema að auka fræðilegu bandvíddina við harða diskinn, en eins og er nýta hörðu diskarnir ekki nema nálægt helming af þeirri bandvídd sem SATA hefur.
Sent: Mán 03. Jan 2005 23:27
af MezzUp
zaiLex skrifaði:Nforce4 Ultra borðin með SATA2 eru ekki ennþá komin til Íslands er það? Er ekki gott að vera með SATA2 support uppá framtíðina? Getur maður ekki notað venjulegan SATA disk í SATA2 borð? ÞARF maður að hafa tvö skjákort þegar maður er með SLI borð?
Veitekki. Ekkert frekar. Já. Nei.
Sent: Þri 04. Jan 2005 09:59
af MuGGz
jæja ég er hættur við þetta Asus sli móðurborð ....
ætla að bíða aðeins með að uppfæra hanga til amd64 3500+ 90nm verður kominn (sé samt hvað hvað ég nenni að bíða lengi

)
þá sjáum við til hvaða Nforce4 móðurborð verða komin þá

Sent: Þri 04. Jan 2005 19:59
af Runar
Ef ég man rétt þá er ASUS þarna SLI borðið með stuðning fyrir SATA 3GB/s.. sem er í sjálfu sér SATA2.. þar sem venjulegt SATA er með 1.5GB/s..
En ég héld nú að Gigabyte nForce4 borðið sé nú bara fínt.. óþarfi að borga 2falt verð fyrir hluti sem maður mun sennilega ekki nota neitt.. ekki fyrren maður uppfærir næst það er
